Heima er bezt - 01.03.1969, Page 31

Heima er bezt - 01.03.1969, Page 31
útréttri hendi. Mun það eiga að sýna, að þeir séu vin- veittir komumönnum og beri ekki vopn í hendi. Það má næstum því segja að þessi þjóðflokkur lifi meira í vatni en á landi. Þeir virtust engin húsdýr hafa en stórar hjarðir af villinautum sáust þó svamla um þessi foræði. A bakinu á nautunum sitja oft margir hegrar og tína af þeim alls konar skorkvikindi, sem sækja mjög á villinautin. Einu sinni taldi Arni níu hegra á hryggnum á einu nautinu. Það var ekki að sjá, að villinautið kynni neitt illa við fuglana. Það lítur miklu frernur svo út, sem þessar risavöxnu skepnur verði fegnar að fá hjálp, til að losna við skordýramergð- ina. A ellefta degi eftir að báturinn lagði upp, var hann á móts við mynnið á ánni Sobat, þar sem hún fellur í Hvítu-Níl. Venjulega er þessi á vatnsmikil, en í þetta skipti var óvenjulega lítið vatn í henni. Það leit því svo út sem ferðin yrði ennþá erfið, vegna vatnsleysis í Hvítu-Níl. Vatnsmagnið í Hvítu-Níl varð alltaf minna og minna og skipstjórinn fullyrti, að hann hefði aldrei vitað það eins lítið. Það bætti heldur ekki úr skák, að Ramses var alls ekki grunnskreiður bátur og risti alltof djúpt. Hann strandaði því, eða „tók niðri“, sem svo er nefnt, stundum oft á dag. Oftast gekk sæmilega að koma bátnum aftur á flot, en þetta seinkaði ferðinni mikið. Landsýn var mjög leiðinleg. Báðum megin fljóts- ins var láglendi með mýrum og fenjum, en hér og þar sáust fámenn og vesældarleg negraþorp. Hitinn var óþægilega mikill og sólarbirtan mjög sterk, þar sem landið var skóglaus auðn strax og komið var lengra norður eftir fljótinu. Allir notuðu dökk gleraugu, en þó leið þeim illa. Berit fannst þetta leiðinlegasti kaflinn af ferðinni, og hún, og allt fólkið, hlakkaði til þeirrar stundar, er það gæti sagt skilið við Ramses, og haldið ferðinni áfram með járnbraut. Þetta sögubrot um ferð norður Hvítu-Níl gefur ofurlitla hugmynd um hið mikla stórfljót Afríku, sem nefnt er Nílarfljót, og þó fyrst og fremst um Hvítu- Níl. — En það fljót hefur ætíð verið erfitt að kynna sér og mikil ráðgáta landkönnuða og vísindamanna. Hún er ólík öllum öðrum stórfljótum, þessi önnur aðal- kvísl Nílarfljóts, sem rennur um marflata hásléttu, eins langa leið og frá Ósló suður til Feneyja á Ítalíu, og á allri þessari leið lækkar landið aðeins um 86 metra. Fljótið, Hvíta-Níl, er því gersamlega straumlaust, og kyrrstaðan er svo mikil, að margs konar stórvaxnar vatnajurtir, leir og frjóefni, sem fljótið hefur flutt með sér, á meðan einhver straumur var í því, myndar þama stór landflæmi, sem em eiginlega á floti — floteyjar. Þetta er svo undravert náttúrufyrirbrigði, að hvergi mun þekkjast annað eins í veröldinni. — Ef til vill eiga þessar floteyjar eða þessi landskán, eftir að breytast í frjósamt land, og þá myndast þarna landsvæði til bómullar-rækmnar, ef til vill hið stærsta í heimi. Segja má að ennþá sé mikill hluti Afríku ónumið land. — Þar eru óbyggilegar eyðimerkur, frumskógar, vötn og foræði. Ef það tækist að veita vatni eða sjó inn á sandauðnir Sahara, þá gætu myndazt þar gróður- sæl, byggileg landsvæði. Ef hægt væri að ræsa fram Hvítu-Níl, svo að floteyjarnar og fenin yrðu að þurr- lendi, þá myndaðist þarna frjósamt landsvæði og víð- lent, þar sem tugir milljóna gætu átt búsetu. — Ef öllum fjármunum, sem varið er í vopnabúnað, stríðsundirbúning og tunglferðir, væri varið til stór átaka í Afríku-löndum og öðrum ónumdum og lítt numdum landsvæðum veraldar, þá gæti jörðin fætt og fóstrað margar milljónir umfram þær milljónir, sem nú byggja hana, og þyrfti þá ekki á næstu áratugum að óttast offjölgun jarðarbúa. í landafræði Karls Finnbogasonar var, að mig minn- ir, mynd, sem hét „Flóð í Níl“. Það virtist vera bjart yfir á myndinni og stafalogn. í útjöðrum flóðsins sáust pálmatré og einhverjar byggingar. Líklega er flóða- tíminn í Níl mesti sældartími fyrir þá, sem akuryrkju stunda, því að þá er ekki annað að gera, en bíða þess að flóðunum linni og akurlöndin þorni, svo að hægt verði að hefja sáningu. Stefán Jónsson. Tónatríóið er vinsæl danshljómsveit í Reykjavík. Hljómsveitarstjóri er Arnþór Jónsson, sem líka er bassasöngvari. Sólósöngvari er Gunnlaugur Melsted. — Halldór Fannar leikur á orgel og syngur. Annars syngja þeir allir. Tónatríóið notar sjálfvirk- ar trommur og er það nýmæli hér á landi. Tónatríóið leikur jöfnum höndum gömlu og nýju danslögin. Ljóðið Glókollur er þeirra eftirlætislag. Ljóð og lag eftir Birgi Marinósson. GLÓKOLLUR. Sofðu nú sonur minn kær, senn kemur nótt. Úti hinn blíðasti blær bærist svo hljótt. Út í hið kyrrláta kvöld kveð ég minn óð, sem fléttast við fallandi öldunnar fegurstu ljóð. Heima er bezt 99

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.