Heima er bezt - 01.06.1965, Side 5

Heima er bezt - 01.06.1965, Side 5
Tjörn i Svarfaðardal. Grenjaðarstað og móðir sr. Þorsteins í Stærra Árskógi, var Olöf Jónsdóttir prests Halldórssonar á Völlum. M. d. Petrína kona sr. Kristjáns á Tjörn og móðir Þórarins var dóttir Hjörleifs prests Guttormssonar, síð- ast á Völlum. Allt eru þetta kunnar ættir og ekki þörf á, að rekja það nánar. Foreldrar Þórarins voru valinkunn sæmdarhjón. Sr. Kristján var góður prestur. Einkum var hann annálaður fyrir góðar tækifærisræður og þótti honum takazt bezt, þá er hann mælti eftir þá, sem lægst stóðu í mannfélags- stiganum eða ef einhver brotalöm hafði verið talin á hegðan þeirra. Um það fór hann mjúltum höndum og snilliorð voru honum þá tiltæk. Hann var alkunnur humoristi og kunni manna bezt að segja frá. Glaðvær og skemmtilegur á heimili og hrókur alls fagnaðar í vina- hóp. M. d. Petrína var góð kona, glaðvær og skemmtileg, mild og hlý í skapi og mátti ekkert aumt sjá. Hún fórn- aði sér fyrir mann og börn og gekk heldur alls á mis sjálf, en að þau skorti nokkuð það, sem hún gat í té látið. Þórarinn ólst upp með foreldrum sínum og gekk snemma að allri algengri vinnu eins og gerðist í sveit. Heimilið á Tjörn var alla jafna mannmargt, og eftir að börn þeirra prestshjónanna, fóru að stálpast, var þar oft- ast heimiliskennari, meira eða minna á hverjum vetri, sem kenndi þeim og fleiri bömum og unglingum úr nágrenninu. Heimilið var því menningarmiðstöð á lík- ann hátt og Héraðsskólar eru nú. Laun presta voru ekki rífleg í þá daga og mun því ekki hafa verið þar auður í garði. Því var þar, sem annars- staðar unnið hörðum höndum og gerðist Þórarinn fljótt afkastamikill verkmaður. Hann varð snemma fylgdarmaður föður síns, er hann fór til prestsverka, á annexíurnar eða aðra staði í presta- kallinu. Þá var enginn vegarspotti til, sem veg mætti kalla og ekkert farartæki nema hesturinn. Oft reyndi því á þrek og karlmennsku, þegar snjór var mikill á vetrum og ófærð að komast leiðar sinnar. Varð Þórarinn fljótt ágætur ferðamaður og hefur alla tíð ver- ið létt um að ferðast gangandi. Eg hef hér að framan getið nokkurra áa hans og svo foreldra. Sézt þar að forfeður hans era prestar í marga liðu. Því hefði mátt vænta þess að hann hefði fetað í fótspor þeirra, gengið í Lærða-skólann og gerzt prestur, eða annar embættismaður. En ég held að hugur hans hafi ekki Iinigið í þá átt. Hann innritaðist í Gagnfræða- skólann á Akureyri haustið 1903, en hafði þó verið um Heima er bezt 201

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.