Heima er bezt - 01.03.1969, Page 24

Heima er bezt - 01.03.1969, Page 24
LÁRA BÖÐVARSDÓTTIR FRÁ LAUGARVATNI: „Hann gengur svo hratt g var um 7 ára, þegar ég fór mína fyrstu ferð á Mósa með kaffið á engjarnar. Ég hafði oft , farið með það gangandi, en nú taldi mamma í mig kjark. — „Þú getur þetta eins og Sigga,“ sem var ári eldri. Hún hafði fyrir löngu, að mér fannst, lagt beizli við hvaða hest heimilisins sem var og þeytzt úr hlaði, en ég forðaði mér ævinlega upp á hesthúsþakið og þóttist hafa sloppið vel úr háskanum. Ég hlýddi mömmu og tók beizli úti í hesthúsi og fór vestur fyrir tún. Þar stóð gamli Mósi, undir því nafni gekk hann. Hann virtist standa þarna og bíða, ég gekk til hans dauðhrædd um að hann mundi neita að láta beizla sig, fara með hausinn hátt upp eða bíta mig. En allt í einu kemur hann röltandi á móti mér, ég leysti úr beizlinu og sagði eitthvað, sem hann víst skildi mætavel, því beizlið flaug upp í hann, og svo labbaði hann inn í djúpa götu og leit til mín. Já, Mósi minn var eins og ég vildi hafa hann. Ég strauk honum hátt og lágt og lofaði honum, að ég skyldi alltaf gefa honum brauð og ná flugum úr eyrunum á honurn og augnakrókum, ef hann lofaði að hrekkja mig ekki. Mér fannst hann brosa, en það var sjálfsagt hugarburður. Ég kom ríðandi í hlað- ið, og mamma beið brosandi með kaffið, sem ég átti að færa út á engjar. — „Láttu hann ráða ferðinni, hrædd þarftu ekki að vera, honum er treystandi, honum Mósa gamla“. — Ég treysti engum betur en mömmu, svo ég hélt úr hlaði. En þegar ég sá ekki mömmu lengur vegna Melhólsins, fór kökkur að koma í hálsinn, kaffiklútur- inn og flöskurnar voru komnar ískyggilega framarlega á Mósa og ég sjálf var líka farin að hallast. En þá allt í einu staðnæmdist Mósi og ég reyndi að lagfæra hafur- taskið, en af baki þorði ég ekki. Mósi réði ferðinni og hélt aftur af stað og hélt ferðinni áfram hægt og síg- andi austur Flatirnar. Mósi minn skildi allt, hann fann víst líka, að ég kveið fyrir að leggja í mýrina, og stóra keldan fram undan. En ég fór víst svo hægt, að engja- fólkinu þótti nóg um. Laufey systir var send á móti mér og þegar við mættumst var ég organdi. — „Hvað er nú að þér, væna mín?“ spyr hún. — „Hann gamli Mósi gengur svo hart,“ sagði ég. Hann hafði þó aldrei ÍSLENZKI HESTURINN upp af fetinu farið og reynt að gera mér allt til hæfis. En þessi ferð tók enda og varð ekki sú síðasta. Þær urðu óteljandi. Þegar ég var háttuð fyrir ofan pabba um kvöldið, gerði ég upp í huganum við gamla Mósa ferðalagið okkar. Hann gat ekki gert betur, það fann ég allt eftir á. Hann hvorki beit né sló né fór upp af fetinu. Þetta hafði ég óttast svo mjög, að hann mundi gera. Nei, hann var fullkominn og ég fann, að allt í einu þótti mér orðið innilega vænt um hann. Ég spurði pabba, hvort hestur eins og Mósi yrðu nokkurn tíma seldur til ókunnugs manns. Nei, Mósi verður ekki seldur aftur. Pabbi hafði selt hann einu sinni, en keypti hann aftur. Þetta vissi ég seinna. En var Mósi svona fallegur og mikill gæðingur? Því verður ekki svarað játandi. En hann varð samt að lokum viðurkenndur bezti hestur heimilisins. Síðast, þegar ég man eftir honum, höfðum við krakkarnir eignast gamlan blikkbala, sem við settum band í og drógum hann á eftir okkur, vorum að draga í búið. Mósi kom skokkandi til okkar til að sjá farar- tækið, en mér fannst hann ekki glaður á svipinn, eða var samvizka mín ekki í lagi. Vorum við að taka hann úr leik, var balaskriflið að taka við hans hlut- verki? Hafði gamli Mósi ekki reynzt okkur vel, öllum krakkaskaranum, og lofaði okkur að gæla við sig og alltaf reiðubúinn að fara í austur og vestur stuttan spöl eða langan, stundum með þrjú stykki á bakinu. Þegar ég rifja upp æskuminningar mínar með gamla Mósa, finnst mér hann vera einn af þeim elskulegustu hestum, sem ég hef kynnzt, og þegar ég hugsa um hann, að þótt dýrurn sé ekki gefið mál, þá skilji þau okkur og að því sé oft of lítill gaumur gefinn. Gamli Mósi gegndi þýðingarmiklu hlutverki á mínu æskuheim- ili. Við vorum 12 systkynin og mér er óhætt að full- yrða, að hann átti stóran þátt í velferð okkar yfir holt og hæðir, er sóttar voru kýrnar, fært á engjar eða sent til næsta bæjar. Hann skilaði öllu heilu heim, sem hon- um var trúað fyrir. Þegar gamli Mósi var felldur, var hann syrgður af öllum á heimilinu, einlægur vinur hafði kvatt lífið. Það er ekki til mynd af þessum eftirlætishesti, en ég á þó eina mynd skíra í huganum, þegar ég rifja þetta upp. Og henni fylgir líka sú von, að enn sem fyrr, er mér liggur á samfylgd við hann, ltomi hann á móti mér og staðnæmist hjá mér. 92 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.