Heima er bezt - 01.03.1969, Síða 6
eldra Eiríks á Löngumýri. Systkini Eiríks, sem til aldurs
komust, voru þessi:
Ingveldur, húsfreyja í Laugardalshólum.
Sigríður, húsfreyja á Vatnsleysu í Biskupstungum.
Ingibjörg, húsfreyja í Háholti í Gnúpverjahreppi.
Þórdís, húsfreyja í Reykjavík.
Bjarni, bóndi og smiður á Hlemmiskeiði.
Þórður, bóndi á Reykjum.
Kolbeinn, húsgagnasmiður í Reykjavík.
Ingvar, bókbindari í Reykjavík.
Þorgeir, bóndi og smiður á Hlemmiskeiði.
Gunnar, bóndi í Miðdal í Laugardal.
Eiríkur, er var elztur, dó úr lungnabólgu við sjó,
24 ára.
Þorsteinn drukknaði á Stokkseyri 24 ára.
Var til þess tekið, þegar þessi stóri systkinahópur
var að alast upp, hvað hann var myndarlegur. Öll voru
systkinin mikið gefin fyrir söng og fagra rödd, sumir
bræðranna urðu atkvæðasmiðir.
Á uppvaxtarárum Eiríks var félagslíf í sveitum fá-
breytt og öll aðstaða til þess líka erfið. Á fyrstu árum
aldarinnar barst Umf.-hreyfingin hingað til lands, æska
sveitanna tók henni opnum örmum. Ungmennafélögin
urðu mörgum sveitum mikil lyftistöng. í þeim fékk
margur unglingurinn mikla, félagslega þjálfun, sem átti
eftir að koma honum að gagni síðar á lífsleiðinni. Um-
ræðufundir félaganna höfðu stórlega vekjandi áhrif og
jók bjartsýni unglinganna á framtíð sveitanna.
Þegar Eiríkur var 21 árs gekkst hann fyrir stofnun
ungmennafélags í sveitinni, sem nú hefur starfað ósht-
ið í 61 ár. Hefur þar verið unnið mikið starf fyrir ein-
staklingana og félagsheildina. Um tildrögin að stofnun
þess segir hann meðal annars, er hann rifjaði upp minn-
ingar sínar frá fyrstu árum félagsins, fyrir stuttu síðan:
„I janúar 1908 var haldið bændanámskeið í Þjórsár-
túni. Var þar fjölmenni í eina tíu daga. Var ég á þessu
námskeiði, en ekki aðrir af Skeiðunum. Auk kennslu-
stundanna voru talsvert stundaðar íþróttir, glímur og
leikfimi. Á kvöldin og flesta morgna voru umræðu-
fundir um ýmis málefni. Þóttu þessir fundir mjög
skemmtilegir, og er ég viss um, að þetta námskeið
flýtti talsvert fyrir stofnun ungmennafélaganna, enda
mörg stofnuð 1908. Á þessu námskeiði ríkti mikill fé-
lagsandi.
Síðari hluta vetrar fór ég til Reykjavíkur í vinnu,
gekk ég þá í Umf. Reykjavíkur, sem þá var svo til ný-
stofnað, kynntist ég þar mörgum ágætismönnum, sem
síðar urðu þjóðkunnir menn. Þegar ég svo kom heim
um vorið, fór ég bráðlega að tala við menn um að við
stofnuðum ungmennafélag í sveitinni, og tóku flestir
Konungur ásamt fylgdarliði sœkja heim bóndann að Reykjum á Skeiðum. — í hægra horni má sjá þá Klemenz Jónsson og
Hannes Hafstein.
78 Heima er bezt