Heima er bezt - 01.06.1965, Page 3
NUMER 6
JÚNÍ 1965
15. ARGANGUR
wrímd
ÞJ OÐLEGT HEIMILISRIT
Efnisyíirlit
Þórarinn Kr. Eldjárn, hreppstjóri Gestur Vilhjálmsson Bls. 200
Landnámsþættir (framhald) S. B. Olson 204
Þorgrímur Þórðarson, héraðslæknir Hjalti Jónsson, Hólum 208
Plönturnar og árstíðirnar Steindór Steindórsson 212
Myrkfælni Guðmundur B. Árnason 216
Sjötug æskuvinkona Steindór Steindórsson 220
Hvað ungur nemur — 223
Þingvellir við Öxará Stefán Jónsson 223
Dægurlagaþátturinn Stefán Jónsson 228
Hanna María (7. hluti) Magnea frá Kleifum 229
Bréfaskipti 234
Að vinna, bls. 198. — Myndasagan: Óli segir sjálfur frá, bls. 235. — Bréf frá Eyþóri Erlends-
syni, bls. 236.
Forsíðumynd: Þórarinn Kr. Eldjárn. (Ljósmynd: Bjarni Sigurðsson.)
Káputeikning: Kristján Kristjánsson.
HEIMA ER BEZT . Stofnað árið 1951 . Kemur út mánaðarlega . Áskriftargjald kr. 200.00 . Gjalddagi 1. apríl . í Ameríku $5.00
Verð í lausasölu kr. 25.00 heftið . Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar . Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 45, sími 2500, Akureyri
Ábyrgðarmaður: Sigurður O. Björnsson . Ritstjóri: Steindór Steindórsson frá Hlöðum . Prentverk Odds Bjömssonar h.f., Akureyri
vinnunnar, og hún verður að gefa honum þau laun, að
hann geti ráðið lengd vinnutímans og notið hæfilegrar
hvíldar og tómstunda. Allt slíkt eru félagsleg viðfangs-
efni, sem fara verður með eftir leikreglum þjóðfélagsins
hverju sinni. Vér verðum oft að játa, að vér höfum ekki
efni á þessu eða hinu. En á engu hefir þjóð vor síður efni
en að ala börn sín upp í lðjuleysi, eða andúð á vinnu.
I þessum mánuði fögnum vér frelsidegi þjóðar vorrar.
A þeim degi og öllum dögum ársins, skulum vér minn-
ast orða fyrsta forseta vors, að lífið er að vinna, eða ef
til vill mætti einnig orða það svo, að án vinnu sé ekkert
líf. Vinnan er þjónusta við lífið sjálft. Ef vér hlýðum því
lögmáli í uppeldi þjóðar vorrar mun henni vel farnast.
St. Std.
Heima er bezt 199