Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.06.1965, Blaðsíða 19
ur eru fluttar til nýrra heimkynna. Hefir stofnunin safn- að upplýsingum um þessi efni frá fjölda landa um heim allan og birt um það mikilvægar skýrslur og niðurstöður. Hefir það ekki sízt verið mikilvægt í sambandi við rúg- og byggyrkju. Rit þessarar stofnunar eru hinar ágætustu handbækur fyrir aíla, sem fást við flutninga á plöntum landa á milli. Eitt höfuðverkefni vaxtarfræðinnar verður að finna, hvort unnt sé að rækta tilteknar tegundir í tilteknum héruðum, og hverjar tegundir hafi bezt skilyrði til þroska, svo að þær megi gefa sem fyllstan arð. Á síðari áratugum hefir mikil breyting orðið á lofts- lagi í norðlægum löndum. Jöklar hafa eyðzt og hitastig hækkað einkum vor og haust. Þetta hefir komið greini- lega fram í viðbrögðum plantna og dýra, og um leið hafa ræktunarmöguleikar breytzt. Þannig hafa hæðarmörk komyrkju í Noregi færzt upp á við um 100 metra og norðurmörkin um 200—300 kílómetra. Frostskemmdir á kartöflum og korni eru sjaldnar en áður. Frost fer fyrr úr jörð, villiplöntur, bæði tré og jurtir, bera þroskuð fræ á hverju sumri, sem áður gerðu það einungis í beztu árum, og skógurinn teygir sig hærra upp í hlíðarnar en fyrr. Vafalaust hefir hið sama gerzt hér á landi, en oss skortir vaxtarfræðilegar athuganir, til þess að segja um það með vissu. Vér vitum ekki, hve lengi góðæri þetta kann að vara, og ef árferði spillist til muna getur það haft alvarlegar afleiðingar. En vaxtarfræðilegar rannsóknir á góðu ár- unum gætu gefið oss mikilvægar upplýsingar um hversu bregða skyldi við, ef harðnar í ári. Vér vitum þá, hvern- in villiplönturnar haga sér og þekkjum samræmið milli viðbragða þeirra og yrkiplantnanna. En einmitt í öllum köldum löndum, þar sem fjöldi tegunda, innfluttra og innlendra, er vex við norðurmörk vaxtarsvæðis síns eru öll þessi viðbrögð miklu skýrari en annars staðar. Smá- breytingar í veðurfari geta valdið stórsveiflum í vexti tegundanna. Þess vegna er harðla nauðsynlegt að fylgj- ast með þeim breytingum, sem verða á plöntunum og vaxtarviðbrögðum þeirra. Það er margt fleira, sem vaxtarfræðin getur leiðbeint oss um. Það er gamalla manna mál, að lækningaplöntum beri að safna á tilteknum tímum því að þá sé kraftur þeirra mestur. Þann tíma sýnir vaxtarfræðin oss. Mikil- vægt er t. d. að fylgjast með þeim plöntum, sem valda heymæði í mönnum með frjódusti sínu. Blómgunartími þeirra er oft skammær, og með því að skipta um dvalar- stað á þeim tíma, gætu menn oft komizt hjá miklum óþægindum. Einnig leiðbeinir vaxtarfræðin um ýmis landbúnaðarstörf, svo sem sáningartíma, áburðartíma, hvenær árangursríkast sé að úða plöntur vegna sjúkdóma og ótalmargt annað. Vaxtarfræðin er enn tiltölulega ung vísindi. En hún er í hraðri framför. Stöðugt korna fram ný úrlausnarefni, sem krefjast svars, bæði í almennri jarðyrkju, garðrækt og skógrækt, og taka verður ný viðfangsefni til rann- sóknar. Því víðtækari sem vaxtarfræði rannsóknirnar verða, því meiri líkur eru til, að hún gefi oss viðhlítandi svör. Hér hefir verið skýrt stuttlega frá, hvað vaxtarfræðin er og hvers megi af henni vænta. Nokkuð hefir verið skýrt frá norskri reynslu, en höfuð heimild að grein þessari er ritgerð úr norska tímaritinu Blyttia. En nú liggur næst fyrir að spyrja, hvað vér íslend- ingar höfum gert í þessum efnum, og verður því miður að játa það, að vaxtarfræðilegar rannsóknir hér á landi eru bæði fáar og slitróttar. Það er í þessu efni eins og mörgu öðru, sem við kemur náttúru lands vors, að vér erum tómlátir um þau. Oss gleymist alltof oft, að plönt- urnar eru lifandi verur, og þó enn meir, að þær eru und- irstaða alls lífs á jörðunni. Vér sjáum að vísu að jörðin grær og plönturnar blómgast á hverju vori og fölna á haustin, en fæstum kemur til hugar, að skrá dagsetningar hvenær þetta gerist. Kemur þar og til að þekking manna á plöntum og heitum þeirra er mjög takmörkuð. En ekki er unnt að gera slíkar athuganir án þess að þekkja nokkr- ar tegundir. Ekki er þó fyrirfram víst, að vaxtarfræði athuganir í náttúrunni gæfu jafnskýr svör hér á landi og t. d. í Noregi. Tegundir eru hér færri en þar, og gróðurfélög naumlega eins skýrt mörkuð. Hitt dylst þó ekki, að margt má ráða af vaxtarfræðilegum athugunum hér sem annars staðar t. d. um lengd vaxtarskeiðs plantna á ýms- um stöðum. Og umfram allt geta vaxtarfræði rannsóknir gefið oss mikilvæg svör í sambandi við innflutning teg- unda. Oss er því harðla mikilvægt að fylgjast vel með vaxtarferli ræktaðra trjáa og runna, sem nú er þegar að finna hvarvetna um land, blómgun þeirra, laufgun, aldinþroskun, lauffalli o. fl., sem hver athugull maður getur gert án mikillar fyrirhafnar. Ef þeim einungis er bent á starfshætti og lagðar til leiðbeiningar. Þótt ekkert sé samfellt skráð um slíkar rannsóknir hér á landi eru samt til margar athuganir frá ýmsum tímum, en mest skortir á að þær hafi verið gerðar samfellt um lengra skeið. Á síðustu tugum aldarinnar sem leið gerði Schierbeck landlæknir margvíslegar ræktunartilraunir, og hefir hann gert nokkrar skýrslur um vaxtarfræði þeirra tegunda, sem hann ræktaði og birti í tilraunayfir- litum sínum. Stóð hann í sambandi við Schúbeler hinn norska og gaf honum ýmsar upplýsingar um vaxtarfræði plantna hér, og mun eitthvað af því tagi vera að finna í ritum Schúbelers. Þegar Stefán Stefánsson hóf gróðurrannsókir sínar á Möðruvöllum í Hörgárdal, lagði hann mikla stund á vaxtarfræði athuganir fyrstu árin, og raunar allt af fram undir aldamót. Naut hann þar mikillar hvatningar og leiðbeiningar Warmings prófessors í Kaupmannahöfn. Ekkert hefir Stefán þó birt um þessar rannsóknir á prenti, nema að getið er blómgunartíma flestra tegunda í Flóru íslands. En slíkar upplýsingar eru of almenns eðlis, og sumt vafalítið skráð eftir sögusögnum annarra. Framhald á bls. 219. Heima er bezt 215

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.