Heima er bezt - 01.06.1965, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.06.1965, Qupperneq 15
fljótt. Fjallkonan getur þess 12. apríl 1903, að Þorgrím- ur læknir sé kominn heim til sín vestan af Síðu og segir að strandmennirnir séu að mestu grónir og líði vel „eru þeir allfrísldr og kátir“. Þeir voru mjög þakklátir íslenzku læknunum fyrir þá miklu hjálp, sem þeir veittu þeim og eftir að þeir komu heim til Þýzkalands, sendu þeir þeim bréf, til að votta þeim þakkir, sem þeim fannst þeir vart fá með orðum lýst. Þeir sögðu að þýzkir læknar, sem hefðu skoðað þá, væru mjög undrandi yfir því, að íslenzkir sveitalæknar skyldu geta unnið slík afreksverk í skurð- lækningum, sem hér hefðu verið gerð. Fyrir læknis- hjálpina voru báðir læknarnir, Bjarni og Þorgrímur, heiðraðir með því, að þýzk stjórnarvöld sæmdu þá prússnesku rauðu arnarorðunni, sem þótti á þeim dög- um stórkostleg viðurkenning. Nú munu einhverjir spyrja, hvort Þorgrímur hefði skilið svo við læknishérað sitt, Hornafjarðarhérað, að það hefði verði læknislaust allan tímann, sem hann var vestur á Síðu yfir strandmönnunum. — Það gerði hann ekki. Svo vel vildi til, að hjá honum var í Borgum, þennan vetur, læknanemi sem heima átti í Reykjavík. Hann mun hafa verið búinn að ljúka skólanámi, að mestu eða öllu leyti. Mun hafa átt eftir einn vetur í útlöndum, en einhverra ástæðna vegna, fór hann ekki þangað um haustið, heldur gerðist hann aðstoðarlækn- ir Þorgríms næsta vetur, og var í Borgum. Hann hafði kynnt sig prýðilega og fól Þorgrímur honum læknis- héraðið í fjarveru sinni. Honum fór það vel úr hendi og ávann hann sér traust sýslubúa, enda hafði hann nokkuð kynnzt fólki áður en Þorgrímur fór. Maður þessi var Valdimar Steffensen, sem síðar var læknir á Akureyri. Árið 1902 fóru fram Alþingiskosningar. Þá var í kjöri hér í Austur-Skaftafellssýslu séra Jón Jónsson á Stafafelli, sem hafði verið þingmaður Austur-Skaftfell- inga um margra ára skeið. Var hann í boði fyrir Heima- stjórnarflokkinn, sem þá hafði nýlega verið stofnaður. Þá höfðu allmargir kjósendur í kjördæminu, þar á með- al flestir Öræfingar, skorað á Þorgrím lækni að vera í kjöri. Hann tók þá áskorun til greina og gaf kost á því. Hlaut hann kosningu með allmiklum meirihluta. Var aukaþing háð þetta sumar — 1902 — og samþykkt breyting á stjórnarskránni. Varð því að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga 1903. Þá gaf Þorgrímur kost á því að vera í kjöri í annað sinn og munu sömu menn aðallega hafa staðið að því og árið áður. Þá bauð séra Jón sig ekki fram, en all- margir skoruðu á Þorleif Jónsson í Hólum að vera í kjöri. Hann segir í ævisögu sinni, að hann hafi gefið kost á því, þótt hann væri nærri því viss um að Þorgrímur ynni, enda fór svo. Kjörfundurinn var haldinn í Flatey á Mýrum 6. júní og kosið í heyranda hljóði, eins og lög mæltu fyrir. Þorgrímur var kosinn með 5 8 atkvæð- um, en Þorleifur hlaut 39. Þorleifur segir svo lítið eitt nánar frá kosningunni og endar með þessum orðum: „Ekki er þörf að ræða hér meira um þessa kosningu. Við Þorgrímur vorum lcunningjar eftir sem áður. Stundum leiðir slíkt til ósamlyndis og jafnvel fjandskapar, sem er næsta undar- Iegt, ef elcki er beitt bolabrögðum eða óheiðarleik í málflutningi.“ Þetta vor sótti ég (sem þetta rita) einu sinni Þor- grím lækni til sjúklings, áður en kosningar fóru fram. Hann þurfti að koma við á bæ, í bakaleið, sem var í leiðinni. Bóndi bauð okkur kaffi og þáðum við það. Þorgrímur og hann fóru að tala um kosningarnar er fóru í hönd og töluðu um þær í mesta bróðerni, en ég þóttist vita og enda skilja á tali þeirra, að hann væri stuðningsmaður Þorleifs. Eg man að Þorgrímur sagði: „Við Þorleifur höfum samið um það, að hvernig sem þessi kosning fer, verði vinátta okkar óbreytt.“ Og ekki varð annars vart, enda virtust báðir gæta fullkom- ins drengskapar. Þorgrímur var alþingismaður Austur-Skaftfellinga til ársins 1908, er kosið var um „Uppkastið“, en þá gaf hann ekki kost á því að fara í framboð. Þorleifur í Hólum segir í ævisögu sinni: „Hann sat á 4 þingum, fyrst á aukaþinginu 1902 og reglulegum þingum 1903, 1905 og 1907 og vann af alúð að því, að fé yrði lagt hér til vegabóta. Var fyrst haf- izt handa í Suðursveit, síðar á Mýrum og var mikil samgöngubót að þeim vegagerðum.“ Þorgrími lækni og fólki hans, var haldið virðulegt kveðjusamsæti á Höfn 29. apríl 1905, en þau fóru héðan alfarin eftir þau mánaðamót (apríl—maí). Voru þar margar ræður fluttar, einnig frumort kvæði. KVÆÐI flutt í samsæti við burtför Þorgríms Þórðarsonar Iæknis og konu hans Jóhönnu Lúðvíksdóttur, frá Borgum í Hornafirði, 29. apríl 1905. Nú komið er sumar með lífskraft og Ijós, að leysa burt ísinn og snjáinn. Og vekja svo marga þá visnuðu rós í vetur er sýndist þó dáin. Oss náttúran færir nú fegurð og ást og fleira, er andi vor getur að dást. En annað samt huga vorn hrífur í dag, nú hér eru vinir að skilja. Það hljómar frá sveit vorri saknaðarlag, því sízt er það hennar að vilja. En þið, sem nú eruð að búast á braut, hins bezta æ njótið í gleði og þraut. Framhald á bls. 222 Heima er bezt 211

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.