Heima er bezt - 01.06.1965, Síða 24

Heima er bezt - 01.06.1965, Síða 24
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM: Sjötug æskuvinkona E'Íc var að frétta það um þessar mundir, að ein æskuvinkona vín, og hún ekki af lakara taginu, , væri sjötug um þetta leyti. Um leið rifjuðust upp fyrir mér ótal minningar frá löngu liðnum árum, um yndislegar samverustundir, og hversu mjög ég þráði fund þessarar vinkonu, og hvernig samvistirnar við hana opnuðu mér nýja heima óendanlega fjarri hvers- dagsleikanum. Ekki varð þess þó dulizt, að nokkur var aldursmunurinn með okkur, því að hún var komin á tán- ingaaldurinn um þær mundir, sem ég var að byrja að skynja lífið í kringum mig, og á aldri gjafvaxta heima- sætu, þegar ég komst í kristinna manna tölu. En ekkert spillti það vináttu okkar, né heldur hitt, að margir fleiri en ég, voru álíka heillaðir af henni. Og þá er bezt að gera nafn hennar kunnugt, en þetta er tímaritið Eim- reiðin. Ég var ekki nema rétt orðinn læs, þegar ég komst í fyrstu kynni við hana. Mamma átti hefti úr fyrstu ár- göngunum, og ég stafaði mig fram úr efni þeirra, eftir því sem getan leyfði. Ég kjökraði yfir sögunni um Gunnhildi gömlu, og dreymdi hrollvekjandi drauma eftir að hafa lesið Hryllilega bernskuminningu, en ég sat líka við og lærði Litla skáld á grænni grein og Elli sækir Grím heim, enda þótt ég áttaði mig varla á því hver þessi Ellikerling væri, sem fús væri að dansa og glíma. Meira að segja reyndi ég að læra Brautina, þótt ég varla skynjaði, hvert þar væri stefnt. Og ekki að gleyma Skeifusögunni um Sankti Pétur og Drottin. Ekkert festist þó ef til vill eins í huganum og myndin hans Einars Jóns- sonar af Dreng á bæn. Og svo var það margt, margt fleira. Það var merkileg bók þessi Eimreið. Árin liðu hægt og hægt eins og alltaf meðan maður er ungur, og mér varð það smám saman ljóst, að Eim- reiðin átti ítök í fleirum en mér. Það var margt talað um efni hennar, og menn hlökkuðu til komu hennar á heim- ilið. Því var svo háttað, að þau hjónin, Ólöf skáldkona á Hlöðum og Halldór maður hennar, voru kaupendur Eimreiðarinnar, og við inni í bænum biðum venjulega með eftirvæntingu dagana, sem liðu frá því, að heftin komu í póstinum, og þau voru búin að lesa þau og léðu okkur þau til lestrar. Þær kvöldvökur, sem Eimreiðin var lesin hátt, voru hátíðisdagar heima á Hlöðum. Ef til vill fannst okkur ritið standa okkur ögn nær en annað prent- að mál, af því að þar birtust ritverk þeirra Ólafar og Halldórs. Hann átti þar einar tvær smásögur, en hún bæði kvæði og ritgerðina Bernskuheimilið mitt. Vissu- lega var Eimreiðin þá nátengdari heimilinu á Hlöðum en nokkurt annað rit. Ég minnist þess enn hvílíkur fengur mér var það, þá komnum undir fermingu, þegar Ólöf bauð mér alla Eim- reiðina frá upphafi að láni. Ég beinlínis svalg hana í mig frá orði til orðs, að heita mátti. Efnið var svo fjölbreytt og lifandi, og ekki torskildara en svo, að ég strákurinn gat lesið megnið af því mér til nokkurs gagns. Ég hika ekld við að fullyrða, að á þeim árum las ég ekld önnur rit, sem meira voru menntandi á almenna vísu en Eim- reiðin, þegar frá er tekin Saga mannsandans eftir Ágúst H. Bjarnason. Hún var að vísu þyngri, og ýmsir kaflar fóru fyrir ofan garð og neðan við fyrsta lestur. En engu að síður var hún eins og gróðrarskúr í hugi bókfúsra unglinga úti um byggðir landsins, þegar hún kom fyrst út. Og seint munu þess verða full skil, hversu mikla þakkarskuld íslenzk alþýðumenning á að gjalda ritum Ágústs H. Bjarnasonar og Eimreiðinni. En hvað var það, sem skapaði Eimreiðinni þessar vin- sældir, sem hvarvettna komu fram? Fyrst af öllu var það fjölbreytni efnisins. Hún flutti nýjungar um menn og málefni frá hinum stóra heimi. Þar voru ritgerðir um náttúruvísindi, sem sjaldséð var í íslenzkum ritum. Greinar um landsmál, frásagnir af nýjungum í tækni og læknavísindum og síðast en ekki sízt kvæðin og sögum- ar eftir innlenda og erlenda höfunda. Þarna komu þeir fram, margir af stóru spámönnunum í íslenzkum bók- menntum, Matthías, Steingrímur, Þorsteinn Erlingsson, Einar H. Kvaran og margir fleiri. En þarna áttu líka margir byrjendur í skáldskapnum sitt fyrsta athvarf, sumir urðu ef til vill aldrei annað en byrjendur, og Eim- reiðin ein geymir minninguna um það, en aðrir áttu eftir að sveifla sér fram í raðir hinna stóru. Víðsýni og smekkvísi ritstjórans gerði Eimreiðina að allsherjar vett- vangi þeirra sem rita kunnu. Þar komu fram lærðir menn, bæði vísindamenn og skáld, en einnig ungir stúdentar, bændur og aðrir alþýðumenn úti um byggðir landsins. Þá má ekki gleyma öllum bókafregnunum og ritdóm- unum, skýrum og afdráttarlausum, sem mörgum reynd- ust góðar leiðbeiningar í vali lestrarefnis, og síðast en ekki sízt íslenzka hringsjáin um það, sem sagt var og ritað um ísland og íslenzk málefni erlendis. Ékkert rit fyrr né síðar hefir gert þeim hlutum jafngóð skil. Og öllu þessu fjölbreytta efni fylgdi einhver ferskur and- 220 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.