Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 26
Gullna hliðið. áður séð venjulega stelpu á gelgjuskeiðinu. En það var nú bara það. Ég var ef til vill ekki venjuleg. Ekki svona eins og flestar hinar, bólótt og rengluleg. Blessaður skaparinn hefur víst ákveðið, að ég skyldi vera laus við allt hið ómögulega, sem gelgjuskeiðinu fylgir. En eigin- lega hefði ég heldur viljað hafa nokkrar hlussur framan í andlitinu og vera svona líkt og hrífuskaft í laginu, heldur en að þola öll hin rannsakandi og öfundarsjúku augu, er svo oft hvíldu á mér. En orsökin fyrir því, að ég þurfti í nyjan skóla var sú, að foreldrar mínir ákváðu að flytjast úr þorpinu, þar sem þau höfðu lengst átt heima. En eiginlega vissi ég ekki um aðalástæðuna fyrir þessari breytingu. Trúað gæti ég þó, að pabbi hafi ekki þolað hin biðjandi augu karlkynsins, sem oft hvíldu á minni fögru móður, og því yiljað breyta um. Sem sagt: Nú stóð ég þarna í skólaportinu, ein og yfirgefin. Krakkarnir stóðu í smá- hópum og stungu saman nefjum. Fyrsti kennslutíminn var enska, o" hræðileffri tíma hef é" aldrci lifað. Það var eins og allir í bekknum væru með óværu. Mér var vísað á autt sæti við hliðina á miður glæsilcgum pilti. Bólurnar þöktu næstum langlcitt andlitið, og skollitað hárið var vandlega skipt í hægri hlið og krullaðist svo allt niður á háls. En augun í honum voru sko ekkert grín. Svei mér þá, ef þau gátu ekki verið svolítið ást- leitin. Þau voru næstum tinnusvört. En að iiðru leyti var Bússi, en svo var hann kallaður, algcrlega sneyddur öll- um „gæja“-glæsibrag nútímans. Hann fékk nú óspart að heyra háðsglósur félaga sinna. „Sjáið hvernig rauðu blóðkornin eyða þcim hvítu, og gcra hann fagurrauðan, jafnt á höndum sem andliti." Skyldi ckki ægilegt há- þrýstisvæði hafa myndazt innra með honum, sem slíkur stormur fylgir, að hún, þessi nýja, verði fegin að leita skjóls innundir hcimaprjónaðri lopapcysunni hans. — Þannig dundu á okkur háðsyrðin. Kennarinn virtist ekki skeyta þessu hið minnsta, cnda gamall og þar af leiðandi sjálfsagt heyrnardaufur. Loksins leið þó kennslutíminn. Frímínútunum eyddi ég á salerninu. En það var nú ekki beinlínis góður griðastaður, því að ég heyrði stelp- urnar hvíslast á um, að líklega væri hún eitthvað maga- veik þessi nýja. Guð minn góður, hugsaði ég. Hvernig á ég að geta afborið þetta, ef ekki verður breyting á? Einhvern veginn silaðist þó skólatíminn áfram. Þegar heim kom, fór ég að háskæla, og kvaðst aldrei fara aft- ur í þetta víti. Mamma lét engan bilbug á sér finna, og sagði, að líklega væri þetta öfund í stelpunum. En strák- arnir létu svona af feimni, sagði hún, því að innst inni hefðu þeir um leið og þeir sáu mig, orðið skotnir í mér, og að pillunum, sem skotið var að Bússa, væri skotið af boga öfundarinnar, af því að það var hann, en ekki þeir, sem var svo heppinn að hafa hjá sér autt sæti. Ég fór nú að reyna að h'ta bjartari augum á framtíðina. Ég settist fyrir framan spegilinn og grandskoðaði andlit mitt. Jú, reyndar var ég mjög lagleg. Langt bil á milli dökk- brúnna augnanna, kinnbeinin há og nefið lítið og vel lagað. Og svo var það þessi girnilegi munnur. Hár mitt var kastaníubrúnt, liðað og náði í mitti. Stelpurnar heima í þorpinu mínu sögðu, að ég hefði sannkallaðan kyn- bombuvöxt. En hverju, sem þið trúið, þá tók ég ekkert mark á slíkum lofsyrðum, og fannst ég bara ósköp venjuleg. Ég hafði lítið gert að því að vera með strák- um. En alltaf man ég þann fyrsta. Hann var anzi mynd- arlegur með kolsvart hár og gat vel stælt hina vítt elsk- uðu rödd Elvis Prestley. Mér fannst hann hreinn og beinn guð og var næstum fallin í yfirlið, þegar hann spurði, hvort hann mætti kyssa mig. En nú er það liðið hjá. Écr ákvað nú að vera hin brattasta daginn eftir. En hvernig, sem ég reyndi að vingast við stelpurnar, tókst það ekki. Að vísu þó að undantekinni einni, sem leit mjög veiklulega út. Ég sá það strax á gráum augum hennar, að eitthvað leið henni illa. Hún var kölluð Dódó. Stelpurnar voru reglulega ótuktarlegar við hana, fannst mér. En ég strengdi þess heit að vera henni góð í hví- Vigftalaug. 374 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.