Heima er bezt - 01.03.1969, Page 17

Heima er bezt - 01.03.1969, Page 17
frumbyggjar í Esldfelli áttu þegar þau fluttu að Hlíð. Sagnir eru til um sauðaeign þeirra, 40 sauðir mislitir, flestir arnhöfðóttir, en að langmestu leyti var fé þeirra hvítt. Sagnir um fjárfelli hjá Jóni Markússyni hef ég ekki heyrt, en sagt var eftir honum, að slæmt þótti ef ein og ein kind fannst dauð; þoldi jafnvel betur þá fleira fór. Það mun ekki oft hafa orðið. Fennihætta er lítil í Eskifellsfjöllum, og að jafnaði snjólétt í norðaustan átt. Litlar sagnir eru um mjög harða vetur þessi ár, sem byggð var í Eskifelli. Ein saga er þó um fjárskaða. Eftir fennibyl vill Jón Mark- ússon huga að útigangsfénu, en biður Valgerði að hleypa út lömbum, sem höfðu verið hýst í hellum tveim í Hellisskógi, sem er austan Jökulsár. Er þau hittust síðar þennan dag, spyr Jón um lömbin. Þau voru köfnuð segir Valgerður, því fennt var fyrir. Og líka í efri hellinum, segir Jón. Nei, þeim hleypti Valgerður í haga. Þá eigurn við þau, segir Jón. Lét sér það nægja. Jón Markússon varð 82 ára gamall. Var faðir minn, séra Jón, kominn að Stafafelli fyrir dánardægur hans 1891, en ég þá 6 ára. Kynntist ég því fólki, sem með Jóni hafði verið, og set hér fáar sagnir eftir því um Eskifellshjónin. Þær hafa ekki farið margra á milli, svo telja má þær nær sanni. En Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri á Akureyri, hefur skrifað þátt um afa sinn í ritið Austurland, IV. hefti, og vil ég vísa til þess sem fyllri frásögn. Sigurður Jónsson bóndi á Reyðará, afi Þorsteins, sem þar býr nú, var vinnumaður í Hlíð og samtíða Jóni Markússyni á elliárum hans. Tók hann til þess hversu þessi gamli afreksmaður hefði verið laus við karla- grobb og sjálfhælni. Einn dag unnu Hlíðarpiltar að hellutaki í farvegi Reyðarárinnar, sem þá var nærri þur. Var hellan notuð í húsaþök og flutt á klakk, sem kallað var; grágrýtisþynnur, granófyr. Stærstu hellurnar voru fullkomið ldyf öðru megin á hest, aðrar léttari. Milli- ferðamaður með hellulestína var Sigurður, yngstur vinnumanna. Að loknu dagsverki talar Jón gamli við Sigurð um hellutakið og segir: „Aldrei held ég, að ég hefði getað unnið þetta verk, sem þú gerðir í dag“. — Svo fór hann að tala um sauði sína, sem hann fylgdi á haga í góðri tíð allt fram á elli- ár; beitti þeim í fjall beggja megin Hlíðar, en sauðahúsin stóðu úti í landi langt neðan við Hlíðarbæinn, sjást þar enn vel tættur þeirra grjóthlaðnar. Fjallaþrái var sauð- unum í blóð borinn og varð að fylgja þeim alla daga er út leið vetrar í góðum veðrum. — „Aldrei kom ég svo seint með þá úr fjalli, að ég lofaði þeim ekki að taka niður á Bláberjamýrinni“, en auðvitað fór þetta eftir því hvar hagi var beztur og hvernig veðrið var. Jón var þó bagaður á fæti, síðan hann klemmdist, er snjó- flóð féll á bæinn veturinn 1857. Þá stóð Hlíðarbærinn nær fjallinu en hann stendur nú. Hættast var þó Jón kominn eitt sinn við vetrarsmölun í Eskifellsfjöllum, en þar eru fjárgötur víða tæpar. Var víst á heimleiðinni af Kömbum, sennilega með kindur og stanzar þar sem kindurnar renna yfir svo nefnda Tæpugötu. Hægt er að komast fram hjá henni með því að fara upp á hjalla ofar í fjallinu, en ekki hafði hann lagt það í vana sinn að snúa frá götunni. Nú hikar hann samt, því þunn hjarnfönn er þar, þótt kindurnar komist yfir. Hann leggur samt til hennar, þótt hengiflug sé þar neðan við, hrasar á hálku og rennur flatur fram að hamrabrúninni, en stöðvast þar á steinnibbu, er stóð upp úr hjarninu, með því að treyja hans festist á snösinni, getur svo skriðið að grjótvölum og klórað sig þar upp. Hefur þá notað aðra leið til heimferðar. Eitt það erfiðasta við búskap í Eskifelli var að fara yfir Jökulsá og ekki sízt í göngum, því þar fellur hún víðast hvar í einu lagi ströng og stórgrýtt í botni. Taldi Jón eina ferð, er hann leitaði kinda í Kollumúla, þá verstu, er að ánni kom. Hafði áin vaxið meðan hann var í Múlanum, en heim varð hann að komast; treysti á rauðviðarstafinn, sem oft áður, en óttaðist að verða of léttur er út í strenginn kæmi. Tók hann þá það ráð að binda við sig hellustein, allþungan, með sauðabandi, er alltaf fylgdi með í göngum. Honum tekst þannig að vaða yfir ána, sem nær því skall undir hönd hans straum- megin. En sagði síðar, að aldrei skyldi hann slíkt aftur reyna, því ef hann hefði dottið eða skrikað á hálum steini hefði hellan orðið sér að bana. Á þessum árum reru bændur til fiskjar er á vetur leið á vetrarvertíð, mest einn frá hverju heimili í Lóni. í þeim sjóferðum tók Jón einnig þátt, þótt hans sjávar- gata væri nærri helmingi lengri en flestra hinna í Þor- ucirsstaðaklif eða Hvalneskrók. Að Hvalnesi var enn lengri leið úr Eskifelli, en oft fisksælt þar á vorin. — Alltaf fór Jón gangandi, lítið um hesta hjá honum. — Sagt er, að eitt sinn er Jón fór til sjós frá Hvalnesi, var báturinn róinn, er hann kom á bæinn. Fólkið fór þá að aumkva hann eftir svo erfiða göngu að missa af hlutnum. Þá svaraði Jón: „Hvað er skaðinn hjá skömm- inni“. Skemmtilega sögu heyrði ég ungur af landnámshjón- unum í Eskifelli — á þeirra fyrstu búskaparárum þar. Að vorlagi, líklega í vorkuldum, ræða þau um það hvaða verkefni sé nú nauðsynlegast, og kemur saman um að það sé að byggja fjárrétt, og skyldu þau forma fyrir henni, taka þau nú að ráðgast um stærð réttarinn- ar, taldi bóndi að rétt væri að hafa hana stærri, en rétt dygði í bráðina, en húsfreyja vildi hafa hana miklu stærri, og er sagt að hún hafi markað fyrir veggjum hennar og sagt, að Iíklegt þætti sér að þau muni ein- hvern tíma eignast fé í svo stóra rétt, fulla. Lét Jón hana ráða, en sagði síðar, er árin liðu, að ekki hefði réttin gert betur en rúma fé þeirra síðustu árin, sem þau bjuggu í Fellinu. Þarna í fjöllunum gátu þau lifað hljóð án afskipta annarra, og séð um sitt. En eftir að þau fluttu að Hlíð var ágangur nokkur á land þeirra af gripum næstu bæja. Er sagt að eitt sinn er nokkuð var rætt um þennan ágang heima í Hlíð, hafi húsfreyja sagt: „Það vildi ég að kominn væri svo hár garður kringum allt Hlíðarland, að ekkert kæmist þar yfir Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.