Heima er bezt - 01.06.1965, Page 16

Heima er bezt - 01.06.1965, Page 16
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM: Plönturnar os árstíðirnar A llir hafa veitt því eftirtekt, hversu gróður jarðar skiptir um svip eftir árstíðum, og um leið j Vl hversu lögbundin þau svipbrigði eru. Á vet- urna liggja plönturnar í dvala, jafnvel þótt vet- ur sé mildur og auð jörð tímunum saman. Þó þekkjum vér líka, að við langa hlýindakafla á útmánuðum taka brum trjánna að þrútna, og einstöku blóm springa út, og jafnvel byrjar að slá grænum lit á ræktaða jörð. Um þetta fyrirbæri á tungan hið ágæta orð góugróður. En þegar vorar, vaknar öll náttúran af vetrarsvefnin- um. Um þær mundir sem snjóa leysir koma farfuglarnir sunnan úr löndum, og samtímis taka fyrstu spírurnar að gægjast úr moldinni, og brum trjánna að opnast. Brátt taka fyrstu vorplönturnar að blómgast, svo sem sóleyjar og fíflar, og fyrr en varir er jörðin græn. Eftir því sem dagarnir líða blómgast fleiri og fleiri tegundir, og vér sjáum, að þær gera það stöðugt í sömu röð ár eftir ár. Loks stendur öll jörðin í hásumarskrúði. En sumarið líð- ur fljótt hér norður undir heimskautsbaug. Haustið nálgast. Fyrstu vorplönturnar þroska fræ sín og visna. Hinar, sem meira voru síðblómstra bætast í hópinn, haustlitirnir fara að gægjast fram á laufi trjáa og runna. Blómum fækkar. Lauffallið hefst, og fyrr en varir er grasið sölnað, og laufið fokið af trjánum, fræhirzlur blómanna tæmdar, og aldin þeirra og fræ fokin út í veð- ur og vind. Veturinn er aftur á næstu grösum. Allt eru þetta svo sjálfsagðir hlutir, að vér veitum þeim naumast eftirtekt, því síður finnast oss þeir umtals- verðir, og allra sízt flögrar það að oss, að af þessu hátt- erni náttúrunnar megum vér draga marga mikils verða lærdóma, sem að haldi megi koma í daglegri önn og lífs- baráttu. Vér gleðjumst að vísu í gróandi vorsins og finn- um til ofurlítils sársauka, þegar vér sjáum haustvindana feykja visnuðum blöðum að fótum vorum, en svo ekki meir. En sannleikurinn er sá, að af atferli tiltekinna plantna í þessum efnum má margt læra, og viðbrögð plantnanna gegn skiptandi árstíðum er margslungin fræðigrein, og harðla nytsamlegt að vita deili á henni, til að skilja möguleika ræktunar og jarðyrkju. Fræði- grein þessi er kölluð „fænologi“ á erlendum málum. Mér hefir dottið í hug að kalla hana vaxtarfrœði á íslenzku, á meðan annað orð betra finnst ekki. Það er löngu kunnugt, að viðbrögð plantnanna gegn árstíðum eru lögmálsbundin. Sagan endurtekur sig í lífi þeirra ár frá ári á sama tíma. Þau fyrirbæri, sem aug- ljósust eru og allir, sem opin hafa augu, geta fylgst með án sérþekkingar, eru laufgun og gróandi, fyrsta blómg- un, aldinþroskun og lauffall. Þegar þetta hefir verið kannað árum saman og á ýmsum ólíkum stöðum, hefir það gefið mönnum svör við fjöldamörgum spurningum um búskap náttúrunnar, og þau svör hafa verið hagnýtt í daglegu lífi mannanna. Langt er síðan menn hófu að gera reglubundnar at- huganir í þessu efni á einstöku stöðum. Elztar eru at- huganir Japana. Þar eru til skýrslur um blómgun kirsi- berjatrjánna allt frá árinu 812. Á Vesturlöndum varð sænski grasafræðingurinn, Linné brautryðjandi í þessu efni eins og svo mörgu öðru innan grasafræðinnar, en ýkjulaust er að kalla hann föður nútíma grasafræði. Árið 1751 lýsti Linné tilgangi og starfsaðferðum við rann- sóknir á tímaviðbrögðum plantnanna og hversu vexti þeirra væri háttað á hverri árstíð. Benti hann og á, hvert gildi slíkar rannsóknir hefðu fyrir landbúnaðinn. Hann fékk komið á fót 18 athugunarstöðvum í Svíþjóð, og var með þeim lagður grundvöllur að því, sem hann kall- aði almanak plantnanna, þ. e. dagsetningar fyrir hvert einstakt atriði í lífi tiltekinna tegunda, svo sem blómgun þéirra, aldinþroskun, o. s. frv. Allt frá þessum tíma hafa slík tímaviðbrögð plantn- anna verið könnuð af misjöfnu kappi víða um lönd. Á Norðurlöndum var Norðmaðurinn Schiibeler brautryðj- andi í þessum efnum á öldinni sem leið, og vann þar geysimikið starf. Það er þó fyrst á þessari öld, sem vaxt- arfræðilegar rannsóknir hafa fengið fast form og verið skipulagðar svo um munar. Árið 1924 var stofnað til alþjóðlegra samtaka um vaxtarfræðirannsóknir að forgöngu Royal Meterologi- cal Society í London. Leitaði félagið fyrst og fremst til rannsóknarstöðva í landbúnaði og jarðrækt víða um heim. Undirtektir voru mjög góðar, svo að fjórum árum seinna eða 1928, voru komnar á fót yfir 2000 vaxtar- fræðilegar rannsóknarstöðvar víðsvegar á meginlandi Evrópu. Hafði Þýzkaland þar forystuna, því að þar varð vísindamönnum brátt ljóst, að hér var um grundvallar- vísindi að ræða fyrir jarðyrkju en þó sérstaklega korn- yrkjuna. Lögðu þeir í upphafi einkum kapp á að kanna viðbrögð hinna vetrarstæðu korntegunda, vetrarrúgs og vetrarhveitis. 1939 unnu yfir 10 þúsund menn að þess- 212 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.