Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 21
þann á Breiðabólsstað, er hún bjó á, og Steinn Þórðar- son hálfa ábýlisjörð sína, en hinn helminginn átti Stefán Eiríksson, alþingismaður í Árnanesi í Hornafirði. Á Reynivöllum var þá tvíbýli. Á efri bænum bjó Steinunn Þórðardóttir ekkja með bömum sínum, Þórði og Birni fulltíða, Þorsteini og Ara um fermingu og dætrum uppkomnum. Á neðri bænurn bjó Eyjólfur Runólfsson, hreppstjóri, og kona hans Ragnhildur Þorsteinsdóttir, og dætur upp- komnar, en Stefán sonur þeirra innan við fermingu (síðar bóndi í Skaftafelli). Þegar hér var kornið sögu, var sendur hraðboði aust- ur að Árnanesi, til að láta Stefán alþingismann vita um livalrekann og kom hann skjótt suður, og tekið var til skurðar. Sagt var, að aðrir sveitarmenn hafi ekki verið til kvaddir, eða öllu heldur hafi hvalrekanum verið haldið leyndum fyrir þeim og eigendur ætlað sér að sitja einir að sínu, sem þó var ekki venja hér, þegar um slík stórhöpp var að ræða, heldur sem flestum eða öll- um í sveitinni gefinn kostur á að koma til skurðar og á þann hátt komast að matbjörginni. En flýgur hvalsaga. Almenningur fór að hafa veður af, að þarna væri eitt- hvað við að vera, og einhverjir gerðu sér ferð til að for- vitnast um hvað væri á seiði. Sáu þá eigendur sér ekki annað fært en gefa öllum búendum kost á að koma og skera upp á part, en ill var aðstaða þarna, hvalur sá, er við land var, var að miklu leyti undir ísröndinni, og þurfti að ryðja frá honum til að komast að að skera. Þetta var bæði erfitt verk og seinlegt og áhöld lítil og ófullkomin, að höggva með ísinn og torveldaði þetta mjög vinnu við skurðinn. Frostið var svo mikið, að allt var harðfrosið, og var það helzt til ráðs tekið, að saga hvalinn niður með stórviðarsög, ef nokkuð átti að vinn- ast á. Þá var jafnframt unnið að skurði á hvalnum, sem var úti á ísnum frá landi. Það var enn torveldara, því ísinn var á hreyfingu og leiðin út að honum erfið og ótrygg. Varð að brúa bil milli jaka með timbri og borð- viði, og flytja til lands það sem skorið var jafnóðum, og ofan á allt bættist svo, að veðrið var risjótt. Adér skildist að unnið hafi verið að þessu í vikutíma eða svo. En þá kom skrið á ísinn og hann lónaði eitt- hvað frá og gerði brim við sandinn og allt tapaðist sem óskorið var af hvölunum. Talið var að bjargast hafi alls annar hvalurinn, með því sem skorið var af báðum. Það heyrði ég fólk segja, sem þessu var kunnugt og komið var til vits og ára er þetta skeði, að slæm skipulagning hafi verið á vinnubrögðum við hvalskurðinn, og sér- staklega þetta, að fjörueigendur ætluðu að halda hval- rekanum leyndum og nýta sér sem mest af honum einir í stað þess að ganga að verkinu með nægum mannafla úr allri sveitinni meðan veðrið var hagstæðara. Sagt var, að Steinn á Breiðabólsstað hcfði einn viljað öllu ráða, og honum mest um kennt að þctta var minna happ en hefði getað orðið. A4eð hafís þessum komu bjarndýr, er gengu á land og flökkuðu um allar sveitir. Ekki gerðu þau mein af sér. svo sögur af færu, utan að skjóta fólki skelk í bringu á einstökum bæjum, þar sem þau báru að garði og fálið- að fyrir, eða ekki annað en kvenfólk og ungmenni, en karlar allir fjarverandi. Það var fyrstu nóttina eftir að hvalirnir urðu land- fastir við Breiðabólsstaðarfjöru sem áður er frá sagt, að menn voru settir til að vaka á fjörunni og gæta hvalanna. Þeir voru Björn Arason frá Reynivöllum og Brynjólf- ur Jónsson frá Breiðabólsstað. Þegar skammt er liðið nætur sjá þeir dýr mikið koma austan sandinn og stað- næmast á fjörukambinum fyrir ofan þá, en þeir stóðu við stóran ísjaka niður við flæðarmál. Dýrið settist á afturendann og góndi á mennina alilanga stund, en þeir hreifðu sig ekkert á meðan. Síðan reis dýrið upp og lallaði sína leið vestur sandinn, og urðu þeir ekki varir við það meir og þóttust heppnir að losna við þennan óboðna gest. í Borgarhöfn í Suðursveit er margbýli. Þetta ár voru þar 10 ábúendur. Eitt býlið sem heitir Girðing (nú í eyði) stóð vestast sér við fjallsöxlina, dálítinn spöl frá hinum bæjunum. Bóndinn Þorsteinn Sigurðsson var ekki heima, var við hvalskurðinn, en konan var heima og börn þeirra ung, og svo dóttir bónda frá fyrra hjóna- bandi hans, Bjarnheiður að nafni, þá innan við tvítugt. Eldhúsið í Girðingunni stóð vestast í húsaröðinni og útidyr þar á, en ekki göng til eldhúss. Grautur sauð á hlóðum, er hafa skyldi til kveldverðar. En nú vandað- ist málið, því þegar grautinn skyldi skammta og inn bera, var ofrinn gestur kominn í nánd við eldhúsið. Bjarndýr var sezt á öskuhaug, er var skammt vestur frá eldhúsdyrum. Gegg svo nokkra hríð, að enginn áræddi að sækja grautarpottinn eða fara út úr húsinu. Alla lang- aði auðvitað að fara að borða grautinn og þó yngri börn- in mest, sem grétu af sulti. Bjarnheiður herti þá upp hugann, hljóp til eldhúss, kippti pottinum af hlóðunum og bar hann inn í bæ. Þetta þótti snarlega af sér vikið af unglingsstúlku, því það orð fór af bjarndýrum hér um slóðir, að þau væru engin lömb við að leika. En það er að segja af þessu bjarndýri, að það hvarf af ösku- haugnum síðar um kveldið og kom þar ekki meir. Þorleifur í Hólum getur þess í æviminningum sínum, að þennan vetur, einn morgunn eftir að bjart var orðið, hafi sézt 4 dýr koma utan af Hornafirði og labba upp hjá bæ í Hólum og stefndu til fjalls. Aleira varð ekki vart við þau. Þorsteinn Arason, bóndi á Reynivöllum, sem þá var 14 ara, sagði mér, að hann hefði verið heima við gripa- hirðingu ásamt yngri systkinum sínum, því karlmenn allir voru við hvalskurðinn. Þá var það morgunn einn eftir að ljóst var orðið, að hann sér ljósgráa skepnu á stærð við hross, fara vestur ísa fyrir neðan Reynivelli og stefna vestur á Breiðamerkursand. Datt honum á hug að vera mundi grá hryssa, er Steinn á Breiðabólsstað átti, og þótti í meira lagi rásgjörn. Þótti honum það samt furða nokkur eins og þá var veðri háttað, norðan sveljandi og klakahella yfir land allt. Síðar upplýstist Heima er bezt 369

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.