Heima er bezt - 01.03.1969, Side 2

Heima er bezt - 01.03.1969, Side 2
Menning og menntun iVtenntun hefur verið skilgreind á ýmsan hátt, enda svo fjölþætt hugtak, að ekki verður það skýrt í einu orði né setningu. Meðal annars er menntun skilgreind svo, að hún sé fólgin í að greina aðalatriði frá auka- atriðum, hismið frá kjarnanum, eða í því að greina stað- reyndir frá hugarburði, og að bera virðingu fyrir stað- reyndum, en ef svo er gert þá leiðir af því virðingu fyr- ir mannhelgi og kunnáttu í að fara með frjálsræði og beita réttum leikreglum. Sannmenntaður maður kann að þola þau bönd, sem frjálst samfélag hlýtur að leggja á hann, svo að það fái staðizt. Hann leitar leiðréttingar mála sinna eftir lýðfrjálsum leiðum en ekki með hnefa- höggum. Uppeldi þjóðarinnar frá fyrstu bernsku til fullorðins- ára hvílir sífellt meira og meira á skólunum. Starf þeirra verður bæði meira og ábyrgðin þyngri. Hljótum vér þá ekki að leggja þá spurningu fyrir oss, hvort skólarnir í kappi sínu að gefa sem flesta fróðleiksmola og þekkingu, svo sem nútíminn krefst, hafi að einhverju leyti misst sjónar á eða glatað möguleikunum á að rækja það, sem mest á ríður, að ala upp ungmenni með sterkri skaphöfn, siðgæðisþreki og almennum félagslegum skilningi. Mér er ekki fyllilega ljóst, með hverjum hætti þeim þætti skólastarfsins yrði við komið, en víst er, að með aukn- um tíma og sérmenntuðum uppeldisráðunautum mætti þoka þessu nokkuð áleiðis, en um leið og fremur öllu öðru gerir það starf kröfur til persónuleika, þroska og heiðarleika kennaranna sjálfra. Val þeirra verður að vanda, en slíkt tekst ekki meðan kennarastarfið er jafn lítt eftirsótt og raun ber vitni um. En þó er ekki að saka skólana og kennsluna eina um það, sem miður fer í þess- um efnum. í kröfum nemenda til skóla sinna ber sífellt mjög hátt, hvað það sé af námsefninu, sem mestar vonir gefur um fjárhagslegan arð. Slíkt viðhorf er að vísu skiljanlegt í því blinda kapphlaupi, sem háð er um hylli gullkálfsins í heiminum, en af því leiðir óhjákvæmi- lega, að mönnum gleymist að leita þeirra verðmæta, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Það er lögmál lífsins, liggur mér við að segja, að æsk- an sé gagnrýnin og aðfinnslusöm, og sé um leið ófeim- in að láta skoðanir sínar í Ijós. Ekkert er nema gott um það að segja, meðan slíkt fer fram eftir löglegum leik- reglum hins lýðfrjálsa þjóðfélags. En því aðeins er gagn- rýnin nytsöm að hún sé jákvæð, að hún sé ekki ein- ungis til þess gerð að rífa niður og skapa glundroða, heldur hafi hún á reiðum höndum tillögur til úrbóta, ný goð að setja á stalla hinna gömlu. Og umfram allt verður gagnrýnin að vera fram borin á siðmenntaðan hátt en ekki með ofbeldisaðgerðum og ærslum. Ofbeldi knýr alltaf fram nýtt ofbeldi, ranglæti nýtt ranglæti, nýja hefnd, ef svo mætti að orði kveða. Því er það, að umbætur, sem knúnar eru fram með ofbeldis- verkum einum saman, verða löngum of dýru verði keyptar. Það er, og á að vera aðalsmerki sannrar mennt- unar í lýðræðisríki, að sneitt sé hjá slíkum aðgerðum, og að minni hyggju ætti það að vera undirstaða alls skólastarfs að kenna nemendum þessa fyrstu bókstafi í stafrófi menntunarinnar. Kærleikur og mannhelgi eru hornsteinar trúarbragða vorra, og um leið hornsteinar hins frjálsa þjóðfélags. Það er ungum manni meira virði að kunna þessi atriði til hlítar en allar formúlur og orða- romsur, þótt góðra gjalda séu verðar og ekki verði hjá þeim komizt. En líkt og veggurinn hrynur, ef undirstað- an er of veikburða, þá hrynur einnig vort lærða þjóð- félag ef hinn siðræna grundvöll skortir. Það var einmitt þetta, sem síra Matthías óttaðist meira en nístingskulda hafísanna, þegar hann orti eftirfarandi erindi: „Annar jötunn ógurlegri æðir allra þjóða menning hræðir miklu meir en eldur, ís og hel. Það er mannsins ævagamla æði, eldra en sögur, þjóðir, Nóaflæði, auðs og valda óþrotlegu él.“ Hann vissi sem var, að lögmál náttúrunnar var að bræða ísinn fyrr eða síðar, og þá mundi vorþeyrinn blása á ný, og sól skína í heiði. En hann óttaðist manns- ins ævagamla æði, að þar myndu niðurrifsöflin, ofbeld- ið, auðshyggjan og eigingirnin hafa tökin, og því mið- ur hefur hinn aldni skáldspekingur ekki óttast að ástæðu- lausu. Menning vor og menntun hefur unnið ótrúleg afrek. Vér tölum um það sem næstum sjálfsagðan hlut, að inn- an skamms svífum vér í gervihnöttum um himingeim- inn og til framandi hnatta, svo að eitthvað sé nefnt. 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.