Heima er bezt - 01.10.1965, Side 4
BRYNJOLFUR SVEINSSON, EFSTALANDSKOTI:
Eié
ur a Púfnavöllum
Hann er fæddur að Sörlatungu í Skriðuhreppi
2. október 1888, sonur hjónanna Guðnýjar
Loftsdóttur og Guðmundar Guðmundssonar
búenda þar.
Vorið 1890 fluttist hann með foreldrum sínum að
Þúfnavöllum, þar sem hann hefur átt heimili síðan. Ólst
þar upp með stórum systkinahóp, við góðann kost en
mikla vinnu, eins og títt var urn unglinga á þeim árum,
enda næg verkefni fyrir smáar hendur og stutta fætur á
stórum sveitaheimilum, eins og Þúfnavöllum.
Faðir Eiðs, Guðmundur á Þúfnavöllum, en svo var
hans jafnan getið, var mikill framfaramaður í búnaði,
enda betur menntaður en almennt gerðist um bændur
þeirra tíma, var Möðruvellingur og búfræðingur frá
Hólaskóla. Hann varð því sjálfkjörinn forystumaður um
málefni sveitar sinnar og héraðs, enda áhugamaður um
framfara- og; menningarmál.
D D
Eiður hafði því strax í bernsku, nokkur kynni þeirra
strauma, sem efst voru í hugum eldri manna fyrir og um
síðustu aldamót, jafnframt því að vera virkur þátttak-
andi í félagsskap æskumanna og jafnaldra, sem stofnað
var til í hreppnum um þær mundir. Sá félagsskapur var í
byrjun frekar hugsjón en starf, en breyttist fljótt í ýmis-
konar starfsemi og hafði fullmótaður tileinkað sér flest
þeirra hugsjónamála, sem Ungmennafélögin tóku á
stefnuskrá sína, er þau voru stofnuð fáum árum síðar.
Þúfnavellir.
352 Heima er bezt