Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 31
Er heimamenn komu aftur heim á völlinn, var Þór- oddur á brott þaðan. Hafði hann gengið heim til bæj- ar. En er þeir komu heim, lá Þóroddur í rúmi sínu og var þá andaður.-------- Er Þórólfur bægifótur ein mesta afturganga, sem sögur segja frá. Á söguöld voru í bygð í Álftafirði 5 bæir. Nú er þar aðeins einn bær í byggð, Kársstaðir. — Álftafjörð- urinn er fögur byggð. — Blómlegur dalur inn milli hárra fjalla. Enn er fegurðin söm og á Söguöld þótt bæjum hafi fækkað. GULLFJALLIÐ Þegar ég var lítill drengur heima á Snorrastöðum, man ég eftir ríflega hnefastórum steini, sem sagður var úr Drápuhlíðarfjalli í Helgafellssveit. Voru í honum gylltar agnir, eins og í hann væru greyptar örsmáar gullþynnur. Var það almennt álit fáfróðra manna, að þetta væri gull, og kölluðum við steininn gullstein. Þegar farinn er þjóðvegurinn frá Berserkjahrauni og inn á móts við Helgafell, er Drápuhlíðarfjall — gull- fjallið — á hægri hönd. Það er sérstætt norður úr aðal- fjallgarðinum, rúmlega 400 metra hátt og gróðurlaust. í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, er Drápuhlíðarfjalli þannig lýst: „Drápuhlíðarfjall er talið merkilegasta fjall á öllu landinu, næst á eftir Snæfellsjökli, og er nafnkunnugt og víða rómað sem fjalla auðugast af málmum og nátt- úrusteinum, en svo kallast þeir steinar, sem þjóðtrúin hefur fyrrum talið, að gæddir væru yfirnáttúrlegum krafti. En þessi skoðun er fráleit. í fjallinu eru engar málmæðar. Hinsvegar er það rétt, að í því finnst mesti grúi af alls konar steinatilbrigðum, en þeim er svo óreglulega hrúgað saman, að dæmi til slíks finnast varla annars staðar á landinu. Að þessu leyti og vegna margs annars verður þó að telja Drápuhlíðarfjall merkilegt og þess vert, að náttúrufræðingar skoði það. Þess vegna lögðum við leið okkar þangað.“ Seinna segir þannig um gullsteinana: „Kísteningar (Cubi marcasitae) með látúns og eirlit eru hvervetna. Þeir eru bæði í hinum venjulegu járnblöndu steinum, en einkum í hörðnuðum leir, sem getur verið ýmislega litur, en er þó oftast hvítur og blár.“------ Þetta var þá allt gullið, sem marga hafði dreymt um og dáðst að. En sagan um „gullfjalliðu er ekki öll sögð enn. Sum- arið 1939 barst sú frétt til Stykkishólms, að kominn væri til landsins stórríkur Vestur-íslendingur af vest- firzkum ættum, sem lengi hefði verið búsettur í Ameríku og stundað þar útgerð og grætt á henni. Þessi Vestur-íslendingur hét Magnús Magnússon og var bróð- ir Kristjáns heitins málara. Honum var gullfjallið í barnsminni og hann langaði nú til að sannreyna það, hvort þarna væri gull. Vildi hann leggja í þetta all- Drápuhltðarfjall. X þarna var borað. mikla fjármuni, þótt eftirtekjan væri óviss. Hann kom með frá Ameríku margs konar útbúnað, svo sem bor- vél og lítinn málmbræðsluofn. Líka þurfti hann að fá löggilt leyfi til borunar í fjallinu, eins konar námu- réttindi. Hann valdi sér stað neðst í fjallinu í gildragi og fékk útmældan námureit þar um kring og upp eftir fjallinu. Aðrir gátu svo fengið útmælda reiti þar í kring. Nokkrir menn úr Stykkishólmi notuðu sér þetta og fengu útmælda reiti í fjallinu og biðu þess með nokkrum spenningi, hvað þessi tilraunaborun leiddi í Ijós, því að það þótti öruggt, að ef gull væri á einum stað í fjallinu þá væri það í fjallinu öllu. Borinn, sem Vestur-íslendingurinn kom með var víst venjulegur gullleitar bor, eins og þeir gerðust þá. Sjálfur borinn var pípa með hárbeittum, eitilhörðum börmum, sem skáru bergið, en út úr bornum komu all- gildir sívalningar, sem hægt var að bræða í bræðsluofn- um og greina í sundur málmtegundir úr þessu málm- grýti. Eftir því sem nær dró framkvæmdunum jókst eftirvæntingin. Og hvað leiddi svo þessi borun í ljós? Hún leiddi það í ljós, að vissulega var gull í bergteg- undum í fjallinu, en við rannsókn kom í ljós, að gullið var of lítið til þess að það borgaði sig að vinna þarna að námugreftri. Gullagnirnar í grjótinu, sem fólk hafði áður fyrr trúað á voru vitanlega einskisvirði, eins og þeir segja í Ferðabókinni Eggert og Bjarni. Ég kom oft til mannanna, sem unnu við borunina, því að ég var þá fréttaritari útvarpsins og það vildi gjarnan flytja fréttir af þessari tilraun til gullleitar. Ég fékk líka að sjá málmtegundir, sem komu úr hinum litla bræðslu- ofni. Það, sem mér var sýnt og átti að vera gull, var ekkert líkt gulli. Úr dálitlum sívalningi af grjóti var Heima er bezt 147

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.