Heima er bezt - 01.03.1969, Side 7
vel í það. Var mér falið að boða til fundar, sem ég
gerði fljótlega.
Þann 24. maí var fundur haldinn í þinghúsinu og
Umf. Skeiðamanna þá stofnað með 17 félögum. Stjórn-
arkosning fór þannig að við Reykjabræður hlutum
kosningu: Eiríkur formaður, Þorgeir féhirðir og Gunn-
ar ritari. Kom það sér nú vel að hafa nokkuð kynnzt
þeim félagsskap, sem ég hefi áður lýst.“
Eiríkur lauk búfræðiprófi frá Elvanneyri vorið 1912,
eftir tveggja vetra nám. Vorið 1915 kvæntist Eiríkur
Ragnheiði Ágústsdóttur, er var mikilhæf og vel mennt-
uð ágætiskona. Ragnheiður var fædd 9. marz 1889, dótt-
ir hinna landskunnu hjóna Móeiðar Skúladóttur og
Ágústar Helgasonar í Birtingaholti.
Þau Ragnheiður og Eiríkur hófu sama vor búskap
Ragnheiður i trjágarðinum sínum, leiðir Ragnheiði Jóns-
dóttur frá Skipum.
Ingigerður Eiriksdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson, Reykjum.
á hálfri jörðinni Löngumýri á Slteiðum, sem þau þá
keyptu, en 1921 tóku þau við hinum hluta jarðarinnar
og festu þá jafnframt kaup á honum. Búskaparsaga
þeirra varð alls 52 ár. Seinni árin voru þau farin að
minnka við sig. Ágúst, elzti sonur þeirra, bjó þar líka,
og hefur hann nú tekið við allri jörðinni. Miklar fram-
kvæmdir í byggingum og ræktun gerðu þau á jörðinni.
Meðan áveitan var notuð á Skeiðum voru mjög góðar
engjar á Löngumýri, og var hægt að vinna þær með
vélum.
Yfir heimilinu á Löngumýri var léttur og frjálsleg-
ur blær. Hjónin og börn þeirra hlutu í vöggugjöf mikla
hæfileika á sviði söngs og hljóðfæraleiks. Bæði lærðu
þau Ragnheiður og Eiríkur að leika á hljóðfæri á unga
aldri og stóðu fyrir fjölbreyttu tónlistarlífi í sveitinni,
um langan aldur. Þegar gesti bar að garði settist oft
annað hvort þeirra við hljóðfærið, og þá var spilað og
sungið. Eiga margir góðar endurminningar frá slíkum
stundum.
Einn sterkasti þátturinn í fari Eiríks var, hvað hann
var félagslyndur og hneigður til félagsstarfa, enda fór
það svo, að hann var kvaddur til margvíslegra starfa
fyrir sveit sína um áratugaskeið. Hann var listrænn
Heima er bezt 79