Heima er bezt - 01.03.1965, Side 19
Andrea Jónsdóttir meö börnum sínum. Efri röð frá vinstri: Jón Lindal, Anna Margrét, Þórður, Guðbjörg, Sigurður, Benedikt
Kristinn, Hermína, Eggþór og Guðmundur Helgi. Neðri röð frá vinstri: Aðalheiður, Hallfriður Nanna, Andrea Jónsdóttir,
Margrét og Guðborg.
mis við allt ástríki, sem börnum og unglingum er þó
nauðsynlegt.
Andrea og Franklín voru frá bernsku nágrannar, og
aðeins áin Fellsá skilur löndin, Steinadals og Fells. Hef-
ur því að líkum engin augnablikshrifning verið að verki,
er þau ákváðu sameiginlega vegferð gegnum lífið. Þau
giftust 1903 og hófu búskap árið eftir í Þrúðardal. En
árið 1905 fluttu þau að Litla-Fjarðarhorni, þar sem
þau bjuggu til 1940, er Franklín andaðist. Þar var því
unnið ævistarfið, og mun þar oft hafa verið að sækja á
brattann.
Byrjað var með lítil efni, en í þeim hjónum sjálfum
var sá orkugjafi, sem ekki þvarr. Traustið á sjálfan sig
og trúin á þann Guð, sem hjálpar þeim er viljann eiga.
Með hagsýni og dugnaði komu þau stórum barna-hóp
sínum til manndóms og þroska. Þau eignuðust 13 börn,
er öll komust til fullorðins ára og eru öll á lífi, þegar
línur þessar eru skrifaðar.
Þá er börnin höfðu aldur til, unnu þau að heimilis-
störfum og vöndust því ung að árum öllum heimilis-
störfum. Oft fól Franklín eldri bræðrunum, þótt ungir
væru, alla skepnuhirðingu, er hann fór í atvinnu heim-
an að, því alls þurfti með til þess að drýgja tekjumar.
Litla-Fjarðarhorn er notagóð jörð. Túnið er grasgef-
ið, liggur gegnt suðri, og er því í skjóli fyrir höfuð
kuldagjóstinum, er oft á vorin leggur inn Strandaflóa.
Franklín stækkaði túnið og sléttaði. Engja-heyskapur
þar er frekar reytingslegur og langt og bratt til að
sækja.
Á fyrstu árum þeirra keyptu þau jörðina. Bæinn
byggði hann frá grunni og einnig öll peningshús, fjós,
fjárhús og heygeymslur undir járnþaki. Þótt veggir
væru að mestu úr torfi og grjóti, sem þá var algengt,
bar allur frágangur þess vottinn, að þar hefði verið' að
verki lagvirkni og vandvirkni.
Litla-Fjarðarhorn hggur í þjóðbraut. Komu þar því
margir ferðamenn, er óskuðu ýmissar fyrirgreiðslu, sem
jafnan var greitt úr með skjótleik og velvild. Var land-
símastöð sett þar 1926. Gestum leið þar ávallt vel. Hús-
bændur og börn þeirra vom skemmtin og alúðleg í
samræðum, enda vel greind og víðlesin í bókum og
sögnum. Veitingar vom veittar af einlægum og hlýjum
hug, og þess minnast gestir með ánægju og þakklæti.
Á heimili þeirra hjóna dvaldi oft fólk það, sem ekki
átti margra kosta völ. Helga fósturmóðir Franklíns
dvaldi á heimili þeirra sín síðustu æviár og andaðist hjá
þeim 96 ára að aldri árið 1927.
Andrea hefur dvalizt á Siglufirði hjá Guðborgu dótt-
ur sinni undanfarin ár. Þann 20. september 1961, er hún
átti áttræðis-afmæli, brá hún sér heim að Litla-Fjarðar-
horni til að geta dvalið þar ásamt mörgum börnum
sínum þennan merkisdag. Við þann stað voru minning-
arnar tengdar, og þar var meginlífsstarfið unnið. Hún
sá börnin sín öll verða að dugmiklum starfandi þjóð-
Framhald á bls. 103.
Heima er bezt 99