Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 14
Á Viðidalsafrétt. inn, og minnzt þá ferða okkar félaga, margra hinna sömu um Skaftártunguafrétt ári áður. Þá var svo hlýtt í veðri, að við naumast klæddumst öðru en sundskýlum og gönguskóm dag eftir dag. Slík getur veðurblíðan orðið í öræfum íslands. Einn daginn gekk ég upp á Gjátind, þótt hann sé allbrattur og 935 m hár, er það naumast erfið ganga. Og útsýnið þaðan launar marg- faldlega erfiðið. í fyrsta lagi hlasir endilöng Eldgjáin við allt upp í Mýrdalsjökul. Skyggnið var frábært og blöstu þá við öll fjöll sunnanlands austan frá Öræfa- jökli og vestur til Langjökuls. Kerlingarfjöll virtust ótrúlega nærri, en Hekla óð í skýjum. Nær eru fjöllin við Landmannaleið, Loðmundur og Kirkjufellið kol- svart á að líta, sem sker sig undursamlega frá hinum ljósu, litskreyttu fjöllum norðan undir Torfajökli, og síðast en ekki sízt Síðumannaafrétturinn með Eldhraun- inu liggur eins og útbreitt landabréf fyrir fótum manni. Eg dvaldist langa stund uppi á Gjátindi og naut útsýnis, sem ég nær hvergi hef séð jafnvítt og fjöl- breytilegt, jafnframt því sem ég skrifaði hjá mér þær plöntur sem þar uxu, en svo var hlýtt, að ekki hvarfl- aði að mér að fleygja yfir mig skyrtunni. Allt þetta rifjaðist nú upp, við að horfa vestur til Skaftártungu- fjalla. Síðasta daginn sem við dvöldumst á Síðumannaafrétti var sólskin og hiti. Aldrei er sólin jafnbjört og hlý og eftir langvinnar súldir og regn, aldrei er loftið tærara, né skyggnið betra. Við nutum þess að teyga sólskinið og fjallaloftið í gróðursælum vallendisbrekkunum við Eintúnaháls, sem anga af blóðbergi og ilmreyr. Undir kvöldið tókum við saman föggur okkar og skyldi nú haldið til byggða, og dvalið næstu daga í Vík í Mýr- dal, meðan kortlagður væri afréttur Mýrdælinga. Þegar við leggjum af stað er komið blæjalogn. Kvöld- skuggarnir teygja sig fram af Síðufjöllum. Láglendið er enn baðað í sólskini, Lómagnúpur veður í blámóðu, en Öræfajökull er nær horfinn í kvöldmistrið. Um alla Síðuna er svo undurfagurt samspil lita, ljóss og skugga, að hún minnir á ævintýraland, og hefði ég kosið að mega eyða þar nokkrum dögum, ef svo hefði viðrað sem þessa kvöldstund. En skyldustörfin kalla, og bakki og blika úr hafi boðar okkur, að aftur sé von veðra- brigða. Enda þurftum við ekki lengi að velkjast í vafa um þau. Við vorum naumast komnir í húsaskjól í barna- skólanum í Vík, þegar sunnlenzk slagveðursrigning bylur á þaki og gluggum. Var það kannske síðasta kveðjan til mín úr Blágiljum? í MÝRDALSFJÖLLUM. Um Vík í Mýrdal mátti segja að þessu sinni, að „kynlegt var eitt um svo kyrrlátan bæ, þar kvikaði ótrú- leg mergð“. Þorpið var fullt af fransmönnum, sem voru að undirbúa eldflaugarskot á Mýrdalssandi, og mátti engin stúlka þar gefa fransmanni hýrt auga, svo að ekki væri lögregluþjónn kominn á vettvang og búinn að reka hana heim til sín og ygla sig á fransmanninn. Var löggan á sífelldri ferð fram og aftur um þorpið, hvort sem það hefur nú verið eingöngu til að líta eftir fröns- urunum, og dömurnar læddust ósköp lúpulegar um götuna og fransararnir fúlir á svip að sjá. Annars fannst mér það vera fullkomin ögrun við Kötlu gömlu, að vera með svona fikt á hennar eigin sandi, og hefði mér ekki komið á óvart þótt hún hefði spýtt öllu frans- mannadótinu fram í sjó í myndarlegu jökulhlaupi ein- hvern daginn. En sennilega er gamla konan farin að mildast í skapinu, að minnsta kosti lét hún allt þetta óátalið. Mýrdalsafrétturinn er einn meðal sérkennilegri staða á voru landi. Eins og kunnugt er, skagar allmikið mó- bergshálendi suður undan Mýrdalsjökli en inn í það skerast dalir, gil og gljúfur. Sérkennilegust eru gilin, eftir þeim falla ár, sem hafa sorfið þau niður í móberg- ið oft niður undir jafnsléttu, falla þær síðan um gil- botninn, nokkuð straumþungar og kastast milli gilbarm- anna í ótal bugðum og sveigjum. Gilin smáþrengjast eftir því sem innar dregur, og má stundum kalla að þau Frá Siðumannaafrétt. 94 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.