Heima er bezt - 01.05.1965, Page 23

Heima er bezt - 01.05.1965, Page 23
ana, sem röltum fram og aftur um lestina eða settumst á gólfið. Loksins sofnaði þó félagi minn á gólfinu út við byrðinginn, en ég gat ekki sofnað, en náði í sæti á hom- inu á lestarhlera, en þar svaf margt fólk, bæði karlar og konur í kringum mig. Alltaf var ég að líta á klukkuna, en hún þokaðist hægt áfram. Ég held að klukkan hafi verið um fjögur um nóttina, þegar ung stúlka, sem svaf þarna rétt hjá mér á lestar- hleranum, reis upp og sagði: „Ég hef séð að þú hefur ekkert getað sofið í nótt. En nú hef ég sofið í tvo til þrjá tíma. Á ég ekki að lána þér teppið mitt og þú mátt leggjast í mitt pláss.“ Ég tók þessu tilboði hennar með þökkum og steinsofnaði strax. Ekki man ég hvað ég svaf lengi, en þegar ég vaknaði, sat stúlkan, þar sem ég hafði áður setið, og varð nú fegin að leggjast aftur undir sitt hlýja teppi. Félagi minn var líka vaknaður og nú skein morgun- sólin glatt. Við félagar fórum því upp á þilfar. — Hin langa nótt var liðin. Innsiglingin inn Oslo-fjörð er ákaflega fögur. Innst inni er fjörðurinn svo mjór, að vel sér til lands til beggja hliða. Strandlegjan er þéttbýl og er innst kemur í fjörðinn, ber mest á sumarbústöðum beggja vegna fjarð- arins. Nú leið tíminn fljótt, því margt var að sjá, því að beggja vegna er fagurt og frjósamt land. — Klukkan um sjö að morgni er komið að bryggju, eins og áætlað hafði verið. Þarna skildu í svipinn leiðir mínar og danska stúdents- ins, því að systir hans kom niður á bryggju að taka á móti honum, en ég gekk einn inn í borgina á sólheitum björtum júlímorgni. Fyrst af öllu fór ég að leita uppi rakarastofu, því að ég leit hálf illa út eftir næturvök- una í lestinni. Ég kom fljótlega auga á rakarastofu skammt frá bryggjunni. Norðmenn eru árrisulir, og þótt klukkan væri enn ekki orðin átta, var rakarastofan opin. „Ég vil fá klippingu og rakstur,“ sagði ég, er ég kom inn. Mér var tekið þarna með bugti og beygingum, og eftir nokkrar mínútur var einn rakarinn búinn að raka mig og klippa. „Á ég ekki líka að þvo hárið?“ spurði rakarinn undur hlýlega. Ég samþykkti það. Þvotturinn á hárinu tók að mér fannst, miklu lengri tíma, en klipp- ingin og raksturinn. Þegar þvottinum var lokið, hvíslaði rakarinn að mér með sínum blíðasta málrómi: „Vill herrann ekki líka fá andlitsbað}u Mér var nú ekki vel ljóst í hverju það væri fólgið en samþykkti það þó hálf hikandi. Og nú upphófst ein undraverð athöfn. Sjóðheitum og köldum dúkum var slett á andlitið á mér á víxl og svo var ég nuddaður og smurður og smurður aftur og nuddaður. Þegar ég loks varð laus, fannst mér sem hver vöðvi í andlitinu væri stífur og strekktur og húðin á andlitinu fannst mér svo þykk, eins og hún væri orðin tvöföld. — Ég spurði svo hvað þetta kostaði, og brá mér heldur í brún, þegar rakarinn sagði að þetta kost- Georg Nielsen, stúdent, upp við Frognersœteren, gömul sel rétt við Oslo. aði aðeins 10 krónur og fimmtíu aura. — Þetta var sama upphæð og dagkaup verkamanns var í Noregi á því ári. Það lækkaði ískyggilega í buddunni minni við þetta. Ég fékk gistingu í Hotel Bondeheimet og skoðaði merka staði í borginni næstu daga. Síðan náði ég sam- bandi við danska stúdentinn ferðafélaga minn. Við ákváðum að fara saman í járnbrautarlest til Eiðsvallar, snemma næsta morgun. Eiðsvellir er merkur sögustað- ur. Þar er gamall þingsalur í gömlu timburhúsi. Þar var haldinn merkur þingfundur hinn 17. maí 1814, þegar Noregur losnaði úr tengslum við Danmörk. Þessi gamli þingsalur er til sýnis fyrir ferðamenn. Er þar allt í saln- um með sömu ummerkjum og þegar þessi merki þing- fundur var þar haldinn. Frá járnbrautarstöðinni er dálítill spölur að gamla þingstaðnum. Við gengum þangað og fengum að skoða þingsalinn. Þetta er loftsalur, að nokkru undir þaki og húsgögnin eru fátækleg og einföld, en nákvæmlega í sama stíl og þau voru, er hinn sögulegi þingfundur var haldinn 17. maí 1814. Eiðsvellir er sveitaþorp og þéttbýlt sveitahérað með um 12 þúsund íbúum. Arið 1923, var þorpið mjög fá- mennt. Það liggur við suðurendann á stöðuvatninu Mjösen. Það er sögufrægðin en ekki fólksfjöldinn, sem veldur því, að ferðamenn heimsækja Eiðsvöll. Nú eru risin þarna upp sumarhótel og gistihús, en þegar ég kom þar voru aðeins sumardvalarherbergi og veitingar í einkahúsum. Þegar við félagarnir komum frá því að skoða þingsal- inn sögufræga, fórum við inn í lítið veitingahús að fá okkur morgunverð, sem var þó aðeins smurt brauð og rnjólk. Við ætluðum svo að dvelja þarna og skoða okkur um til klukkan sjö um kvöldið, þá fengum við ferð með jámbraut aftur til Osloar. Þetta litla veitinga- Heima er bezt 183

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.