Heima er bezt - 01.10.1965, Síða 31

Heima er bezt - 01.10.1965, Síða 31
— Ég býð þér frá störfum um þessa helgi og óska þess að þú notir það. — Þakka yður fyrir, svarar Nanna dálítið undrandi yfir þessu óvænta boði en að biðja um frí hafði henni aldrei komið til hugar, síðan hún kom hingað. Verka- hringur hennar hefir veitt henni svo mikla ánægju dag hvem, að hún hefir alls ekki óskað sér neina lausn frá starfi sínu. En fyrst Magnús lögmaður vill hafa það svo um þessa helgi, þá tekur hún boði hans með þökkum. — Er þá nokkuð því til fyrirstöðu, að þú farir með mér — með okkur Erlu austur í Þórsmörk, Nanna? spyr Snorri þýtt og rólega, og raddblær hans rýfur til grunna alla andspyrnu Nönnu, og vitund hennar öll verður ósjálfrátt að einu jákvæðu svari við boði flugstjórans unga. En áður en Nanna fær svarað leggur Erla arminn blíðlega um háls hennar og biður á barnslegan hátt: — Elsku Nanna mín, gerðu það fyrir mig að koma með okkur Snorra austur í Þórsmörk. Annars verður það ekkert gaman. Nanna brosir að ákafa stallsystur sinnar, en svarar svo hlýtt og systurlega: — Fyrst pabbi þinn hefir gefið mér frí frá heimilis- störfunum, þigg ég þetta góða boð ykkar systkinanna, Erla mín. — Ó, þú ert alltaf svo góð. — Þetta vildi ég líka heyra, segir Snorri og lítur bros- andi til Nönnu, og aldrei hafa dökkbrúnu augun hans Ijómað fegurri en nú, en Nanna varast að mæta þeim á þessum vettvangi, hún hefir áður séð eldinn í þeim og veit, að hann stenzt hún ekki. — Ó, hve ég hlakka til, segir Erla og fær ekki dulið barnslega gleði sína. — Ég er viss um að þessi Þórsmerk- urferð verður hreinasta ævintýri. Þau hafa nú lokið úr kaffibollunum, og Nanna hellir í þá að nýju. Og meðan þau njóta kaffisins í rólegheit- um, segir Magnús lögmaður við Snorra: — Ég á ágætt fjögurra manna tjald handa ykkur með öllum viðlegu-útbúnaði, og svo veit ég að bústýran okk- ar býr ykkur vel út með nesti. En ef það er eitthvað sem þú telur að ykkur muni vanhaga um til ferðarinnar og ég gæti bætt úr, þá lætur þú mig vita um það í tíma, góði minn. — Já, þakka þér fyrir, pabbi minn, en það er víst allt fyrir hcndi, sem með þarf, — nestinu til ferðarinnar læt ég bústýruna ráða. — Það mun líka vera alveg óhætt, segir lögmaðurinn. — Ég reyni að hafa það, eins og ég bezt get útbúið það, segir Nanna og brosir. Kaffidrykkjunni er nú lokið. Feðgarnir rísa þegar upp frá borðum, þakka fyrir kaffið, bjóða síðan góða nótt og ganga saman fram úr stofunni. Nanna og Erla rýma kaffiborðið, þvo bollapörin og ganga frá öllu á sínum stað, og síðan fara þær strax uppí svcfnherbcrgi sitt. Erla ræður sér varla fyrir bamslegri kæti og gerir sig ekki líklega til þess að leggjast þegar til hvíldar, en Nanna segir henni ósköp systurlega, að nú verði hún að sofna snemma í kvöld og hvíla sig vel undir morgundaginn, svo að hún geti sem bezt notið ferðar- innar. Og Erla hlýðir þessu eins og góð systir, háttar strax og leggst til hvíldar. Hún finnur það nú, að hún er svolítið þreytt eftir daginn, og að lítilli stundu liðinni er hún fallin í væran svefn. Nanna leggst einnig til hvíldar, en hún sofnar ekki strax. Fyrirhuguð Þórsmerkurferð tekur nú hug hennar allan. Hún hefir aldrei þangað komið, en hún veit að þetta er mjög fallegur staður, og þar hlýtur björt sumar- nóttin að vera guðdómleg í djúpri og voldugri kyrrð óbyggða og öræfa. Hún dregur allt þetta skýrt upp fyrir sér í huganum: blátt heiðið sólgullið og roðað, tign fjall- ana og litskrúð angandi jarðar, hún finnur bjarkailminn og skynjar djúpa helgi kyrrðarinnar, — en hún hlustar jafnframt eftir heitri hvíslandi rödd hans, sem bauð henni með sér í þennan edenlund íslenzkra óbyggða og nemur hana í djúpi sinnar eigin sálar. Eru það ekki hljómfegurstu strengir þeirrar raddar, sem kallað hafa hana að fullu til lífsins? Þessi spurning líður eins og þýð- ur andvari næturinnar um vitund hennar um leið og svefninn sigrar að lokum. Og nóttin ríkir mild og hljóð. Morguninn gefur fagurt fyrirheit. Allt rís af friðsæl- um svefni næturinnar, og borgin fyllist þegar iðandi lífi og starfi. Magnús lögmaður og Erla fara að heiman til starfa sinna, en Snorri flugstjóri fer útí bæ til þess að fá sér klippingu og rakstur fyrir helgina. Nanna er ein í húsinu og býr heimilið sem bezt undir fjarveru sína og framreiðir ljúffengan hádegisverð. Morgunstundin er fljót að líða. Á hádegi er starfi þeirra Magnúsar lögmanns og Erlu lokið, og Snorri kemur heim með þeim í bifreiðinni að lokinni snyrtingu. Óðar er snæddur hefir verið hádegisverður, hefst undir- búningur Þórsmerkurferðarinnar. Feðgarnir bera útí bíl- inn tjald, svefnpoka, hitunartæki og allt útilegunni við- komandi, en Nanna býr nestið sem bezt hún kann, og Erla hjálpar henni til að búa um það. Senn er allt tilbúið í útileguna, og systkinin búast ferðafötum sínum. En nú er komið að heimsóknartíma sjúkrahússins, og systkinin aka þangað með föður sínum að heimsækja móður sína, áður en þau leggi af stað. Nanna býr í skyndi miðdegiskaffið og ber það á borð, svo að þau geti drukkið það strax, þegar komið er frá sjúkrahúsinu, áður en lagt verður af stað í Þórsmerkur- förina. Síðan býr Nanna sig ferðafötum, dökkum síðbuxum og ljósri blússu, snyrtir hár sitt og setur það fallega upp í hnakkanum, svo skoðar hún spegilmynd ungu ferða- konunnar nokkur andartök, og vissulega er hún ímynd æsku, fegurðar og sakleysis. — Þakklátari fyrir fegurð sína en nokkru sinni fyrr. Þegar heimsóknartíma sjúkrahússins er lokið, ekur Magnús lögmaður og börn hans heim í skyndi. Nú þarf að komast sem fyrst af stað í Þórsmerkurferðina. Það er orðið svo áliðið dags. Miðdegiskaffið bíður tilbúið á Heima er bezt 379

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.