Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 11
Stey.pt vatnsrör úr plasti. fé. Það er íslenzkri menningu og framtaki fagur vitnis- burður, hversu alþjóð hefur snúizt við þessum fram- kvæmdum og sýnt þeim skilning og samúð ekki ein- ungis í orði, heldur einnig í verki á rausnarlegan hátt. Ríki, sveitarfélög og einstaldingar hafa lagt fram mikið fé þegar S.Í.B.S. hefur til þeirra leitað, en mestu hefur þó munað um tekjur hins árlega Vöruhappdrættis S.I.B.S., en framkvæmdastjóri þess frá upphafi hefur verið Þórður Benediktsson, núverandi formaður sam- takanna, en hann og Maríus Helgason, fyrrverandi for- maður þeirra, hafa átt drjúgan þátt í uppbyggingu Reykjalundar og að gera hann að því, sem hann er. En þótt miklu fé hafi verið varið til framkvæmda í Reykja- lundi, þá hefur það borið ríkulegan ávöxt, sem hver og einn, er heimsækir staðinn, fær bezt sannfært sig um. Þegar Reykjalundur hóf störf, var hælið einungis ætlað berklasjúklingum, enda var bardaginn við þann sjúkdóm þá enn hinn harðasti, og naumast annar vágest- ur meiri, sem ógnaði þjóðinni, ekki sízt æskufólki. En fyrr en varði var sá óvinur á undanhaldi, og það drjúg- um fyrr en jafnvel hina bjartsýnustu forvígismanna S.Í.B.S. óraði fyrir, þegar það tók til starfa. En þegar berklaveikin lét undan síga varð ljóst, að húsakostur Reykjalundar rúmaði fleiri en berklasjúklingana. Enda leið nú ekki á löngu áður en dyr hans voru opnaðar öðrum sjúklingum. Á ársþingi S.Í.B.S. 1960 var sú breyting gerð á lög- um sambandsins, að allir öryrltjar með sjúkdóma í brjóstholi gætu notið þar fullra félagsréttinda og jafn- hugmynd um húsakost og búnað Reykjalundar. I fyrstu voru þar reist smáhýsi, 12 að tölu, Hefur þeim nokkuð verið fjölgað síðan. Næsta skrefið í framkvæmdum var bygging aðalhússins, sem auk vistmannaherbergja rúmar lækningastofur, eldhús, borðsal, setustofur og skrifstofur, og er kjarni alls húsaþorpsins. Síðan hefur hver byggingin rekið aðra. Hús handa starfsfólki, vöru- geymslur og vinnuskálar. Hafa vinnuskálarnir einkum vakið athygli sakir þess, hversu bjartir og vistlegir þeir eru. Voru þeir einstæðir í sinni röð, er tekið var að reisa þá, en nú er farið að taka þá til fyrirmyndar, og skapa þeir því nýtt tímabil í aðbúnaði iðnverkafólks hér á landi. Það sem fremur öðru einkennir hús og all- an búnað Reykjalundar, er að ætíð hefur verið leitazt við að fá hið bezta og fullkomnasta, sem völ hefur verið á hverju sinni. Það fer notaleg kennd um gest, sem gengur þar um garða við að sjá, hversu allt er þar búið á hagkvæman og vistlegan hátt, íburðarlaust en þó fallegt. Húsakynni og samkomusalir vistmanna minna miklu fremur á vel búinn hvíldargististað en heilsuhæli. En hinar stórfelldu framkvæmdir hafa kostað mikið Steypt handrið. Heima er bezt 127

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.