Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1969, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.03.1969, Qupperneq 29
er fært. Egyptar kalla þessi foræði sudd og það þýðir eiginlega tálmanir. Þessi sudd-foræði eru eins konar fljótandi eyjar, sem hafa myndazt úr papírus-jurtinni og margs konar öðrum vatnajurtum. Sýnist þetta eins og land yfir að líta, en er þannig, að hvorki er hægt að komast í gegnum það eða eftir því. Um margar aldir hindraði þetta siglingar um Hvítu- Níl, því að fljótabátar fyrri alda gátu engan veginn rutt sér braut í gegnum þessi foræði, þótt reynt væri að þræða kvíslarnar, og gangandi mönnum voru þessar floteyjar víðast alófærar. Það var ekki fyrr en í byrjun 20. aldarinnar, að Englendingum tókst að „skerau eða „sprengja“ með mikilli fyrirhöfn, eins konar skipaskurð eftir fljótinu í gegnum þessi „sudd“-svæði. Eftir þessum skipaskurði lá nú leiðin. Það var leiðin- leg siglingaleið. Meðfram skurðinum, eða kvíslinni, sem siglt var eftir, uxu um sex metra háar „papírus“-]mút: og byrgðu alla útsýn. Árni hafði lesið um það í skólanum, að Forn-Egypt- ar hefðu notað þurrkuð blöð þessarar jurtar, eins og við notum pappír, en hann hafði aldrei hugsað frekar út í þetta. En nú fór hann að hugsa um, hvort það gæti verið rétt, að þeir hefðu notað blöð þessarar einkenni- legu, stórvöxnu jurtar. Þau líktust blöðum burkna og blöktu þarna hátt uppi á gildum stönglinum. Ofurstinn, sem var svo fróður um flesta hluti, sagði þannig frá: „Það er rétt athugað hjá þér, drengur minn. — Það voru ekki blöðin, sem fommenn notuðu til pappírs- gerðar, heldur stöngullinn. Þeir ristu hann að endi- löngu, tóku úr honurn „merginn“ og átu hann ýmist soðinn eða hráan. Þeir lögðu svo þessar lengjur hlið við hlið á stóra borðplötu og lögðu svo aðrar lengjur þvert yfir hinar. Síðan tóku þeir borðplötuna og sökktu henni í vatn. Þá leystist upp límkenndur safi úr jurtinni og allt límdist saman. Síðan var þetta pressað og þurrkað og þá var örkin tilbúin. Um mörg hundruð ár var papírusörkin eina efnið, sem þekktist til að skrifa á, og var þetta því mikil útflutningsvara, sem Forn-Egyptar græddu mikið á. — En litlu eftir að Kristur fæddist, fann maður í Perga- mon í Litlu-Asíu aðferð til að verka skinn á sérstakan hátt, til að skrifa á það. Þar með missti papírus-jurtin gildi sitt til útflutnings. „Er þá jurtin til einskis nýt nú á dögum“? spurði Árni. „Nei. — Hún hefur jafnan nokkuð gildi fyrir þá, sem hér eru búsettir. Þeir éta merginn eins og forfeður þeirra gerðu fyrir mörgum öldum. Líka þurrka þeir stöngulinn til eldiviðar og úr honum vinna þeir efni í kaðla, segl, skófatnað o. fl.“ Og enn hélt ofurstinn áfram að fræða Árna og sagði: „Annars býst ég við að þetta landsvæði eigi fyrir sér mikla framtíð, þótt það verði ekki beint í sambandi við þessa jurt. — í skólanum hefur þú líklega lært það, að leirinn, sem Níl flytur með sér, þegar hún flæðir yfir Nílardalinn, sé undirstaða að frjósemi landsins. — En sá leir kemur ekki frá Hvítu-Níl, heldur Bláu-Níl. Hér er landið svo flatt, og fljótið svo straumlaust, að leir og gróðurefni, sem Hvíta-Níl flytur með sér úr fjöllunum, fer ekki lengra. Hér hefur því á árþúsund- um myndazt mikið land af framburðinum, sem aðeins bíður eftir því, að það verði tekið til ræktunar. En hér vantar meðal annars vinnuaflið. Hvítir menn þola ekki að vinna í þessu heita, raka lofti, og á negrana er ekki að treysta í slíkri vinnu. -Þeir eru eklá fjölmennir á þessum slóðum og þeim er illa við svona vinnu. Og svo þarf mikla peninga í slíkar framkvæmdir. Nú hefur verið gerð áætlun um að gera skurð frá Hvítu-Níl í norðvestur í ána Sobat, sem fellur í Níl. Þegar þetta mannvirki er fullgert, verður hægt að láta vatnið vökva landið hæfilega allt árið. — Þá breytist þetta land í bómullarakra, líklega þá stærstu í heimi, en þetta tekur mörg ár eða áratugi og kostar mikið fé, svo að líklega lifi ég það ekki að sjá þessa breytingu." Þannig endaði ofurstinn þessa löngu ræðu. En svo bætti hann við: „En þú lifir þetta áreiðanlega, Árni. Þessi öld er öld vélanna og afköstum þeirra er næstum engin takmörk sett.“ Ámi leit hugsandi út yfir endalausar slétturnar, þar sem blöð papírusjurtarinnar bylgjuðust í hægri gol- unni. — Gat það skeð, að þetta ónumda land ætti eftir að breytast í bómullarakra. Gufubáturinn Ramses hélt áfram ferð sinni í gegnum foræðin og alltaf varð loftið enn rakara. Ferðafólkinu leið hræðilega illa. Það var eins og það væri allan daginn í gufubaði. En þessu heita, raka lofti fylgdi hin ægileg- asta flugnamergð. Á hverri nóttu réðst þessi milljóna- her á flugnanetin. Og þótt netin héldu enn, þá svignuðu þau undan þunga þessara milljóna. Berit hugsaði með hryllingi til þess, hvernig farið hefði, ef þau hefðu ekki haft netin. Þau hefðu þá verið bókstaflega étin upp af þessum skordýrum. Ferðin gekk hægt. Alltaf urðu þeir að stanza öðru hvoru og ryðja burt vatnagróðri, sem lokaði siglinga- leiðinni. Oft voru þessar „torfur“ svo þykkar, að dag- urinn fór í það, að tæta þær í sundur og ryðja bátnum braut. Þegar ferðafólldð var þannig nauðbeygt til að stanza, notaði það tímann til að fara á veiðar. Ganga á land tíl veiða ætti Iíklega að segja, en þó er eiginlega gengið á vatni. — Eins langt og augað eygir er óslitin röð „sudd“-eyja, sem er eins konar landskán mynduð af sterkum vatnagróðri. — Á einstöku stað sjást maura- þúfur, eins til tveggja metra háar, úti á þessari óendan- legu sléttu. — Það var einkennilegt að sullast um þessar floteyjar, og gat verið stórhættulegt gangandi mönn- um. Vatnið var álíka heitt og venjulegt baðvatn, og loftið mettað ralca. f þessum mikla hita, gufar upp feikn af vatni. Talið er, að um tveir þriðju hlutar af upphaf- legu vatnsmagni Hvítu-Nílar gufi upp í þessum fenj- um. Ef áin Sobat flytti ekki geysilegt vatn í farveg Hvítu- Nílar, þá væri hún næstum því vatnslaus niður undir Heima er bezt 97

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.