Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 34
arinnar eftir draumsæla nótt. Hún sér að Snorri og Nanna hvílá bæði í værum svefni og bæra ekki á sér. Þau hafa líklega sofnað löngu á eftir henni í gærkvöld og eiga því eftir að sofa lengi enn. Bezt er því að gera þeim ekkert ónæði fyrst um sinn, heldur fara út úr tjaldinu og njóta morgunsins úti. Erla smeygir sér þegar úr svefnpokanum og hverfur svo hljóðlega út úr tjaldinu. Þórsmörk brosir við henni í sinni fegurstu morgundýrð. Hún gengur góðan spöl frá tjaldinu og litast rækilega um í þessu unaðslega töfra- ríki íslenzkrar náttúru, og djúp unaðarkennd og lotning fyllir unga sál hennar. Þetta verður henni ógleymanleg morgunnstund. Eftir all-langa útivist gengur Erla aftur heim að tjald- inu og lítur inní það. Enn hvíla tjaldbúarnir í djúpum svefni og bæra ekki á sér. Erla nær þá í teppi og breiðir það á slétta jörðina fyrir utan tjaldið og leggst svo þar í sólbað meðan hún bíður þess að þau inni vakni, en hún hagar þessu þannig, að hún sér inní tjaldið og getur fylgst með því sem þar gerist. Og svo líður all-löng stund. Loks losar flugstjórinn ungi svefninn. Hann teygir úr stæltum vöðvum sínum og opnar augun. Allt er hljótt umhverfis hann, en baðað í morgunsól. Honum verður fyrst litið til Nönnu, þar sem hún hvílir í svefnpoka sín- um aðeins nokkra faðma frá honum og andar rótt í djúp- um svefni, en því næst er honum það ljóst, að systir hans er horfin úr tjaldinu. Hún er sennilega farin í morgun- göngu eitthvað útí buskann, en hún hlýtur að koma bráðlega aftur. Snorri liggur kyrr og teygar að sér tært og hressandi morgunloftið, en hjartað lyftir sér heitt af sælli gleði í barmi hans, og endurminningar liðinnar nætur streyma fram í vitund hans, bjartar og heitar eins og fegursta sólbros rísandi dags. Nú á hann stúlkuna sem hann elskar. Hann snarar af sér svefnpokanum, færir sig hljóðlega að hlið Nönnu, setzt þar og horfir eins og í Ijúfum draumi á hana sofandi. Hann virðir fyrir sér blíða, hreina svipinn á björtu og fallegu andliti hennar og mikla ljósgullna hárið, sem bylgjast um svæfilinn undir höfði hennar, og hún minnir hann einna helzt á engil- mynd, svo mikill er hreinleikinn yfir henni nú í faðmi svefnsins. — Nanna, ástin mín, hvíslar hann, en ætlar þó ekki að vekja hana. Hann vill vissulega lofa henni að sofa að vild, því að honum fórnaði hún mestöllum svefntíma sínum síðastliðna nótt. En það er sem hið hljóða ástar- ávarp hans líði eins og sólvermdur sumarblær gegnum svefninn inní vitund hennar. Hún losar þegar svefninn og brosir með lokuð augun. — Snorri, líður af vörum hennar í sælli vímu milli svefns og vöku. Hana var einmitt að dreyma hann svo fallega núna, þegar hann hvíslaði nafn hennar. Hann sér að hún er að vakna, og hann lýtur niður að henni, og varir hans snerta mjúldega enni hennar í léttum kossi, en við þá snertingu vefur hún örmum sínum um háls honum og vaknar um leið að fullu til veruleikans. Aldrei hefur draumur og veruleiki sameinast á fegurri hátt, og aldrei hafa ungir elskendur lifað sælli morgunstund. Þau tvö skynja aðeins nærveru hvors annars á meðan varirn- ar mætast í fyrsta morgunkossinum. Erla Magnúsdóttir lítur nú inní tjaldið þaðan sem hún baðar sig í geislum sólarinnar, og augu hennar nema staðar í barnslegri undrun á elskendunum ungu, sem vefja hvort annað örmum og kyssast svo innilega inni í tjaldinu. — Hvað? Ósköp hljóta þau að elska hvort ann- að heitt, Snorri bróðir og Nanna. Það hefur henni aldrei komið til hugar fyrr, en mikið skelfing þykir henni vænt um þetta! Þau verða áreiðanlega bráðum hjón, og þá verður Nanna alltaf ein í fjölskyldunni heima. Hún ætl- ar ekki að segja neinum frá þessu sem hún hefur séð, hún skal reynast þeim trúr vinur og gera allt fyrir þau sem hún getur, því rð henni þykir svo innilega vænt um þau bæði. En á húíi að fara nú þegar inní tjaldið, eins og hún hefði einskis orðið vís, og bjóða þeim bara góðan dag? Nei, hún tímir ekki að gera þeim ónæði, á meðan þau virðast ekki vita neitt af umheiminum sjálf. Þó er hana farið að langa ákaflega í morgunkaffið hjá stall- systur sinni. En brátt minnist Nanna húsmóðurskyldu sinnar gegn- um hinn sæla vökudraum í örmum elskhugans góða. Hún lítur á úrið sitt og segir síðan: — Ó, ég er alltof sein með morgunkaffið, Snorri! — Það er allt mér að kenna, hjartað mitt. Haf þú eng- ar áhyggjur af því, svarar hann rólegur og brosandi. En Nanna losar sig þegar blíðlega úr faðmi hans og rís á fætur. Vísvitandi vill hún ekki vanrækja skyldur sínar. Nönnu er það fyrst nú ljóst, að svefnpoki Erlu er tómur, og hún horfin úr tjaldinu. — Og Erla er bara far- in úr tjaldinu, segir hún. — Já, hún var öll á bak og burt, þegar ég vaknaði, svarar Snorri. En nú fer ég út og leita hennar, meðan þú framreiðir morgunkaffið handa okkur, ástin mín, segir hann og kyssir hana í skyndi. — Já, gerðu það, ég skal hraða mér með kaffið á með- an. Og Nanna kveikir í skyndi undir katlinum, en Snorri lyftir tjaldskörinni og ætlar að snarast út og leita að systur sinni, en nemur þegar staðar: — Erla liggur í sól- baði rétt utan við tjaldskörina og horfir brosandi á bróð- ur sinn. Hún er búin að horfa á hann góða stund og heyra hvert orð, sem sagt hefur verið í tjaldinu, en hún hefur ekki viljað gera ónæði. — Þú ert þá hérna, Erla mín, segir Snorri og færir sig út til hennar. — Ég ætlaði að fara að leita þín í morgun- kaffið. — Ég er búin að liggja hér lengi í sólbaði, og áður var ég búin að fara í langa morgungöngu, skal ég segja þér. — Já, þú hefur aldeilis vaknað snemma í morgun þyk- ir mér. (Framhald.) 382 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.