Heima er bezt - 01.12.1972, Side 27

Heima er bezt - 01.12.1972, Side 27
boð, en þú þarfr ekki að tala við Axel, ég kæri mig ekki um, að hann viti hvað systir mín er mikið bölvað flón. — Já en Hilda, það er betra að við segjum honum frá öllu saman heldur en að hann frétti það frá öðr- um. — Axel hlustar ekki á slúðursögur um mig, sagði ég hnakkakert, en datt um leið í hug, að það gæti nú verið skollans ári gaman að vita hvernig hann brygðist við í tilfelli sem þessu, og að ef til vill hefði hann bara gott af því að verða ofurlítið hræddur um mig, svona er ég ófrumleg og rómantísk, þegar til kastanna kemur. En að láta þessar hugsanir mínar uppi við Randí hvarflaði ekki að mér. Við systurnar erum ekki trúnaðarvinkonur og hún veit ekkert um ósamkomulag okkar Axels.-----Ósamkomulag?-------- Kom okkur þá í rauninni illa saman?-----Ég fékk ekki tækifæri til að velta þessari spurningu fyrir mér, því að Randí hélt áfram nuddi sínu. — Hilda, ég hringi í öllu falli til Bjössa. — Ekki til að tala um, Björn Guðmannsson er sú persóna sem ég fyrirlít mest allra manna, og það ættir þú líka að gera, hann er skepna og í framtíðinni vildi ég ráðleggja þér að halda þig sem lengst frá honum. Ég er yfirleitt alveg undrandi á því að þú skulir tala við hann. — Það er naumast, ég veit svo sem að Bjössi er enginn engill, en að vera að ala á gömlum erjum, nei, ég er upp úr því vaxin. — Þú ættir ekki að vera upp úr því vaxin, Randí, og ég get sagt þér það strax, að ég held að ég gæti fyrirgefið þér þessa andstyggilcgu framkomu þma gagnvart mér, ef Björn hefði ekki komið þar við sögu. Að láta bendla sig við slíkan flagara er morð, morð, skilurðu það? — Hvaða óttalegur gauragangur er þetta út af engu, ekkert hefur Bjössi gert þér. Það var ég sem einu sinni var trúlofuð honum ekki þú, eða hvaðr Þar skjátlaðist Randí systur minni hrapalega, ég var sem sé einu sinni næstum trúlofuð Bjössa Gum, sem hún kallar svo, en um það atriði úr lífi mínu vil ég sem minst tala. Randí var ekki heima um þetta leyti, svo hún vissi ekkert um það sem skeði, en að Björn skyldi ekki segja henni frá sambandi okkar eða öllu heldur gorta af því, þegar þau fóru að vera saman ári seinna, hefur alltaf undrað mig stórlega. Kanski á hann líka til einhverjar góðar hliðar, þó að ég kæmi ekki auga á þær, eða líklega hefur hann bara viljað leyna ósigri sínum. Þetta leyndarmál mitt hef- ur því varðveizt vel og dyggilega, að því undanskildu að ég skriftaði fyrir Axel áður en við opinberuðum, og síðan hefur persónan Björn Guðmannsson verið algjörlega þurrkuð út okkar í milli. — Já, heyrirðu hvað ég segi, ég skil ekki hvað þú hefur út á Bjössa að setja, sífraði Randí eins og óþekkur krakki, og mig langaði mest til að gera al- vöru úr því að lemja hana, tuska hana til, en ég stillti mig, ég vissi 'hvort eð er, að það var ekki til neins, ég horfði á hana um stund, en sagði svo eins rólega og mér var unnt: — Randí, þakkaðu fyrir að þú varst bara trúlofuð Birni, þessum flagara og fyllirafti, þakkaðu fyrir að eiga mann eins og Friðrik og hafðu vit á að varð- veita þá hamingju, sem þér hefur fallið í skaut. — Það er naumast að þú ert hátíðleg, já þú ert svo hátíðleg, það er ekki ofsögum af því sagt, sagði Randí og horfði á mig stórum sakleysislegum aug- um. — Það hefur svo sem ekkert skeð, ennþá að minsta kosti, en ef Friðrik kemst að þessu verður hann vitlaus, það máttu bóka, svo það er eins gott að vera við öllu búin. Aftur dauðlangaði mig til að löðrunga hana dug- lega, en lét það vera, henni yrði ekki breytt úr þessu. hún mun fara sínu fram og undrast það eilíflega, að eiginmaður hennar skuli ekki taka því með þögn og þolinmæði að hún daðri til hægri og vinstri og drekki og drabbi fram eftir nóttunni með hinum og þessum. Henni finnst hann bara óskaplega gamaldags og hræðilega gáfnasljór að skilja ekki, að litla fallega konan hans verður að fá að leika sér að saklausu gull- unum sínum og hún vill ekki eða læst ekki skilja að í saklausu gullunum hennar getur sjálft fjöreggið leynst og því brotnað þegar minnst varir. Og tíminn leið. Ég reyndi að gefa mér tíma til að iðka morgunleikfimi, gefa sjálfri mér duglegt and- litsnudd, æfa mig í að ganga fallega og sitja eins og primadonna, en alltaf var eitthvað sem tafði mig og alltaf voru einhver aðkallandi störf sem biðu mín. A morgnanna vaknaði ég aldrei nógu snemma til þess arna og á daginn var ég sjaldan ein, en á kvöld- in var ég svo þreytt að ég settist bara fyrir framan sjónvarpið með hendur í skauti og var steinsofnuð áður en hægt var að telja upp að tíu. (Jtkoman varð því sú, að ég tileinkaði mér aðeins eitt ráð bókarinn- ar,--------ég brosti. Já, ég vandist smám saman á að brosa í tíma og ótíma og segja: — já, sjálfsagt elsk- Heima. er bezt 427

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.