Heima er bezt - 01.03.1969, Side 30

Heima er bezt - 01.03.1969, Side 30
Khartum, en þar koma þær saman Hvíta-Níl og Bláa- Níl. - En hér var líka fallegt. Berit undraðist fegurð vatna- liljanna, sem þöktu stór svæði, þar sem raklendið var mest. — Þarna var lotusblómið (Nymphea Lotus), sem Egyptar töldu heilagt blóm. — Og svo var það fugla- mergðin. I hvaða átt, sem litið var, iðaði allt af fugla- lífi. Hér stikluðu háfættir, svartir og hvítir storkar með rauða fætur. Hvítir og ljósrauðir flamingóar spegl- uðu sig í vatninu og trönurnar stóðu á öðrum fæti og litu spekingslega í kringum sig. Svanir, endur og gæsir ösluðu í bleytunni, og hegrar, vepjur og margs konar farfuglar, sem systkinin þekktu heiman frá Noregi, stikluðu þarna á mosanum ásamt fjölda fugla, sem þau ekki þekktu. Ef skothvellur rauf þögnina á þessum óendanlegu sléttum, þá lyfti allur fuglaskarinn sér til flugs á sömu stundu. Milljónir milljóna spyrntu við fótum og hófu sig til flugs með miklum vængjaþyt, skrækjum og gargi, flugu í stórum boga út yfir sléttuna, en komu svo svífandi aftur með virðuleik og fegurð í fluginu og settust aftur á sama stað, eins og ekkert hefði í skor- izt, og allt var eins og áður. Þeir skutu býsn af öndum og gæsum, og Ámi var svo heppinn að skjóta einn af hinum sjaldgæfu marbú- storkum. Þann sama dag sá hann líka geysistóran hóp íbisfugla (Nílhegra). Arni starði hugfanginn á þessa heilögu fugla Forn-Egypta. Egyptarnir álitu, að þessi fugl væri heilagur af því, að hann kom alltaf til Egyptalands á sama tíma og flóðin í Níl höfðu náð þangað. Þeir settu komu fugls- ins í samband við frjósemi landsins og líf þjóðarinnar. I sumum píramídum finnast þúsundir af íbismúmíum. En það voru ekki einungis friðsöm, meinlaus dýr, sem lifðu í þessum fenjum. Hér var líka mikið af hættu- legum skriðdýrum, svo sem slöngum og krókodílum. Árni varð ægilega skelkaður einn daginn, er hann ætlaði að setjast niður og hvíla sig á trjástofni, sem hann helt að lægi þarna, en komst þá að raun um, að þetta var lifandi kródíll, sem hann sat á. Hann átti fót- um sínum fjör að launa, er krókódíllinn glennti upp ægilegt ginið og ætlaði að gleypa hann með húð og hári. En þótt þessi hættulegu skriðdýr væru þarna ekki, þá eru foræðin sjálf hættuleg lífi manna. Það fékk Mary að reyna einn daginn. Hún hafði vikið örlítið frá hinu fólkinu, þar sem það var á gangi á einni flot- eyjunni, skammt frá bátnum. Hún hafði séð ljómandi falleg lótusblóm úti í mýrinni, rétt utan við slóðina, sem þau gengu. Enginn tók eftir því, er hún beygði út af leið. En Karl Stuart, sem gekk síðastur af hinu fólkinu, heyrði eitthvert hljóð að baki sér. Fyrst áttaði hann sig eídd á þessu, og hélt að hann hefði heyrt í hegra, sem sat þar rétt hjá. En er hann heyrði kallað aftur, hrökk hann við og gekk á hljóðið. Hann ýtti frá sér stórvöxnum gróðrinum, og fram undan sér sá hann mosavaxna sléttu. Hún var þakin lótusblómum, en úti á þessari sléttu, nokkra metra frá honum, sá hann á kollinn á Mary. Hún hafði sokkið í fenið, sem sýndist eins og mosavaxin slétta, og brauzt þar um af öllum kröftum. En hver hreyfing hennar varð til þess að hún söltk enn dýpra. Hún var komin upp undir hendur ofan í fenið, en hún hafði þó gát á því að kalla til Karls: „f guðanna bænum komdu ekki nær. Fenið heldur þér ekki uppi. Þú sekkur bara í það eins og ég.“ Hér var úr vöndu að ráða fyrir Karl. Hitt fólkið var allt langt í burtu, og Karl hafði engin tæki til björgun- ar. í flýti snaraði hann sér úr jakka og ytri buxum og breiddi framundan sér á mosaþembuna. Síðan lagðist hann flatur á magann, og revndi þannig að þoka sér út á fenið. Hann varð að fara mjög gætilega, því að mosaskánin var þunn og hélt honum varla uppi, þótt hann lægi flatur. Að lokum var hann kominn svo langt, að hann gat náð í vinstri hönd Mary. — En þar sem hann lá þama marflatur og kviksyndið hélt honum varla uppi, var engin leið til þess, að hann gæti dregið Mary upp úr. Hann gerði aðeins tilraun ril þess, en þá rifnaði mosaskánin undir honum, en hann gat aðeins þokað sér til hliðar og lenti því ekki ofan í foræðið. Hann sleppti þó ekki taki á Mary og þokaðist hún því dálítið nær, og efri hluti líkamans hallaðist upp á mosa- skánina, en fætur hennar voru enn á kafi upp að mitti. Þetta leit ekki vel út fyrir þeim, og líklega hefði það endað með því, að þau hefðu bæði farizt þarna í fen- inu, ef þeim hefði ekki borizt hjálp. En þau héldu stöðugt áfram að kalla á hjálp, og að lokum var það Berit, með sína skörpu heyrn, sem heyrði óm af neyð- arópunum og gerði fólkinu viðvart. Og það mátti ekki seinna koma. Mary var alveg að gefast upp og Karl gat varla haldið sér uppi. Nú lögð- ust þeir flatir á mosann, Árni og ofurstinn, og toguðu af alefli í fætur Karls, en hann hélt heljartaki um vinstri úlnlið Mary. Hægt og hægt tókst þeim þannig að þoka þeim nær og nær, og að lokum losnaði Mary alveg upp úr feninu, og þá var ekki lengi verið að tosa þeim á fastara land. En Mary var mjög illa haldin. Hræðslan og öll áreynslan hafði orðið henni um megn, og hún var nær því meðvitundarlaus. Ofurstinn dreypti á hana víni og þá færðist ofurlírill roði í kinnar hennar og hún opnaði augun. Hún náði sér svo fljótlega, en í hálfan mánuð varð hún að bera hendina í fatla, því að handleggurinn hafði tognað í átökunum. — Karl hafði ekki dregið af sér. Inni í þessum fenjum á ,pziíW“-sIéttunum býr all- margt fólk. Það er ákaflega hlédrægt og hrætt við að- komumenn. Á þessum árum hafði það nær ekkert kynnzt menningarþjóðum eða háttum þedrra. Þetta fólk tilheyrir sérstökum ættstofni negra, sem nefnist „dinkar“. Þeir eru grannvaxnir, mjúkir í hreyfingum og létrir á sér og mjög dökkir á hörund. Þeir höfðu áður mjög sérkennilega og ógeðslega kveðjusiði, sem þeir hafa nú lagt niður. Nú haga þeir kveðjunni þann- ig, að þeir rétta hægri handlegginn fram og upp með 98 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.