Heima er bezt - 01.12.1972, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.12.1972, Blaðsíða 10
SNÆBJORN JONSSON: Enn eitt ska Ef litið er yfir sögu íslenzks skáldskapar frá önd- verðu, og framlag hvers héraðs til hennar, getur þá nokkur vafi leikið á því, að það sé Skagaf jörð- ur, sem öndvegið skipar? Mér virðist sem sú ályktun verði ekki umflúin. Allt frá fyrstu tíð hafa skagfirzk skáld ort með ágætum. Þau gerðu það á sögu- öld, þau gerðu það á Sturlungaöld, þau gerðu það á miðöld, og þau gera það enn í dag. Við skulum ekki byrja á hæstu nótunni. Við skulum nefna Sneglu-Halla fyrstan, á elleftu öld. En hann bend- ir svo ótvíræðilega til eftirmanns síns, á nítjándu og tuttugustu öld, Símonar Dalaskálds, að nærri má segja, að ekki skilji þá nema aldirnar, sem á milli eru. Hvor- Árni G. Eylands. firzka skáldié ugan mundum við vilja missa. „Hagmælskan er dæma- laus,“ var sagt um Símon og með engu minna sanni mátti segja svo um Halla. Það, sem við hörmum um hann er það, hve lítið hefur geymzt okkar tíð af kveð- skap hans. í lofsöngnum um Símon hefur Matthías Jochumsson kveðið fastast að orði og skipað honum til sætis við hlið Sighvats Þórðarsonar, og skal hann sjálf- ur bera ábyrgð á orðum sínum, en ekki ég. Ætla ég, að Matthías vissi þó hvað hann söng, en læt mér nægja að leggja það eitt til málsins, að Símon var síðasta farand- skáld Islendinga og líka hið afkastamesta. Og þegar um skáldskap er rætt, ber að sjálfsögðu að taka tvennt til greina: Hve góðvirkur höfundurinn er og líka hve stórvirkur. Svo virðist mér sem Njáll mundi gert hafa. Vitanlega nær það engri átt að gera hér tilraun til þess að þylja nöfn skagfirzkra skálda gegnum aldirnar. En minna má á nokkur nöfn og nokkur atriði, og þá kannske fyrst það, að í Skagafjörð er sótt elzta frum- kveðna kvæðið í þeirri sálmabók, sem íslenzk ríkiskirkja notar nú í bili. Það er að vísu ekki sálmur, en það er fögur bæn og góður skáldskapur, og góður skáldskapur er allt það litla, sem við eigum eftir Kolbein Tumason. Einu skagfirzka skáldinu má vænta, að íslendingar gleymi seint með öllu. Guðmundur Finnbogason hall- aðist að því, að þegar allt væri athugað, mætti ætla, að Hallgrímur Pétursson hefði líklega verið mestur allra íslenzkra skálda. Og mundum við ekki setja Skagfirð- inginn Stephan G. Stephansson við hlið honum? Hjálmar orti í Skagafirði, en hann verður þó ekki af Eyfirðing- um tekinn. Og enginn tekur Rósu af þeim heldur. Svo er annað, að sum stórskáldin, sem ekki voru í Skaga- firði fædd, voru þaðan kynjuð, og má augljóst telja, að þaðan væri þeim skáldgáfan komin. Svo var það um Steingrím Thorsteinsson og svo var það um Einar Benediktsson, sem átti skáldmælta, skagfirzka móður og sagði sjálfur um hana: Þitt var mitt Ijóð og hvert gígjugrip. Þú gafst mér þinn streng og þinn boga. Ekki veit ég hvort það er rétt, sem mér var eitt sinn sagt, að rekja mætti ætt Jónasar Hallgrímssonar til Skagafjarðar, en vel mætti svo vera. Ekki þarf þó Skaga- fjörður á hans nafni að halda. Nógar eru skrautfjaðr- irnar samt. 410 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.