Heima er bezt - 01.06.1965, Page 17

Heima er bezt - 01.06.1965, Page 17
um rannsóknum í Þýzkalandi einu. Þá voru komnar upp 350 stöðvar á Bretlandseyjum, og auk þess höfðu Canada og Bandaríkin bætzt í hópinn. Á styrjaldarárunum lögðust þessar rannsóknir víða niður, og allt samstarf um þær landa á milli rofnaði. En þær voru teknar upp aftur af því meira kappi að styrj- öldinni lokinni, og nú eru þær reknar í nær öllum Evrópulöndum, jafnt austan járntjalds og vestan, í Israel, Japan, Ástralíu, Suður-Afríku, Argentínu og Banda- ríkjunum. Hafa Bandaríkjamenn einkum lagt stund á vaxtarfræði rannsóknir vegna innflutnings nýrra teg- unda, og til að kanna aðlögun yrkiplantna við breytta staðhætti. f flestum þessum löndum eru rannsóknir þess- ar stundaðar í samvinnu við veðurfræðistofnanir, enda grípa þessar rannsóknir mjög hvor inn á svið annarrar. Vér skulum nú athuga stuttlega um hvað vaxtarfræðin fjallar, tilgang hennar og starfshætti. Við allar þessar rannsóknir er frumskilyrðið að finna tiltekin stig í árlegum vexti að þroska plantnanna, sem bæði eru hverjum manni augljós, eru örugglega tíma- bundin, og helzt koma fram á skömmum tíma hverju sinni. Má þar fyrst nefna blómgun, þ. e. þegar fyrstu blóm plöntunar springa út á hverju vori og um leið aðalblómgunarskeið hennar, í öðru lagi er gróandin ár hvert, þegar fyrstu blaðbroddarnir gægjast upp úr mold- inni og um leið laufgun trjánna, bæði þegar fyrst sér á blöðin í brumhnappnum og þegar blöðin breiðast út, svo að tréð er allaufgað. Þá má einnig nefna tímasetn- ingu fyrir fyrstu aldinþroskun tegundarinnar á sumrinu, þegar blöðin taka að skipta lit og lauffallið á haustin. Allt eru þetta mikilvæg stig í árlegum vexti plöntunar og auðkönnuð. Einnig má nefna önnur tímabundin fyr- irbæri í daglegum störfum, sem fylgja þessu eftir, kem- ur það einkum fram í ræktun, svo sem sáning og upp- skerutími. Margt er það vitanlega fleira í vaxtarferli plantnanna, sem vaxtarfræðin tekur til athugunar, t. d. lengdarvöxtur árssprota, gildnun trjástofna og þá um leið árlegur vaxt- arauki, vöxtur blaða og aldina. Þetta eru allt mikilvæg atriði, sem hafa stórkostlegt gildi í sambandi við fram- leiðslu. En þessar síðartöldu rannsóknir verða ekki gerð- ar nema af sérfróðum mönnum, og til þeirra þarf alls konar tilfæringar. Haga verður rannsóknum þessum með sérstökum hætti í hverju landi eftir því sem staðhættir eru, allt um milda og nauðsynlega samvinnu landa á milli. Til rannsóknanna eru helzt valdar þær tegundir plantna, sem mesta útbreiðslu hafa víða um lönd, því að slíkt léttir samanburð og gerir hann kleifan í ýmsum löndum. Þannig tengjast ýmsir hlutar jarðarinnar saman, þótt hver um sig hafi sín sérkenni. Margar tegundir eru t. d. sameiginlegar með Mið-Evrópu og Norðurlöndum, og aftur með Miðjarðarhafslöndunum og Mið-Evrópu, þótt Miðjarðarhafsflóran sé með æði miklum suðrænni blæ. Grípa þannig plöntulistar landanna hver inn í annan, svo að hægt er að stunda keðjubundnar rannsóknir á flórunni. Margt verður þó alltaf vafasamt, þegar löndin eru borin saman, og því hefir verið gripið til þess ráðs að stofna vaxtarfræði garða. í þeim eru ræktaðar fáar tegundir, sem fjölgað hefir verið við kynlausa æxlun af sama einstakling, svo sem græðlingar af sama tré, sem dreift er milli fjarlægra staða. Erfðaeigindir, plöntueig- staklinganna eru þá alls staðar hinar sömu, svo að þær geta ekki truflað samanburðinn, né orkað á misjafnan vaxtarhraða eða tímaviðbrögð. Meðferð þessara plantna er alls staðar hin sama, þannig eru þær ræktaðar í sams- konar jarðvegi, sem búinn hefir verið til eftir föstum stöðlunarreglum. Þegar svo er umbúið, er það veður- farið eitt og tímaskipti árstíðanna, sem ólíkt er á ólíkum stöðum. í Noregi eru nú fimm slíkir tilraunagarðar. Byrjað var í þeim í smáum stíl með einungis fimm trjá- og runnategundir, en síðar hefir nokkrum verið við bætt. En þótt hinar ræktuðu tegundir séu mikils virði, verð- ur þó umfram allt að fylgjast með villiplöntunum. Það er margt, sem orkað fær á vöxt plantnanna á hverjum tíma. Þannig hafa sumir haldið, að hin 11 ára löngu sólbletta- tímabil orki á vaxtartímann, þó er það óvíst, en ætla má að vaxtarfræðilegar rannsóknir geti skorið úr því hvort svo sé. Það er almennt talið að í bæjum og þéttbýli sé vaxtar- hraði plantna meiri en annars staðar. Þakka menn það einkum því, að þar sé hlýrra en á bersvæðinu. En vera má einnig, að aukið kolsýrumagn sé hér og að verki. Af kolsýrunni, sem allt líf jarðar hvílir á, er einungis 0.03% í andrúmsloftinu, þetta er undirstöðufæða plantnanna, en magnið er svo lítið, að það liggur við lágmark þess, sem plöntunum er nauðsynlegt sér til viðhalds. Örlítil aukning kolsýrumagns lofsins gæti því haft undraverð áhrif á vaxtarhraðann, og um leið á viðbrögð plantnanna við tímaskipti. Enda þótt vaxtarfræðin sé fyrst af öllu einn þáttur grasafræðinnar, þá kemur hún einnig inn á svið veður- fræði eins og ljóst má vera. Til veðurþjónustu eru settar upp athugunarstöðvar víðsvegar um löndin. Rannsóknir þeirra gefa mynd af veðurfari þéss héraðs eða landshluta, sem þær eru í. Hinsvegar er fullkunnugt, að veðurat- hugunarstöðvarnar eru dreifðar, og milli þeirra verða margir staðir og svæði, sem í veðurfari víkja verulega frá því, sem stöðvarnar segja til um. Vér getum jafnvel fundið þetta án allra mælitækja þegar vér förum um landið, hvernig skjól og staðhættir orka á hitastigið, bæði í heild og hina einstöku daga. Skóglendi er einkum frá- brugðið bersvæðinu í þessum efnum. Slík frábrigði koma ekki fram í veðurskýrslum, en plönturnar, sem á þessum stöðum vaxa, geta gefið oss mikilvægar upplýsingar. Víða um lönd hafa menn gert sér Ijóst, hversu hin veðurfarslegu frábrigði, oft á smáblettum, eru mikilvæg í ræktunarmálum. í Noregi hafa menn lagt stund á að kynna sér þetta vaxtarfræðilega, einkum með tilliti til aldinræktunar. Má þar nefna hérað eins og Nes á Heið- mörk, þar sem mikill árangur hefir þegar náðst. Það er deginum Ijósara, að veðurathuganir og gróðurrannsókn- ir eiga hér samleið. En til þess að gera vaxtarfræði rann- Heima. er bezt 213

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.