Heima er bezt - 01.04.1965, Page 8

Heima er bezt - 01.04.1965, Page 8
Aðalbygging Reykjalundar. Anddyri neðar. Að fylgjast nákvæmlega með heilsu og vinnuþoli sjúklingsins og auka vinnutíma og afköst eftir því sem heilsan batnar. Að hafa vekjandi áhrif á hann og gera hann sér þess meðvitandi, að hann er ekki lengur ómagi þjóðfélagsins. Að tryggja þjóðfélagið gegn smithættu af sjúklingn- um hættulegasta tímann.“ Þessi orð hafa markað stefnu og störf Reykjalundar til þessa dags. í júnímánuði 1944 hófust framkvæmdir. Keypt hafði verið land að Syðri-Reykjum í Mosfellssveit, og fylgdu því miklir hermannaskálar. Aðstaða til hitaveitu fékkst frá Reykjavíkurbæ. Svo vel var að unnið, að 1. febrúar 1945 var lokið að reisa fyrstu húsin, og fyrstu vistmenn- irnir, 20 að tölu, fluttu þangað inn. Var hælið þá vígt, og því gefið nafnið, að tillögu síra Hálfdáns Helga- sonar. Oddur Ólafsson var þá ráðinn yfirlæknir og framkvæmdastjóri hælisins en fröken Valgerður Helga- dóttir yfirhjúkrunarkona. Nokkrum árum seinna tók Árni Einarsson við framkvæmdastjórn. Hafa þeir tveir starfað þar síðan en fröken Valgerður lét af störf- um þar 1961. En þau þrjú mörkuðu þegar í upphafi starfshætti og rekstur hælisins, og hefur búið að þeirri gerð síðan, 'og mun svo lengi verða. Ekki var hátt risið á Reykjalundi, þegar ýtt var úr vör. Þótt nokkur hús hefðu verið reist, skorti flest um búnað þeirra, og umhverfis þau var illfært fyrir grjót- hrúgum, rústum og rusli. Vinnuskálar, matseld og skrifstofur voru í gömlum hermannaskálum, sem ent- ust furðulengi. En allir gengu vonglaðir til starfa, og fyrstu sjúklingunum vegnaði vel, og ekki liðu margir mánuðir þegar sýnt var að rétt væri stefnt, og hælið næði tilgangi sínum, „að styðja sjúka til sjálfsbjargar“, sem er einkunnarorð S.I.B.S. Var því ótrauðlega unn- ið að nýjum framkvæmdum. Þegar starfið hófst var nokkrum vandkvæðum bund- ið að finna hæfilegt verkefni. Bæði varð að gæta þess, að framleiða þá hluti, sem seljanlegir væru og sam- keppnisfærir á opinberum markaði, og ekki síður hitt, að vinnan væri við hæfi sjúklinganna, en ofbyði ekki takmörkuðu þoli þeirra. í fyrstu voru þar sett upp trésmíða-, járnsmíða- og saumaverkstæði, einnig prjónastofa, húsgagnabólstrun og veiðarfæragerð. Mikið var þegar unnið að smíði leikfanga, sem urðu mjög vinsæl, og hafa verið það ætíð síðan, og furðufljótt urðu skólahúsgögn mikilvægur þáttur í framleiðslunni. Ofar: Setustofa. Neðar: Vistmenn tefla skák. 124 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.