Heima er bezt - 01.06.1965, Side 39

Heima er bezt - 01.06.1965, Side 39
397. Hann fálmar út í loftið sem allra snöggvast eftir stuðningi, en steypist síð- an aftur á bak útbyrðis. Serkir dregur kænuna óðar til okkar og tekur aðra ár- ina úr henni til vonar og vara .... 398. Ég ræ nú af stað í skyndi. — En nú skreiðist andstæðingur okkar upp í kæn- una aftur og fer að damla með árinni einu, sem við skildum eftir. Nú er það ég, sem sprettinum ræð og ferðinni yfir- leitt. 399. En garðstjórinn hefur enn eitt- hvað óvænt í pokanum. Allt í einu sjá- um við hann setja upp ofurlítið sprit- segl! Og stinnings kaldi ber nú kænuna hratt í áttina til okkar. 400. Við komumst aldrei undan! segir Serkir. Og ég fer nú að verða dálítið vondaufur. Hérna er áin breið eins og fljót, og við erum aðeins á henni miðri. — En bíðum nú við ....! 401. Nú er náunginn rétt að ná okkur. Ef ég breytti nú um stefnu og reri beint upp í vindinn, — þá yrði garðstjórinn að sigla beitivind og slaga, — sé það annars hægt með svona segli ....! 402. Þessi hugmynd mín reynist ágæt- lega! Kænunni verður ekki snúið upp í vindinn, — og getur heldur ekki slagað. Brátt er hún orðin langt á eftir, og við náum landi heilir á húfi. 403. Nú verðum við að flýta okkur! hrópa ég. Bráðum nær náunginn landi. Og þá bíður hann ekki boðanna. Og við vitum af reynslunni, að karlskrattinn er bæði sprettharður og óvæginn! 404. Ég er ekki kominn langt, þegar ég festi annan fótinn í stálvírsflækju og steypist á höfuðið. Ég brýzt um og reyni að losa mig úr skollans flækjunni, en það er ekki hlaupið að þvf .... 405. Eftir nokkura stund hefur mér þó tekizt að losa mig úr vírflækjunni. En rétt í því ég er að rísa upp, hefur garð- stjórinn enn einu sinni náð mér og gríp- ur nú fast í annan fótinn á mér.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.