Heima er bezt - 01.05.1965, Side 18

Heima er bezt - 01.05.1965, Side 18
Þar söknuðu margir vina í stað, sem Borgafólkið var: Hjónin, sem höfðu kynnt sig svo vel. Læknirinn, sem fjöldinn stóð í mikilli þakkarskuld við. Húsfreyjan, sem ætíð var reiðubúin að taka á móti gestum og gangandi, hvort sem var á nóttu eða degi, veita þeim beina og gistingu, er þeir komu kaldir og hraktir í hríðarveðri úr skaftfellsku stórvötnunum. — Og ekki fann unga fólkið sízt til að skilja við börnin þeirra, sem það hafði alizt upp með og unni eins og systkinum. Þess var getið hér á undan að Eyjólfur Bjarnason hefði tekið við verkstjórn í Borgum nokkrum árum áður en Þorgrímur flutti þaðan. Hann bjó þar einnig eftir að Þorgrímur fór, því það vor fékk hann ekki kaupanda að jörð og húsum og enda einhverjum grip- um. Hann tókst á hendur umsjón þeirra eigna. Hann var þá giftur fyrir 2—3 árum. Kona hans var Þórdís Sig- urðardóttir frá Slindurholti á Mýrum. Er þau höfðu búið þar í 2 ár, keypti Guðmundur Jónsson, sem síðar bjó á Nesi í Selvogi jörðina, en Eyjólfur og Þórdís fluttu þá til Reykjavíkur, því þau munu hafa kosið að vera í nágrenni við vini sína lækn- ishjónin frá Borgum. Það var fleira en fólkið, sem Þorgrímur tók sér fyrir hendur að lækna. Á þeim árum, sem hann var hér, voru hér engir dýralæknar, að minnsta kosti ekki aust- anlands. Menn leituðu því oft til hans eftir meðölum handa skepnum er veiktust, eða ráðleggingum um með- ferð þeirra og leiðbeindi hann jafnan eftir beztu getu. Bráðafár í sauðfé magnaðist mjög í Hornafirði á ár- unum 1890—1900. Einkum drap það lömb og vetur- gamalt fé. Þá voru fráfærur almennar og settu menn flest hagalömbin á vetur. Ullin var aðalsöluvaran og til þess að fá sem mest af henni þurfti að hafa sauða- stofn. — Bráðafárið gekk nokkuð misjafnt yfir og var langskæðast á Út-Nesja jörðunum, sem næstar voru sjónum. Þar misstu menn margt af lömbunum strax á haustin, er gras fór að falla og það sem eftir lifði, hrundi svo niður veturgamalt — á næsta hausti, svo til- tölulega fátt komst yfir 2. veturinn, en eftir það virt- ist það hafa mótstöðuafl gegn fárinu. Pestin var orðin svo mögnuð að útlit var fyrir, að sauðfjárbúskapur legðst niður, á þeim jörðum í sveit- inni, sem taldar voru þó bezt fallnar til sauðfjárræktar, Út-Nesjajörðunum, en þar þurfti lítið að gefa fé og sauðir gengu þar úti á hverjum meðalvetri. Þorgrímur sá að hér þurfti úrbóta og honum hugkvæmdist ráð sem dugði. Hann lét færa sér nýru úr nýdauðum bráða- fárskindum; úr þeim bjó hann til bóluefni og tók að bólusetja féð. Svo brá við að engin kind drapst, af því sem hann bólusetti, sem var aðallega lömb og vetur- gamalt fé.1) Hann bólusetti féð sjálfur, með sérstakri vandvirkni og hreinlæti, enda man ég ekki að þess væri !) Hann mun hafa misst einhver lömb, sem hann hafði fyr- ir tilraunadýr, er hann var að prófa bóluefnið. Jóhanna Knudsen og Þorgrimur Þórðarson. getið, að nokkur kind hefði orðið hölt, því síður meira veik. Hann bólusetti kindurnar innan á þjóið, eins og enn er gert, en hann lét klippa vandlega blett á því og um leið þvo hann úr sótthreinsunarvatni (karbólvatni) Þurfti því allmarga — 5—6 menn — við að bólusetja, svo fljótt gengi og sá sem sprautaði þyrfti aldrei að bíða. Þessu hélt hann áfram um nokkur ár, eða þangað til danska bóluefnið, sem margir sennilega muna, fór að flytjast hingað og varð þá fáanlegt í verzlunum, en það mun hafa verið á fyrstu árum eftir aldamótin. Þor- grímur kenndi ýmsum að fara með það og bólusetja féð, en ekki þótti það eins öruggt gegn fárinu og bólu- efni það, er hann bjó sjálfur til. Þorgrímur hafði mikinn áhuga á framförum í bún- aði og lét þar brátt til sín taka, eftir því sem aðstæður leyfðu á þeim árum. Ábýlisjörð hans, Borgir, var lítil og ekki til þess fall- in að framfleyta stóru búi nema með miklum umbót- um. Hún var ein af hinum mörgu Bjarnanesshjáleigum og í tölu hinna minni. Túnið var lítið og þýft og mun vart hafa gefið af sér meira en 2 kýrfóður. Engjar voru fremur lélegar, austan Fljóta í svo nefndum Stórhólma, en það var bót í máli að jörðin átti í Skógey gott star- engi, en hey af því reyndist jafn gott töðu til gjafar. Framhald. 178 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.