Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 7
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM:
REYKJALUNDUR
sigur góðs málefnis, sem hratt af stað framkvæmdum í
Reykjalundi fyrir rúmum tveimur tugum ára. Og und-
ir þeim sömu merkjum hefur verið starfað þar æ síðan.
Hér er ekki unnt að rekja sögu Reykjalundar. Að-
eins verður stiklað á stærstu steinunum og leitast við
að gefa innlit í nokkur atriði í rekstri stofnunarinnar
nú, og hvers er af henni að vænta.
Samtök berklasjúklinga, S.Í.B.S., voru stofnuð 1938.
Þeim, sem þar voru að verki, var ljóst, að einskis var þá
meira vant í íslenzkum berklavörnum en vinnuheimilis,
sem skapaði einskonar brú milli heilsuhælanna og lífs-
ins, og veitti sjúklingum, sem litla eða enga von höfðu
um fullan bata, en gæddir voru nokkurri starfsorku,
færi á að neyta hennar, þótt þeir gætu hvorki keppt á
hinum almenna vinnumarkaði né verið án læknishjálp-
ar og eftirlits. Samtökin afréðu því brátt að beita sér
fyrir stofnun vinnuheimilis, og fékk sú hugmynd fast
form með greinargerð Odds Ólafssonar í blaðinu
Berklavörn 1940, en þar segir svo um verkefni vinnu-
heimila:
„Að hagnýta til fullnustu í þágu þjóðfélagsins, starfs-
orku sjúklingsins, án þess þó að ofbjóða honum.
ir___ egar farið er um A'fosfellssveit, verður vegfar-
JÍ andanum starsýnt að húsaþorpi miklu uppi í
jr^ Reykjadalnum. Þar eru bæði stórhýsi og önn-
ur minni, en að baki þeirra er ungskógur að
vaxa úr grasi. Þegar heim kemur á myndarlegt bíla-
hlað vekur það fyrst athygli gestsins, hversu bjart er
yfir öllu húsaþorpinu, og hve umgengni öll er með
miklum snyrtibrag. Það er eins og sól og sumar hafi
numið hér iand. Og ef gesturinn er úr framandi landi
verður hann þó mest undrandi, þegar hann heyrir, að
stofnun þessi sé reist fyrir atbeina samtaka berklasjúkl-
inga og sé stjórnað af þeim. Hann kynnist því og brátt,
að hér er unnið einstætt starf, ekki einungis hér á landi,
heldur sem á fáa sína líka annars staðar. Meðal vor ís-
lendinga er nafnið Reykjalundur fyrir löngu þjóð-
kunnugt, og hefur hlotið þíðan hljóm í eyrum vorum.
Hvenær sem það er nefnt, er það sett í samband við
mannúð og bjartsýni.
Það var líka bjartsýni, stórhugur og óbilandi trú á