Heima er bezt - 01.06.1964, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.06.1964, Qupperneq 33
bakpokann og fylgist með Svanhildi inn í gestastofuna. Þar vísar hún honum til sætis, en gengur síðan strax fram úr stofunni aftur. Hún á annríkt og má því ekki vera að því að ræða neitt við gestinn að sinni, enda kem- ur húsbóndinn vonandi á hverri stundu. Svanhildur hressir við eldinn og setur upp ketilinn. Senn fer vinnufólkið að koma inn til að drekka mið- degiskaffið. Hún hugsar sér að bjóða gestinum að drekka með því. En hvaða maður skyldi þetta annars vera? Trausti Þorgrímsson sagðist hann heita. — Þor- grímsson! Það skyldi þó ekki vera sonur hreppstjórans? Hún man það nú, að einhvern tíma heyrði hún, að Þor- grímur hefði eignazt einn son með konu sinni, en hami hefði farið ungur að heiman eitthvað út í lönd og stund- aði þar nám. Skyldi þetta vera hann? Þessi ungi, glæsi- legi maður, — að Þorgrímur eigi slíkan son? Svanhild- ur andvarpar ósjálfrátt. Ekki eru þeir líkir feðgar, en það er ekki að marka, margt er ólíkt með skyldum. Trausti gengur um gólf í gestastofunni, en öðru hverju nemur hann staðar við gluggann og horfir út. En hve allt er hér með sama sniði, og þegar hann fór að heiman. Faðir hans heidur auðsjáanlega öllu í gamla horfinu og breytir ekki til í búnaðarháttum né öðru. En skyldi Steinvör vera hætt að stjóma búi föður hans? Skyldi þessi unga, glæsilega stúlka, sem kom til dyra, og bauð honum hingað inn, vera húsmóðir hér? Ekki er annað hægt að halda eftir framkomu hennar. Svan- hildur Einarsdóttir sagðist hún heita. En hann kannast ekki við nafnið. Hann man ekki í fljótu bragði eftir neinni stúlku með því nafni þar í sveitinni. Hvaðan skyldi hún vera? Hann lítur út um stofugluggann eins og í þeirri von að sjá hana úti í vordýrðinni og fá svar við spumingu sinni, en hún er þar hvergi sjáanleg. Auðvitað er hún að störfum innanbæjar. Trausti stendur kyrr við glugg- ann og horfir út. Brátt sér hann föður sinn koma sunn- an túnið og stefna heim að bænum. Gamli maðurinn hefur eiginlega ekkert breytzt fremur en höfuðbólið hans. Trausti gengur þegar fram úr stofunni og út á hlaðið til móts við föður sinn. Feðgamir mætast fyrir utan stofugluggann, og báðir nema staðar jafnsnemma. Þorgrímur þekkir að vísu son sinn, um leið og þeir mæt- ast, en hann áttar sig naumast í fyrstu á því, að þetta sé hann, svo mikið hefur hann þroskazt og vaxið að glæsimennsku og gjörvileik, síðan leiðir þeirra skildu. Trausti réttir föður sínum höndina og segir þrótt- mikilli, glaðlegri röddu: — Komdu sæll faðir miun! — Komdu sæll drengur minn! Velkominn heim. Þor- grímur þrýstir hönd sonar síns þétt. — Þú kemur óvænt, þykir mér. Hvenær komstu hingað? — Núna fyrir stuttri stundu. — Og hvernig? Trausti brosir. — Gangandi að förumanna sið. Ann- ars kom ég í morgun með bifreið frá Reykjavík hing- að að sveitarmörkunum. En svo kaus ég að ganga síð- asta spölinn heim að Fremra-Núpi, og svo gekk ég yfir heiðina. Farangri mínum kom ég í geymslu, þar sem ég fór úr bifreiðinni. — Jæja, það var nú svo. Við skulum halda í bæinn. Þeir ganga saman inn í gestastofuna og taka sér þar báð- ir sæti. En síðan segir Þorgrímur: — Þú hefur sjálfsagt frá mörgu að segja eftir alla þína löngu útivist? — Já, að vísu hef ég það. — Þér hefur liðið vel í útlandinu? — Já, ágætlega. — Og hvað ertu nú búinn að læra mikið? — Ég lauk prófi í verkfræði núna í vor. — I verkfræði! Svo þú ætlar þér þá líklega ekki að gerast bóndi og setjast hér að á óðali forfeðra þinna, fyrst þú lagðir þá fræðigrein fyrir þig! — Nú, því ekki það. Eg hlýt að geta haft góð not af þeirri menntun minni, þó að ég gerðist bóndi hér heima. — Ég hef alltaf vonað, að þessi eini sonur, sem ég hef eignazt, léti óðalið ekki ganga úr ættinni. — Það vil ég heldur ekki að verði. En þú ert nú varla að hugsa um að hætta sjálfur búskap að sinni? — Nei, síður en svo. Nú hef ég ákveðið að hefja byggingu í vor á stóru og vönduðu íbúðarhúsi hér á Fremra-Núpi, og það á helzt að vera komið undir þak í haust. En ég hef enn ekki ráðið til mín neina smiði. — Kannski þú viljir taka að þér að sjá um bygginguna, sjálfur verkfræðingurinn. Þorgrímur brosir eilítið. — Já, ég er alveg til með að taka það að mér. Mér finnst það bara eiga vel við, að ég hefji starfið hér heima með því að byggja upp á æskuheimili mínu. — Jæja, eigum við þá að slá því föstu, að þú takir algerlega að þér að sjá um húsbygginguna? Þig skal ekki skorta efniviðinn. — Já, við sláum því föstu, og ég get tekið til starfa, hvenær sem þú vilt. — Það er ágætt, ég er alltaf bráðlátur með fram- kvæmdir. Samtalið er nú rofið. Svanhildur opnar stofudyrnar og nemur þar staðar. Hún lítur á þá feðgana og segir hæversklega: — Viljið þið ekki gera svo vel að koma fram í eld- hús og drekka þar kaffi? — Jú, þakka þér fyrir, svarar Trausti. En Þorgrím- ur lítur á son sinn og síðan á Svanhildi og segir: — Þessi maður er Trausti sonur minn, Svanhildur. — Jæja, svo þið eruð feðgar. Gerið þið svo vel. Kaff- ið bíður á borðinu. Síðan snýr hún frá stofudyrunum aftur og hverfur þeim. Trausti spyr föður sinn, örlítið brosandi: — Er þessi unga stúlka bústýra hjá þér, pabbi? — Já- — Hvaðan er hún? — Frá Ytra-Núpi. — Nú, dóttir hans Einars, ég kannast við hann. — Já, hún er dóttir Einars. — Er hún búin að vera hér lengi? Heima er bezt 237

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.