Heima er bezt - 01.03.1965, Qupperneq 35
370. Serkir verðnr ekki lítið hissa, þeg-
ar hann les bréf mitt: Lokaður inni í
gömlu húsi! Þetta er víst heldur en ekki
óskemmtilegt ævint^'ri! Hann áttar sig
strax og ter af stað með Mikka ....
371. Eftir um tveggja stunda bið er
Mikki kominn aftur og lætur vita af sér
með glöðu gjammi fyrir utan fangelsis-
gluggann. Og mér til mikillar gleði hef-
ur hann Serki með sér.
372. Það tekur ekki margar sekúndur
að skýra Serki frá öllum kringumstæðum.
Hann flýtir sér upp stigann og finnur
lykilinn að klefa mínum á bita rétt
framan við dyrnar. Hann er svo ekki
lengi að bjarga mér út.
373. Þarna varztu stórsnjall einu sinni
enn, Mikki minn! segi ég hressilega við
Mikka á leiðinni ofan stigann. Og þér,
Serkir, þakka ég kærlega fyrir að þú
komst .... I sama bili sé ég garðstjóran-
um bregða fyrir ....
374. En hann gengur framhjá okkar
dyrum og fer yfir að húsinu. Okkur létt-
ir fyrir brjósti. Hættan er liðin hjá í bili.
Við berum saman ráð okkar og ákveðum
að hafa gætur á náunganum næstu nótt.
375. í rökkrinu sjáum við úr okkar
skógarleyni, að útidyr hússins eru opn-
aðar. Okkar maður kemur út og leggur
af stað í áttina til þjóðvegarins. Við
höldum á eftir honum í hæfilegri fjar-
lægð.
376. Garðstjórinn stefnir í áttina til
skógarins, þar sem ég sjálfur sótti bréf
Linds. Við fylgjumst á eftir honum hægt
og gætilega og höldum okkur í skógin-
um utan vegarins.
377. Senn er hann þar kominn, sem ég
fór út af þjóðbrautinni .... Jú, einmitt!
Hér fer garðstjórinn líka út af veginum
og hleypur við fót gegnum kjarrskóginn.
Við höldum hljóðlega á eftir honum.
378. Kominn að járnbrautarsporinu
sjáum við hann nema staðar og tína
saman hrúgu af þurrum kvistum og
sprekum, binda þetta saman í tvö knippi
og festa þau síðan á tvær lurkarenglur.