Heima er bezt - 01.10.1965, Side 35

Heima er bezt - 01.10.1965, Side 35
HEIMA_______________ BEZT BÓKAH I LLAN Jakob V. Hafstein: Laxá í Aðaldal. Reykjavík 1965. Menningarsjóður. Laxá í Aðaldal hefur lengi notið þess hróðurs að vera talin í senn ein fegursta og fiskiauðugasta á landsins og þótt víðar sé leitað. Hefur lítt verið um þá hluti deilt, enda mun Laxá heilla alla þá, sem henni kynnast, það fór því vel á því, að um hana er rituð bók fyrsta allra íslenzkra vatnsfalla, og það bók, sem bæði að efni og ytri gerð er samboðin hinni ágætu á. Höfundurinn Jakob V. Hafstein er kunnugur Laxá frá barnæsku og hlefur frá fyrstu kynnum verið heillaður af töfrum hennar. Hann er í senn veiðimaður og náttúruunnandi af lífi og sál, en einnig gæddur listamannsauga og skáldgáfu, og einmitt þess vegna hefur honum tekizt að auðga íslenzkar bókmenntir að góðri bók og nýstárlegri um margt. Auk sinna eigin kynna af ánni hefur hann aflað sér fræðslu um ána hjá heimamönnum, svo að allt mætti verða sem réttast. Bókin flytur lýsingar af Laxá sjálfri og veiðistöðum henn- ar. Þá er greinargerð um veiðiaðferðir og veiðarfæri fyrr og síðar, sagt er frá æðarvarpinu við Laxamýri og fuglalífi almennt og sel í ósum og á. Og loks eru þar ljóð og lausavísur eins og vera ber um þingeyska á. Lýsingar allar og frásagnir eru kryddaðar með veiðisögum og mannlýsingum. Öll frásögnin er litrík og ljóðræn og svo lifandi að lesandinn sér þar Laxá renna milli blómskrýddra bakka og laxana hoppa. Þá er bókin prýdd fjölda mynda. Má þar fyrst nefna teikningar danska listmálarans Sveins Havsteen-Mikkel- sens en einnig teikningar höfundar sjálfs, en auk þess er fjöldi ljósmynda, bæði litaðra og svarthvítra. Falla myndir og texti vel í eina listræna heild. Brian Moore: Kanada. Reykjavík 1965. Almenna bóka- félagið. Þetta er 12. bókin i flokknum Lönd og þjóðir, með sama sniði og ágæta fráganginum og hinar fyrri. Kanada er vissulega eitt þeirra landa, sem taugar vor íslendinga liggja mest til, sakir þess fjölda landa vorra, sem þar hafa búið og borið bein og lagt sinn skerf, til að nema hið gagnauðuga en harðbýla land. Hins vegar hefur þekking vor á því verið í molum, ekki sízt félagslegum vandamálum þess og þróunarsögu þjóðarinnar. En um þessi at- riði gefur bókin greinagott yfirlit. Hins vegar er minna sagt um náttúru landsins og almenna landslýsingu. Öll er bókin læsileg og fróðleg urn mikið land og ötula þjóð, sem þrátt fyrir allt á við ýmsa erfiðleika að stríða og stendur um margt á tímamótum í þróun sinni. Þýðandi er E. J. Stardal. Tarjei Vesaas: Klakahöllin. Reykjavík 1965. Almenna bókafélagið. Höfundur bókar þessarar hlaut Nobelsverðlaunin 1964 fyrir hana að talið er. Birtist hún nú í íslenzkri þýðingu eftir Hannes l'étursson. Höfundurinn er talinn fremsta sagnaskáld Norðmanna, sem nú er uppi, en hefur til þessa verið lítt kunnur hér á landi, er því mál til komið, að íslenzkir lesendur fái kynnzt honum. Klaka- höllin er ljóðrænt ævintýri urn litlar stúlkur. Það er fullt af dulúð, en jafnframt ritað af mikilli sálfræðilegri þekkingu og skilningi á mannlegu eðli. Frásögnin er seiðmögnuð, svo að lesandinn sleppir naumast bókinni fyrr en hún er lesin á enda, og les hana eða ein- staka kafla hennar hvað eftir annað. Svava Jakobsdóttir: 12 konur. Reykjavík 1965. Almenna bókafélagið. Þetta er fyrsta bók höfundar, 12 smásögur eða öllu heldur svip- myndir af 12 konum á ýmsum aldri og við ólíkt umh)verfi og að- stæður. Sögurnar eru um margt nýstárlegar, frásögnin er stuttorð og lesandanum er gefin í skyn stærri saga en myndimar sýna. Og vafalítið er að höf. skynjar sálarlíf og tilfinningar kynsystra sinna af samúð og næmleika. Bjami Benediktsson: Land og lýðveldi. Reykjavík 1965. Almenna bókafélagið. Þetta er fyrra bindi safnrits, er flytja skal sýnishorn og úrval af ritgerðum, ræðum og blaðagreinum Bjarna Benediktssonar for- sætisráðherra, frá því fyrst hann lætur til sín taka á vettvangi fræðimennsku og stjórnmála til dagsins í dag. Fjallar þetta bindi um sjálfstæðisbaráttuna, stjórnskipan og utanrikismál. Eru þar bæði fræðilegar ritgerðir og innlegg í deilumál dagsins. Víða er komið við, og þarna lýst mörgum þeim atburðum, sem hæst hafa risið í samtíðarsögu vorri, og þeir skýrðir. Vafalaust verða menn höfundi ósammála um margt eins og vænta má, því að um marga þessa hluti hefur verið deilt og verður sjálfsagt enn um langa hríð af þeim, sem fást við sögu samtíðar vorrar. En um það verður ekki deilt, að höfundur er i senn margfróður, rökvís og skýrorður, og ritar kjarnmikið íslenzkt mál, sem vera má hverjum til fyrir- myndar. Eins og vænta má, eru greinar þessar ekki skemmtilestur í orðsins venjulegu merkingu, en góður fengur öllum þeim, sem fræðast vilja um samtíðarsögu landsins, því að safn þetta er mik- ilsverð heimild um hvað jafnumsvifamikill stjórnmálamaður og Bjarni Benediktsson hefur lagt til mála á opinberum vettvangi. John le Carré: Njósnarinn, sem kom inn úr kuldanum. Reykjavík 1965. Almenna bókafélagið. Nærri daglega lesum vér í dagblöðunum um njósnir stórveld- anna hvers í annars garð. Njósnirnar eru mikilvægur þáttur í hinu kalda stríði um heimsyfirráðin. Skáldsaga þessi lýsir lífi njósnara eins og starfi með öllum spenningi njósnanna, öryggisleysi, hætt- um og illum örlögum þeirra, sem njósnanetið er spunnið um og þeir sjálfir hafa spunnið sér með atferli sínu. Sagan er þannig í senn spennandi og bregður upp mynd af merkilegu en miður þugnanlegu fyrirbæri í sögu nútímans. Þýðandi er Páll skúlason. St. Std.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.