Heima er bezt - 01.05.1965, Page 13

Heima er bezt - 01.05.1965, Page 13
Fjölskyldan var roskin hjón, skozk, og uppkominn sonur þeirra og dóttir. Þetta var samhaldsamt fólk og allvel efnum búið, enda mjög reglusamt um alla heimil- isháttu. Ekki er það ofsagt, að vinnan var ströng. Fyrir birtingu dag hvern lögðum við af stað á engjarnar, tvær og hálfa mílu vegar. Við ungu mennirnir forkuðum upp heyi sleitulaust í steikjandi sólarhitanum, fengum klukkutíma hlé um hádegið, og héldum svo áfram sam- fellt til sólseturs. Gamli maðurinn hlóð upp heygrind- ina og samsetningsheyið, og sá var engin mannleysa. Við urðum að rembast allt sem við þoldum. Heyið drógum við saman með uxasameyki. Stúlkan vann aÚan slátt og rakstur með hestavélum. Maturinn var útilátinn nízkulaust, bæði að magni og gæðum. Eftir heyskapinn tók kornuppskeruvinnan við, — sláttur, stúkun og loks þresking. Þessi vinna var ekki alveg eins erfið og hin, en oft var vinnudagurinn lang- ur — 16 klst. Þar kom, að lokið var þessari vinnu, og fór ég þá heim og hvíldi mig um tíma. Ég var búinn að fá stálharða vöðva og fannst mér ég vera sterkur sem uxi. Fiskveiðar. í þá tíð (1894) voru leyfðar sumarfiskiveiðar á Mani- tóbavatni. Peter McArthur, sem rak timburverzlun á vestri bakka White Mud-árinnar, beint á móti Stewart- Lendingu, byggði íshús og gerði út marga báta, sem höfðu útræði frá Big Point. Sumir þeir, sem nýlega höfðu numið land í grennd við Big Point og stunduðu einnig fiskveiðar, höfðu gert sér kofa í skógarþykkn- inu úti við vatnið. Faðir minn hafði gert félag við einn þeirra, er Guðmundur Sveinsson hét. Átti ég nú að vera honum til aðstoðar, hirða um netin og róa á móti honum þungfæra flatbytningnum. Ég hélt til í kofa Guðmundar og konu hans, meðan á þessari vertíð stóð. Rétt þar hjá var verbúð, sem bræðurnir J. og B. Craw- ford áttu og höfðust við í með fjölskyldum sínum. Þarna höfðu líka Lewis-bræðurnir veiðistöð. Þeir voru þrír, og svo foreldrar þeirra. Hver fjölskyldan bjó út af fyrir sig í sinni verbúð, en útgerðin var rekin í fé- lagi. Aðalveiðin var hvítfiskur, en heilmikið veiddist líka af geddu, sugfiski o. fl. Hvítfiskurinn einn var söluvara og verðið 3 sent pundið. Tvímöstruð skúta, sem McArthur átti, fór reglu- bundnar ferðir til að sækja fiskinn og koma honum til íshússins, um 20 mílna leið. Helgi Einarsson, einn af starfsmönnum McArthurs, hafði með höndum skip- stjórnina. Helgi var glæsilegur maður, yfir 6 fet á hæð, herðabreiður og beinvaxinn, með þykka, ljósa hárgæru, sem bar hans víkinglega ætterni ótvírætt vitni. Hann var stilltur og þó ákveðinn í framgöngu, og virtist bera það með sér, að hann kæmi því fram, er hann tæki sér fyrir hendur. Allir vissu að FÍelgi var reyndur og hæfur siglingamaður. Þó kom það fyrir, að við óttuðumst um hann í októberbyljunum á 12 mílna siglingu um opið vatnið, síðan um viðsjála árósana og loks 8 mílna leið eftir hlykkjóttri ánni upp að lendingarstað McArthurs. Eitt skiptið, man ég, greip okkur alvarlegur uggur. Helgi kom þá til að sækja fisk okkar, en var áður bú- inn að hlaða skipið í norðlægari veiðistöðvum. Töldum við það nú í raun og veru ofhlaðið og létum í ljós áhyggjur okkar. En Helgi brosti bara sínu æðrulausa brosi, settist við stýrið, ók seglum fyrir norðanrokið og var á svipstundu þotinn út í óða kvikuna, þar sem hver aldan rauk yfir skipið. Meðan hann var að hverfa úr augsýn, hlaut hann að minna okkur á hina hraustu víkinga, sem forðum héldu út á ókunn höf. Vatnsstrandar (Lakeshore) -nýlendan. Frá 1894 til 1897 dreifðust íslenzku landnemamir um alla ströndina frá Big Point norður undir Kínósóta, að undanskildu 6 mílna svæði, þ. e. sérsvæði Indíánanna. Byggingar allar, bæði mannabústaðir og peningshús, voru gerðar af bjálkum, og byggingarefnið þá aldrei fjær en svo, að sækjandi væri. Stundum slógu tvær ná- granna-fjölskyldur saman birgðum sínum og bjargræð- isvegum, hjálpuðu hvor annarri að byggja yfir sig, óku til skiptis í kaupstaðinn eftir nauðsynjum og veittu hvers konar gagnkvæma aðstoð, svo sem atvik voru til. Allir landnemarnir fyrir norðan Sandy Bay-Indíána- svæðið voru fyrst í stað sjálftakar eða óleyfisásetar (squatters, þ. e. tóku sér búland án opinberra afskipta og heimildar), en enginn ásældist það, sem annar hafði tekið. Skógur var nægur til bygginga og eldsneytis, nóg um engjar og haga handa búfénu og vatnsbólið óþrjót- andi, þ. e. sjálft Manitóbavatn. Og svo, síðast en ekki sízt, var fiskurinn til að fullnægja fæðisþörfinni í veru- legum mæli. Fólkið var þakklátt fyrir þessar góðgjafir náttúrunnar og undi vel heimilum sínum, þótt ófull- komin væru, ekki sízt þeir, sem komnir voru frá upp- þornunarbyggðum eins og Þingvallanýlendu. Við þekktum allt þetta fólk og margt af því voru mætir vinir okkar. Eins og áður er að vikið, var þægi- legt fyrir alla að koma við hjá okkur í kaupstaðarferð- um. Oft var þröngt hjá okkur, en aldrei þurfti neinn frá að hverfa. Öllu erfiðara var stundum að koma út- tauguðum skepnunum í hús. Okkar hlöðufjós tók 8 tvíeyki, en pabbi fann ævinlega einhver ráð, ef koma þurfti fleirum fyrir. Einu sinni var það í blindbyl, að til okkar var leitað um að hýsa 23 akdýr. Okkur tókst að troða saman okkar eigin skepnum, þremur á bás, og fengu hinir þreyttu vegfarendur allir, bæði menn og málleysingjar, kærltomið og velkomið næturskjól. Það kom í minn verkahring að brynna eykjunum. Brunnur var enginn og varð að sækja drykkinn niður í Manitóbavatn. í öskrandi stórhríðinni þessa áminnztu nótt fór ég þangað tvær ferðir og ók heim þremur vatnstunnum í hvorri, og var það raunar ekkert smá- vik. Við tókum 40 sent á tvíeykið fyrir vatn og fóður. Félagslíf var mjög takmarkað. Samkomuhús var ekk- ert. Örðugt var líka um samfundi vegna þess, að byggð- in teygði úr sér langar leiðir eftir mjórri landræmu. Heima er bezt 173

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.