Heima er bezt - 01.05.1965, Síða 10
Kristján og Þuríður með börn, tengdabörn og barnabörn sin.
2. Kristín, fædd 24. marz 1922, fór á húsmæðraskólann
á Laugum, andaðist úr bráðum sjúkdómi tvítug að aldri.
3. Sveinbjörn, fæddur 23. nóv. 1923, málmsteypu-
maður í Reykjavík, kvæntur þýzkri konu. Hann á tvö
börn.
4. Þorbergur, fæddur 6. júlí 1926, kvæntur Guðfinnu
Árnadóttur frá Rauðuskriðu. Þau búa í nýju húsi með
gömlu hjónunum heima í Klambrarseli, og heitir húsið
Brúnahlíð. Þau eiga fjögur börn.
5. Sigurveig, fædd 26. nóv. 1928, gift Þórarni Jóns-
syni frá Skörðum. Heimili þeirra þar heitir Skarðaborg,
nýbýli, er þau hafa reist. Þau eiga þrjú börn á lífi.
6. Sigríður, fædd 12. júlí 1930, gift Matthíasi Björns-
syni húsasmið á Akureyri. Þau eiga þrjú börn.
7. Gísli, fæddur 5. des. 1931, kvæntur Helgu Jóns-
dóttur frá Yztahvammi. Þau búa í Lækjarhvammi, ný-
býli er þau sjálf hafa reist, og eiga fimm böm.
8. Ásdís, fædd 16. júlí 1938, gift Haraldi Þórarinssyni
húsasmið frá Vogum í Kelduhverfi. Þau eiga eitt barn
og búa á Húsavík.
Stríðsárin voru framkvæmdasnauð, en skuldimar
greiddust, og hagurinn réttist. Síðustu tuttugu árin,
1944—1964, er tímabil hinna miklu framkvæmda í
Klambrarseli svo sem víðar. Einhugur fjölskyldunnar
gerði gamla selið að höfuðbóli. — Tæknin er tekin í
þjónustu átthagatryggðar. Bjartsýnin ræður. „Hér em
engin takmörk þess sem gera má og gera þarf. Rækt-
unarlandið er óþrjótandi heima við, svo er einnig um
beitiland sauðfjár, allt austur að Lambafjöllum,“ segir
Kristján.
Árið 1956 tók elzti sonurinn, Jóhannes, einn við
íbúðinni í gamla húsinu. Þorbergur kvæntist og byggði
nýtt hús utan og neðan við gamla húsið. Þetta gerði
hann með tilstyrk foreldra sinna, og þau fluttust þang-
að með honum. Þetta nýja hús nefnist Brúnahlíð. —
Jóhannes lagfærði gamla húsið, svo nú er þar nýtízku
íbúð. Öll nýtízku tæki og þægindi eru í báðum húsun-
um. — Öll útihús eru sameiginleg og byggð úr stein-
steypu. Við þau era hlöður, sem taka um 1200 hesta og
eru með súgþurrkun.
Bræðurnir, Gísli og Sveinbjörn, sem nú em báðir
burtu farnir, lærðu smíði og byggingarvinnu og áttu
mikinn þátt í uppbyggingunni. Þessar byggingar allar
eru að mestu framkvæmdar með heimavinnu. Undirstaða
þeirra er ræktunin. Hún hefur þróazt með jöfnum
skrefum þessi tuttugu ár. Tún allra bændanna eru nú
orðin um 40 ha og bætast við nálega 3 ha árlega. Það
170 Heima er bezt