Heima er bezt - 01.03.1969, Síða 27

Heima er bezt - 01.03.1969, Síða 27
ÞATTUR ÆSKUNNAR RITSTJORI HVAÐ UNGUR NEMUR NÍLARFLJÓT 1. Móses í örkinni. Líklega er það sagan af Móses sem fyrst vekur at- hygli barna á ánni Níl. — Sagan urn björgun Móses er falleg og yfir henni er ævintýraljómi. — En hið sögu- lega svið, á bak við söguna um björgun drengsins, er harmsaga þjóðar, sem beitt er kúgun og fantabrögð- um. ísraelsmenn, afkomendur Jósefs og ættmenna hans, sem á sínum tíma fluttust til Egyptalands í boði kon- ungsins, sem taldi að Jósef, með ráðsnilli sinni, hefði bjargað ríkinu frá sultar-þjáningum, — þeir voru nú orðnir illa séðir í Egyptalandi. í biblíunni er sagt að upphaflega hefðu flutt til Egyptalands af frændfólki Jósefs aðeins um 70 manns. — En svo liðu aldir oe ára- tugir og frægð Jósefs var grafin og gleymd, en afkom- endum ættfólks hans fjölgaði mjög ört, svo að heima- þjóðin — Egyptalandsmenn — fóru að óttast það, að þeir tækju völdin í landinu og reyndu því að þrengja sem mest að þeim, og þjá þá á alla lund. En ekkert dugði. — Þeim fjölgaði stöðugt og þjóðarauðurinn safn- aðist mjög í þeirra hendur. Þeir voru kallaðir LJebrear í Egyptalandi, og þótt þeir væru aðeins lítið brot af þjóðarheildinni, þá óttuðust Egyptar að þeir myndu smátt og smátt fá yfirhöndina í landinu. Þá var útgefinn hinn grimmdarfulli konungsboðskapur: „Öll sveinbörn skal deyða við fæðingu, en stúlkubörn mega lifa.“ — Þessi hræðilegi konungsboðskapur var jafn hryllilegur og boðskapur Eleródesar barnamorðingja nokkrum öldum síðar. Á þessum hörmungatímum gerist ævintýrið með Móses. — En sú saga er þannig sögð í biblíunni: Ung hjón af ættkvísl Leví hófu búskap meðal ætt- menna sinna í Egyptalandi. Konan varð þunguð og eignaðist son. Það var mikill sorgar-atburður, því að meybörnin ein máttu lifa. Konan reyndi að leyna fæð- ingu sonarins, og tókst það um þriggja mánaða tíma. En er hún gat ekki leynt honum lengur, gerði hún handa honum örk* af reyr og þétti hana með jarðlími og biki, lagði sveininn í hana, og lét örkina út í sefið við árbakkann, en systir hans, stálpuð, stóð þar álengd- ar, til að vita hvað um hann yrði. — Þá gekk dóttir Faraos ofan að ánni til þess að lauga sig, og gengu þjónustumeyjar hennar eftir árbakkanum. Konungs- dóttirin leit örkina í sefinu, og sendi eina þernu sína að sækja hana. En er konungsdóttir lauk upp örkinni, sá hún barnið. Og sjá! — Það var sveinbarn og var að gráta. Hún kenndi í brjósti um sveininn og sagði: „Þetta er eitt af börnum Hebrea (þ. e. ísraelsmanna). Þá sagði systir sveinsins við dóttur Faraós: „Á ég að fara og sækja fyrir þig barnfóstru, einhverja hebreska konu, að hún hafi sveininn á brjósti fyrir þig?“ — Og dóttir Faraós sagði við hann: „Já, far þú.“ En mærin sótti þá móður sveinsins. Og dóttir Faraós sagði við hana: „Tak svein þennan með þér og haf hann á brjósti fyrir mig, og skal ég launa þér fyrir.“ Tók konan þá sveininn og hafði hann á brjósti. En er sveinninn var vaxinn, fór hún með hann til Þ. e. körfu.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.