Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.03.1965, Blaðsíða 33
NOTIÐ AUGUN - SJÁIÐ MUNINN PriSji jiluti verálaunagetraunarinnar um ATLAS frystilristu eSa kæliskáp Eins og frá hefur verið skýrt hér í blaðinu eru 1. verð- laun í þessari getraun hvorki meir né minna en ATLAS frystikista 175 1, að verðmæti kr. 13.200.00 — eða, ef hinn heppni sigurvegari skyldi nú þegar vera búinn að eignast frystikistu, og vildi þess vegna heldur kjósa sér kæliskáp eða sambyggðan kæli- og frystiskáp, ja, þá hef- ur hann tækifæri til að velja um það fyrir sömu fjár- upphæð. Og ef hann hefur hug á að eignast ennþá stærri og dýrari ATLAS, þá er honum það að sjálfsögðu heim- ilt, bara með því að greiða sjálfur verðmismuninn. Á baksíðu janúar-heftis „Heima er bezt“ getið þið séð myndir af mörgum mismunandi tegundum af ATLAS kæli- og frystiskápum sem hægt er að velja um, og ef ykkur langar til að sjá fallegar litmyndir og lesa nánar um hinar mörgu og mismunandi tegundir sem ATLAS hefur upp á að bjóða, þá er ekki annað en útfylla pönt- unarseðilinn hér á síðunni, eða skrifa hann á pappírs- blað og senda það síðan til FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Reykjavík, og þið munið skömmu síðar fá senda ókeyp- is myndalista og upplýsingar um ATLAS. Þrautin sem þið eigið að leysa í þetta sinn er alveg í sama dúr og tvær undanfarandi þrautir, það er að segja, að reyna að koma auga á 5 triði sem vantar á neðri myndina, en sem sjást á þeirri efri. Heima er bezt H3

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.