Heima er bezt - 01.10.1965, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.10.1965, Qupperneq 36
433. Nú er ekki ura svefn að hugsa fyr- ir mig 1 nótt. .. . Hver hefir fengið Mikka? Ég er alveg eirðarlaus.... Ég sný mér reipi úr gömlum tuskum, festi það í gluggakarminn og renni mér niður. 434. F.n hvert skal nú halda? Hvar get ég fengið fréttir? Ég klappa gætilega á rúðuna lijá Serki. Kannski hann geti frætt mig um, hver hafi farið með Mikka — og hvert? 435. Serkir opnar gluggann gætilega. „Ég veit, hver hefir tekið Mikka, hvíslar hann æstur. Og nú getur hann ekki stillt sig: Það er hann Þorpa-Línus, sem er látinn lóga hundum og köttum. ..." 436. Ég verð alveg orðlaus af skelfingu! Það á þá að drepa hann Mikka minn! Ég hleyp af stað burt frá húsinu, fyrst út í bláinn. En svo mæti ég manni, sem get- ur sagt mér hvar Þorpa-Línus eigi heima. 437. Dauðskelkaður nálgast ég kofa Þorpa-Línusar. Skyldi hann hafa Mikka inni hjá sér? Er Mikki ennþá lif- andi. .. . ? Ég læðist að kofanum og blístra á Mikka, eins og ég er vanur. 438. Glaðhlakkalegt gjamm innan úr kofanum gefur mér til kynna, að enn sé Mikki á lífi. Mér léttir fyrir brjósti! Skyndilega er kofahurðin opnuð, og maður gægist út í myrkrið. Hann stend- ur lengi á dyrahellunni. 439. Ég vaki alla nóttina í skógarjaðrin- um skammt frá kotinu. Hugur minn þeytist í allar áttir. Hvað á nú tii bragðs að taka til að bjarga aumingja Mikka! Undir morgun sofna ég upp við tréð, sem ég sit undir. 440. Ég vakna við kveinkandi hunds- gelt. Ég sprett upp eins og lostinn raf- sprengju. Ég er ekki iengi að átta mig. — Þetta er rödd Mikka! — En hvar og livað- an berst hún mér? 441. Ég þýt af stað og hleyp í áttina á hljóðið. Ég heyri Mikka tii skiptis bofsa og gjamma æsilega. Ég sé mann standa í skógarrjóðri og lyfta byssu gegn bundn- um hundi og hleypa af. .. .

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.