Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.04.1965, Blaðsíða 10
Séð yfir Reykjalund. En tímarnir hafa breytzt, og forráðamenn Reykja- lundar hafa verið sívökulir um að finna ny verkefni. Nú um alllangt skeið hefur hverskonar plastiðnaður verið meginuppistaða iðnaðarins í Reykjalundi, og verð- ur hann sífellt fjölþættari. Þar eru gerð allskonar leik- föng og stöðugt bætist við nýtt, búsáhöld af ýmsu tagi, vatnsleiðslupípur og einangrunarvír, svo að eitt- hvað sé nefnt. Hefur plastiðjan marga þá kosti til að bera, sem hæfa vinnu á slíkum stað. Hún er hreinleg og fremur létt, krefst meira nákvæmni og hugsunar en átaka eða kunnáttu. Vörur Reykjalundar eru löngu landskunnar og eftirsóttar, þau munu ekki vera ýkja- mörg heimilin hér á landi, svo að þar sé ekki eitthvert búsáhald, leikfang, garðslanga, vatnspípa eða handrið úr Reykjalundarplasti. Eru allar vörur þaðan unnar af smekkvísi, og því eftirsóttar. Það varð brátt ljóst, að í sambandi við hinn marg- þætta iðnað væri vistmönnum nauðsyn og næsta hag- kvæmt að fá notið nokkurrar iðnmenntunar. Því var stofnsettur þar iðnskóli, sem rekinn hefur verið nú um mörg ár með ágætum árangri. Auk þess að vinna á verkstæðunum, annast vistmenn fjöldamörg störf í þágu heimilisrekstrarins, svo sem þvotta, hreingerningar, skrifstofustörf og þess háttar, því að margs þarf búið við. Ég vil ekki þreyta lesendur á tölum, en geta þess eins, að árið 1963 nam vörusala Reykjalundar nær 19 milljónum króna, og vinnustundafjöldi á hælinu var það ár alls 127.636. Gefur þetta nokkra hugmynd um, hversu víðtæk starfsemin er, en hvílíkt gildi þetta hef- ur má meta eftir því, að mikill hluti þessara vinnustunda er vinna fólks, sem annars hefði setið auðum höndum. Má af því ráða, hvílíkum verðmætum hælið bjargar fyr- ir þjóðarbúið. En þótt mikils sé vert um hinn beina fjárhagslega hagnað fyrir þjóðfélagið, er hitt þó miklu meira vert, sem aldrei verður með tölum talið, hversu mörgum manni hælið hefur bjargað og gert þá starfhæfa á ný í þjóðfélaginu utan hælisveggjanna. Það hefur skapað þeim nýja von, starfsgleði og starfsorku. Þótt vinnu- stundirnar séu margar, eru sólskinsstundirnar í lífi ein- staklinganna, sem hælið hefur skapað þeim, langt um fleiri. Myndirnar, sem grein þessari fylgja, gefa nokkra 126 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.