Heima er bezt - 01.03.1969, Page 40
•; • . ../
J. F. COOPERr
HJARTARBANT
57. Nokkur kröftug áratog leystu gátuna. Á botni flat-
bytnunnar lá Rauðskinni, sem reri hægt að landi með
handleggnum. I einu vetvangi var Hjartarbani kom-
inn að bátnum. — 58. „Heyrðu, þú þarna! Láttu bát-
inn í friði og forðaðu þér áður en ég stytti þér aldur!“
— Rauðskinninn rak upp hræðsluóp og steypti sér út-
byrðis. — 59. Rauðskinninn kom fljótlega úr kafinu
og synti rösklega að landi, en Hjartarbani tók flat-
bytnuna í tog og reri í átt að „Bjórahöllinni". — 60.
Systurnar tvær urðu harmi lostnar, þegar þær heyrðu
um örlög föður þeirra og Harrys. Hjartarbani sagði
þeim alla söguna, en hughreysti þær jafnframt með
því, að þegar hann hitti vin sinn, Delawarehöfðingj-
ann Sjingaguk, myndu þeir fljótlega bjarga Tom og
Harry.