Heima er bezt - 01.06.1965, Page 7

Heima er bezt - 01.06.1965, Page 7
þar inn og þágu góðgerðir. Auk þess áttu margir menn, baeði nær og fjær, erindi við húsbóndann og mátti því segja að þar væri jafnan opið hús. Hlutu þar allir hjart- anlegar móttökur og góðan beina. Þeim hjónum, Sigrúnu og Þórarni, varð auðið fjögurra barna. Þau eru: 1. Þorbjörg, gift Sigurgeir Stefánssyni, vélfræðingi, bú- sett í Reykjavík. 2. Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður, kvæntur Elall- dóru Ingólfsdóttur. 3. Hjörtur, bóndi á Tjörn, kvæntur Sigríði Hafstað. 4. Petrína Soffía, gift Stefáni Arnasyni, rafvirkja, bú- sett á Akureyri. Alls eru afkomendur þeirra nú 22. Systurson Sigrún- ar, Þórarin Pétursson, ólu þau upp frá bernsku til full- orðinsára. Mörg önnur börn og unglingar voru þar langdvölum, sum árum saman. Frú Sigrún andaðist 5. febrúar 1959. Þórarinn tók við búi á Tjörn vorið 1913 og bjó þar óslitið til ársins 1950, að Hjörtur sonur hans tók við. í búskapartíð Þórarins tók jörðin miklum stakka- skiptum. Hann sléttaði túnið og stækkaði það mikið. Lagði alllangan engjaveg yfir foræðis-flóa og mest eða allt þetta var gert áður en nútímatækni kom til sögunnar. Byggði upp öll hús á jörðinni, úr varanlegu efni. Átti jafnan afurðamikinn búpening, enda fóðrun og aðbúð í bezta lagi. — Þau hjón voru alltaf hjúasæl, voru sum hjú þeirra þar árum saman, og sáu þau að nokkru leyti um vöxt og viðgang búsins. Þórarinn var að vísu ágætur bóndi, en eins og að líkum lætur var hann alloft fjar- verandi bæði innan hrepps og utan og gat því ekki sinnt miklum störfum heima á meðan skólatími stóð yfir. Þó var ekki ótítt að hann gripi í erfiðustu verk, þegar skóla- tíma lauk á daginn. Þórarni voru snemma falin ýms trúnaðarstörf, af sam- tíð sinni. Þegar ungmennafélag Svarfdæla var stofnað árið 1909 var hann einn af stofnendum, og átti sæti í fyrstu stjórn þess. Starfaði alllengi fyrir það félag að ýmsum verkefnum, kom m. a. fram á leiksviði fyrir það nokkrum sinnum. Hann hefur lengi átt sæti í fulltrúaráði Sparisjóðs Svarfdæla og um mörg ár verið í stjórn hans. Átti sæti í hreppsnefnd Svarfaðardalshrepps um nokkurt skeið. Skipaður hreppstjóri, árið 1929 og gegnir því embætti enn. Var formaður Skattanefndar, frá því hann tók við hreppstjórn og þar til hún var lögð niður, nú fyrir stuttu síðan. Enn er hann þó fulltrúi skattstjóra hér í hreppn- Framhald á bls. 222 Þórarinn Kr. ElcLjárn og ungu hjónin á Tjörn, Sigriður Hafstað og Hjörtur Þórarinsson, með börnum sinum. Heima er bezt 203

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.