Heima er bezt - 01.06.1965, Side 26

Heima er bezt - 01.06.1965, Side 26
þekktu gerzt, að torfundinn verður betri og trúrri ís- lendingur. En þó liggur hann enn óbættur hjá garði, og saga hans óskráð, til lítillar sæmdar þeim, sem sískrif- andi eru um sögu landsins. Ætlunin með þessum orðum var einungis að ræða um æskuvinkonu mína Eimreiðina, en slíkt var ekki unnt, nema. að geta um leið stofnanda hennar og föður, enda þótt til þess hefði þurft míklu meira og vandaðra mál, en hver veit, nema unnt verði að gera honum betri skil síðar. Vér sem vorum ungir, þegar Eimreiðin var á æsku- skeiði tökum nú að efdast. Það gerir hún einnig. En ólíkt oss mönnunum kastar hún sífellt ellibelgnum, og lifir í snertingu við samtíð sína og er ung með henni. Vera má, að oss þessum gömlu, sem munum hana unga, þyki hún hafa glatað æskuljómanum, eins og svo margar jafnöldrur okkar hafa gert. En ætli það sé ekki okkar sök. Akureyri á síðasta vetrardag 1965. Þórarinn Kr. Eldjárn Framhald af bls. 203 ----------------------------- um. Var kosinn sýslunefndarmaður 1924 og gegnir því starfi enn, og allan þann tíma hefur hann verið eftirlits- rnaður sýsluvegarins hér í Svarfaðardal og séð um fjár- ráð hans. I sýslunefnd hefur hann alla tíð notið mikils álits og mun hafa verið vara oddviti hennar um langt skeið, og nú á hann sæti í Fasteignamatsnefnd Eyja- fjarðarsýslu. Um mörg ár var hann vara endurskoðandi Kaupfélags Eyfirðinga og endurskoðaði þá reikninga útibúsins á Dalvík. Arið 1938 var hann kosinn í stjórn K. E. A. og formaður félagsstjórnar 1949 til 1958 að hann lét af þeim störfum að eigin ósk. Hann átti og sæti í stjórn Samvinnutrygginga frá upphafi og til þessa árs, að hann baðst undan endurkosningu. Mörg fleiri störf hefur Þórarinn haft með höpdum, þó ekki verði talin hér. Hann er ágætur ræðumaður, rökfastur, orðhagur og kemst oftast að kjarna málsins. Hann reynir ekki að ota skoðunum sínum að öðrum mönnum eða telja þá á sitt mál. Segir sitt álit hispurslaust og lætur svo aðra sjálf- ráða hvað þeir gera. En oftast fer það svo, að menn hneigjast að hans úr- lausnum og fylgja honum eftir. Þórarinn er prýðilega ritfær og hefur skrifað fjölda blaðagreina um ýmisleg efni. Hefur yfir að ráða góðri frásagnargáfu og gæddur léttum humor. Prúður og hóg- vær í hvívetna. Skapmikill nokkuð að eðlisfari, en kann svo vel með það að fara, að naumast sézt hvort honum líkar betur eða ver. Hann er góður söngmaður og hefur starfað í söngkórum frá æskuárum, og enn syngur hann í kirkjukór og tekur undir á gleðimótum. 222 Heima er bezt Þórarinn hefur lengst af verið heilsuhraustur og haft mikið starfsþol. Afkastamikill verkmaður hvort sem um var að ræða líkamlega eða andlega vinnu. Fyrir fáum árum veiktist Þórarinn alvarlega og hefur ekki nað fullri heilsu síðan. Þó sinnir hann enn sínum störfum, og gengur að ýmsri útivinnu, einkum heyskap. Þórarinn er gæfumaður. Hann eignaðist góða og mikil- hæfa konu, og lifði með henni í ástríku hjónabandi í hálfan fimmta áratug. Hann á efnileg börn, sem hann veitti gott uppeldi og ágæta menntun. Hann hefur að nokkru alið upp tvær kynslóðir hér í Svarfaðardal. Hann hefur hlotið trúnað sveitunga sinna og annara samtíðar- manna. Og hann hefur aldrei brugðist því trausti, sem honum hefur verið sýnt. Árið 1955 var Þórarinn heiðraður með Fálkaorðunni fyrir félags- og kennslustörf. Þorgrímur Þórðarson Framhald af bls. 211 ------------------------------ Vér munum, er gesti að Borgum oss bar, hve blíðar þar viðtökur fengum. Sú húsmóðir göfug við hússtjórn þar var, um hjálp, sem að synjaði engum. Það heimilið blómlega autt þegar er, en ykkur í fjarlægð samt gleymum ei vér. Oss gleymist ei það, sem að gjört hafið þið. Vér gleymum ei þjáningarstundum, er höndin þín læknir þá lagði oss lið og lífskraft að nýju vér fundum. Já, mörg hafa sárin þau svíðandi blætt, sem þú svo mjúldega hefur þó grætt. í nítján ár hefur hér stundað það starf og styrkt vorar framfaraleiðir. Og þinn eigi kjarkur í þrautunum hvarf, þó oft væru vegir ei greiðir. En nú er það annarra að feta þau för og fægja vor sár, svo að grói í ör. Svo farið nú vel héðan, heiðruðu hjón og hamingjan veg ykkar greiði. Sem lengst ykkar njóti vort fátæka frón á framfara komandi skeiði. Við kveðjum nú ykkur með hjarta og hönd og hér skulu treyst okkar vináttubönd. Guðmundur Jónsson Hoffell. Þorgrímur gegndi Keflavíkurhéraði til 1929. Sagði því þá lausu og sótti um lausn frá embætti vegna heilsu- brests. Hann dó í Reykjavík 5. júlí 1933. Þorleifur í Hólum segir, að það hafi komið í sinn hlut á Alþingi það ár (síðasta þingár hans) sem vara- forseta sameinaðs Alþingis, að mæla eftir hann.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.