Heima er bezt - 01.03.1969, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.03.1969, Blaðsíða 12
Heimkynni sauðnautsins, merkt með svörtu á kortinu. þétt saman, og eru kálfar og ungkýr þá inni í miðjum hnappinum, en nokkrir stórir og sterkir tarfar stilla bakhlutanum upp í veðrið, og veita hópnum þannig skjól og hlíf. Þannig geta dýrin staðið, að því er virðist í sömu sporum, svo sólarhringum skiftir, eða meðan illviðrið varir, en slík veður koma þarna einkum fyrri part vetrarins. Seinni part vetrar fara hóparnir að dreif- ast, og fjölskyldurnar að skilja, enda verður samlynd- ið stirt þegar líða tekur að fengitíma kúnna. Eftir þann tíma eru aðrir fullþroska tarfar en fjölskyldufaðirinn hiklaust reknir úr fjölskyldunni, og fara tarfarnir þá mikið einir saman. Við og við reyna þessir eingenglar að verða sér úti um fjölskyldu, annaðhvort með því að safna um sig kvígum úr einhverjum hóp, eða með því að reka fjölskylduföðurinn burt úr einhverjum hópn- um. Fylgja þessu oft miklir bardagar sem von er, því gömlu tarfarnir eru ekki á því að gefa viljugir upp völdin. Svo virðist, sem sauðnautin á Grænlandi þekki að- eins einn óvin, en það er úlfurinn. Gagnvart honum eru þau stöðugt á varðbergi, og hafa fundið upp mjög áhrifaríka baráttu- og varnaraðferð gegn honum. Þeg- ar dýrin verða hans vör hópast þau þétt saman, á svip- aðan hátt og áður var lýst, og mynda fullorðnu dýrin þá hring um ungdýrin, en snúa nú öll höfðinu út á við, og mynda þannig eins konar skjaldborg, sem úlfinum reynist óvinnandi. Gerist hann nærgöngull, fær hann óspart að kenna á oddhvössum hornum og klaufum, enda tekur hann þá oftast þann kostinn að lurfast í burtu og bíða betra tækifæris. Þessa sömu aðferð nota sauðnautin einnig gagnvart hundum veiðimanna, og því er næsta auðvelt að skjóta niður heilan hóp af þeim. Þeim dettur einfaldlega elcki í hug að grípa til þess eina úrræðis, sem mögulegt er til bjargar, þ. e. að flýja eða ráðast á veiðimennina, enda virðast þau ekki skynja manninn sem neina hættu. Þegar tekið er tillit til þess, að nú eru þegar liðnar nokkrar aldir síðan þau komust í kynni við skotvopn mannanna, verður þetta að teljast furðulegur skortur á aðlögunarhæfni. Eins og nærri má geta, er sauðnautastofninn á Norð- austur-Grænlandi í mikilli hættu vegna þessarar varnar- aðferðar þeirra. Jafnvel þótt ekki sé ætlunin að skjóta nema eitt dýr úr hópnum, er oft ómögulegt að ná til þess, fyrr en allur hópurinn hefur verið að velli lagð- ur. Niðurstaðan verður því oft sú, að mun meira er drepið af sauðnautum en þörf er á og hægt er með góðu móti að nýta. Þess má geta, að refaveiðimenn nota kjöt sauðnautanna nær eingöngu sem hundafóður. Þá hefur og nokkuð kveðið að því, að gerðir hafa verið út leið- angrar til að sækja sauðnautakálfa, annaðhvort til rækt- unar eða í dýragarða. Fer þá allt á sömu leið, að ómögu- legt reynist að ná kálfunum, fyrr en öll eldri dýrin í hópnum hafa verið drepin. Nú eru sauðnautin algerlega friðuð í Kanada og hefur þá ásóknin aukizt mildð í grænlenzka stofninn, enda þótt nokkrar hindranir hafi verið lagðar á sauðnauta- veiði þar nýlega. Eins og þegar var minnzt á, hefur nokkuð kveðið að því í seinni tíð, að gerðar hafa verið tilraunir með að flytja sauðnaut til annarra norðlægra landa og fá þau til að ílendast þar. Flestar hafa þessar tilraunir gefist illa, að ekki sé meira sagt. Ein slík tilraun var gerð hér á landi árið 1929. Voru fengnir grænlenzkir kálfar og settir niður á Gunnarsholti á Rangárvöllum. Þeir munu allir hafa drepizt fljótlega eftir hingaðkomuna. Önnur tilraun var gerð litlu seinna og fór allt á sömu leið. f Noregi hafa verið gerðar margar tilraunir með innflutn- ing sauðnauta, en allar hafa þær mistekizt nema á Sval- barða. Þar hefur sauðnautunum fjölgað nokkuð og munu nú eitthvað á annað hundrað. Athyglisverð til- raun var nýlega gerð með ræktun sauðnauta í Alaska, og virðist hún hafa gefizt vel. Reyndust dýrin fremur auðveld viðureignar og fóðruðust sæmilega. Má vera, að sauðnautið eigi eftir að öðlast þýðingu sem húsdýr í heimskautalöndum jarðarinnar. Sú spurning heyrist nú oft hér á landi, hvort ekki sé athugandi, að reyna innflutning sauðnauta á ný. Telja sumir, að ekki hafi verið rétt að farið, þegar þetta var reynt, og því ekki fullreynt hvort þau gætu þrifizt hér. Ef dæma má eftir ofangreindri reynslu Norðmanna og fleiri þjóða, er þó lítil von með að þetta heppnist. Hitt er þó augljóst, að Suðurland er sá landshluti, sem minnstar líkur eru til að sauðnautin geti þrifizt í, vegna þess hve loftslagið er þar umhleypingasamt. Mun meiri líkur eru til þess að þau lifðu á Norðausturlandi, og þá einkum á hálendinu norðan og austan Vatnajök- uls, þar sem hreindýrin eru nú. Þar er einna mest meginlandsloftslag á íslandi, og veð- ur því stöðugast að vetrinum, enda þótt það sé engan veginn eins stöðugt og veðráttan í heimkynnum sauð- nautsins á Norðaustur-Grænlandi. Sauðnautið þolir rnjög illa bleytur, einkum þó að vetrinum, enda virðist háraklæðning þess öll miðuð við þurran kulda. Þolir það mikil og langvarandi frost bet- ur en líklega öll dýr önnur. Bleyta og krapasnjór hleðst (Framhald á blaðsíðu 93). 84 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.