Heima er bezt - 01.04.1965, Side 22

Heima er bezt - 01.04.1965, Side 22
undanförnum áratugum, og oft hef ég dvalizt lengi á öræfum, en slíka sýn, slíka fegurð hef ég aldrei litið fyrri. En myndirnar fölna smám saman, svefninn sígur að, og óverðugur tek ég mér í munn orðin fornu: „Drottinn láttu nú þjón þinn í friði fara.“ Eða fæ ég nokkru sinni oftar að líta slíka öræfadýrð, eða verða svo heillaður af töfrum þeirra? Eg held varla. Næsta dag er unnið af kappi. Kortagerðarmennirnir ganga langar leiðir með myndir sínar, skoða og teikna. Benedikt fer að veiða silung í soðið, og ég labba mig norðvestur um flóana, svo lengi sem dagur endist, tek gróðursýnishorn, tel tegundir og klippi reiti eins og ég eigi lífið að leysa, því að það er mér ljóst, að þetta muni verða síðasta tækifærið, sem ég fæ til þess að kanna gróður þessara heiðalnda, og safna honum í sjóð þekkingar minnar á fjallagróðri íslands, því að enn er þar nokkurs í vant, og vinnudagurinn styttist. Dagur þessi reyndist okkur góður. Að vísu var hann ekki eins hlýr og sá næsti á undan, og hollvættir heiðanna sýndu okkur enga töfraheima, þegar kvelda tók, en í þess stað sendu þeir okkur úrsvala íshafsþokuna undir sólar- lagið, en þó ekki fyrri en dagsverki var lokið. Daginn eftir héldum við heimleiðis eins og ráð hafði verið fyrir gert, og lukum við verkefnið á heimleiðinni. Enn lék veðrið við okkur. Klárarnir voru nú heimfúsir og léttir í spori, enda létum við þá skokka óspart eftir að komið var norður af Tungukolli niður á‘ grundirn- ar í dalbotninum. Morguninn eftir kvaddi ég félagana. Þeir fóru á ný suður á heiðar, en nú lá leið þeirra um Víðidalstungu- heiði, þar sem þeir gátu ekið nýrudda bílaslóð. En ég hélt beina leið til Akureyrar. HAUSTSNJÓAR í ÁGÚST Sumri hallar. Síðasta ferðin, sem ég fer með þeim kortagerðamönnum að þessu sinni er ráðin norður á Reykjaheiði með bækistöð á Þeistareykjum. Áætlað er að gera kort af Reykjaheiðinni og afrétti Keldhverfinga eftir því sem tími vinnst til, jafnvel um allt svæðið suð- ur að Mývatni, en byr hlýtur að ráða. Við leggjum af stað sjö saman frá Akureyri mánu- daginn 17. ágúst. Veður er þá hið bezta, svo að við hyggjum gott til ferðarinnar. Við tefjum dálitla stund í Garði í Aðaldal, hjá Skafta Benediktssyni ráðunaut, njótum þar ágætra veitinga og fáum nauðsynlega fræðslu um landsvæði það, sem kanna á næstu daga, en enginn okkar hefur farið þar um áður, nema eftir þjóð- veginum austur Reykjaheiði. Eftir stutta viðdvöl á Húsavík höldum við upp á heiðina, í þremur bílum, tveimur jeppum og trukk. Eins og kunnugt er liggur bílleiðin til Þeistareykja upp Reykjaheiðarveginn, fram með Boðsvatni, yfir Grjótháls, með Höskuldsvatni, síðan austur um Hellur að Sæluhúsmúla. Þaðan er rudd bílaslóð beint suður heiðina á Þeistareyki. Þurrkar höfðu gengið undanfar- ið, vegirnir voru því góðir, svo að nærri lét, að ég sæi eftir því að hafa skilið Taunusinn minn eftir £ Garði, því að hverjum bíl sem var mátti aka tálmunar- laust á Þeistareyki. Alls vorum við rúma klukkustund þangað frá Húsavík. Það var komið undir kvöld þegar við komum á Þeistareyki. Tekið var að kólna í veðri, og hríðarél tættust inn með Lambafjöllum. Skyldi nú góða veðrinu vera lokið? Við notum birtuna, meðan hún endist til að litast um Og gera áætlun um vinnuna næsta dag. Það er okkur Ijóst, að megingróðurlendi heiðarinnar eru lyngmóar, kortagerðin á því að vera auðunnin, ekki sízt, þar sem búið er að ryðja bílaslóðir í ýmsar áttir, svo að ekki verður nauðsynlegt að fara mjög langar gönguferðir. Lengi hafði mér leikið hugur á að koma á Þeista- reyki, þetta afskekkta heiðarbýli lengst inni á heiðum, þar sem sagnir herma, að árásir bjarndýra hafi valdið því að bærinn fór í eyði að minnsta kosti einu sinni. Sumarfrítt er á Þeistareykjum. Sunnan við bæinn rís Bæjarfjallið með blómabrekkum og grösugum geirum upp undir brúnir. Bærinn stóð á lækjarbakka, þar sem allt gilið er sundursoðið af hveragufum, og leggur af þeim ramman brennisteinsþef, og umhverfis bæjarstæð- ið er grösug grund, gamalt túnstæði. Víða um land hafa afdalakot og heiðabvli verið eins afskekkt og jafnvel enn afskekktari en Þeistareykir. Þótt langt sé til næstu bæja og vandratað í dimmu og fannfergi, er ekki um verulegar torfærur að ræða. Sæmi- legt hefur verið að afla heyja á grundunum suður með Bæjarfjalli og um neðanverðar brekkur þess, og sjald- an eða aldrei þraut beit í fjallinu. Höfuðgalli bæjarstæð- isins er vatnsskorturinn. Þar er einungis um einn brunn að ræða með volgu vatni og svo litlu, að það þrýtur oft í þurrkum. Verður þá að sækja vatn í uppsprettu langt norður með Ketilfjalli. Á Þeistareykjum er nú ágætur skáli, svo að slíkur húsakostur hefur áreiðanlega aldrei verið þar fyrr. Skál- inn, sem reistur er handa leitarmönnum, er járnklædd- ur timburskáli, með 16 rúmstæðum og rúmgóðu svefn- lofti, sem þó aðeins þarf að nota þegar flest er um manninn. Borð og bekkir eru eftir miðjum skála og „kosangas“ suðutæki og lampar. Var ánægjulegt að koma þar að slíkum húsakynnum, enda hefði okkur orðið þar leið vistin í tjöldum eða torfkofa. Sagt er að reimt sé á Þeistareykjum. Þeir eiga sinn Móra, sem stundum kvað gera mönnum smáglennur, en einskis urðum við þar varir, enda mun reimleikinn mest hafa verið bundinn við gamla kofann, sem stendur í hinum fornu bæjarrústum, sem eru allmiklu neðar á túninu en nýi skálinn. Fyrsta morguninn, sem við vöknuðum á Þeistareykj- um var skipt um veður. Komin var norðanátt með súld 138 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.