Heima er bezt - 01.12.1972, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.12.1972, Blaðsíða 19
Almannagjá. Teikning: Auguste Mayer. Það þótti aldrei neitt sældarbrauð að ferðast um ísland hér fyrr á árum, þegar fætur manna og hesta voru farartækin; illkleif fjöll, óbrúaðar og straumþungar ár hinn versti farartálmi. Að sjálfsögðu var reynt að nota sjóleiðina þar sem við varð komið, en alltaf þótti hún ótrygg nema á stuttum vegalengdum innanfjarðar; veikbyggðir bátar, illt sjólag, duttlungafullt veðurlag og hafnleysur sáu fyrir því. í langt ferðalag var því aldrei ráðist nema gangandi eða á hestum og það af brýnni þörf; í það réðust ekki aðrir en valdir og harð- gerðir menn. í þessu sambandi má minna á ferðalag þeirra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, en það tólc þá fimm ár (1752—1757), svo og ferðalög og rannsoknarferðir þeirra Björns Gunnlaugssonar (1831—1843) og Þor- valds Thoroddsen (1882-1898). Öll þessi ferðalög eru fræg í sögum og þykja mikil afrek. ÖRLAGARlKT FERÐALAG RITSTJÓRI EIRÍKUR EIRÍKSSON Minna hefur verið hald- ið á lofti mesta afrekinu, fyrstu landsreisunni um ís- land, sem farin var snemma á landnámsöld. Sl'íkan garpsskap hefði söguþjóðin auð- vitað viljað hafa í hávegum; hér er þó ekki auðvelt um vik, því einu heimildina um hann er að finna í örfáum orðum, varla einni línu, í Landnámubók Ara prests Þorgilssonar hins fróða. Við vitum ekki heldur hvað þetta ferðalag hefur tekið mörg ár, sumir hafa gizkað á þrjú, en einhverntíma rétt fyrir árið 930 hefur það ráðist. Nafn ferðagarpsins vitum við og tilganginn með ferðalaginu. Allt annað verður að ráða að líkum. Fullhuginn hét Grímur geitskgr, og í þdtta hættuspil réðist hann að áeggjan lagamannsins og fóstbróður síns, Úlfljóts, — þess sem fyrstur var beðinn að taka saman lög handa íslendingum. En hvernig gat Grímur þá vitað um alla landnáms- mennina, bændurna, sem hann þurfti að hafa tal af? Suma hefur hann kannast við, aðra ekki. En okkur er frjálst að álykta, að þegar hann var búinn að sækja einn heim, hafi sá hinn sami skotið undir hann hesti og lánað honum fylgdarmann, eða menn, til þess næsta, og þannig áfram frá landnámi til landnáms. Margan farartálmann hefur Grímur þurft að yfirstíga. Heima er bezt 419

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.