Heima er bezt - 01.12.1972, Side 28

Heima er bezt - 01.12.1972, Side 28
an, ef ég var beðin einhvers, í stað þess að muldra með ólund: — Ætli það ekki, er um annað að gera eða — nei, þetta er þitt verk. En þetta tók á taugarn- ar, og ég þurfti á öllu mínu þreki að halda til þess að rjúfa ekki það heit, sem ég hafði gefið sjálfri mér. Já, svo mikla áreynslu, að jafnvel á næturna dreymdi mig brosandi andlit sem svifu fyrir framan augun á mér, eltu mig hvert sem ég fór, hrúguðust upp og vörnuðu mér inngöngu í mitt eigið heimili og öll hrópuðu þau í kór: — já já, allt í lagi elskan, sjálf- sagt það skal ég gera elskan. Marga nóttina vaknaði ég í einu svitabaði eftir þessa martröð og ætlaði aldrei að geta sofnað aftur. En þrátt fyrir þetta leið mér vel og ég sá ekki eftir að hafa tekið þessa örlaga- ríku en einföldu aðferð, að brosa mig í gegnum múr tilbreytingarleysisins. Nú ætla ég alls ekki að fara að halda því fram, að eitthvert undarlegt kraftaverk hafi gerzt, að ég hafi á einum degi umskapast úr geðvondri norn í hvít- þvegin engil, sem stráði gylltum stjörnum allt í kring um sig. Nei, alls ekki, dagarnir fengu bara smám saman annan svip, krakkarnir urðu léttari í skapi, hlógu oftar og rifust minna. Vitaskuld héldu þau áfram að karpa um allt og ekkert og þau hættu ekki að vaða inn á skónum eða kasta fötunum sínum og dóti um alla íbúðina, sem betur fer, liggur mér við að segja, — jú, því trúið mér, ég held næstum, að ég kynni ekki við þau svo fulkomin, að mín væri ekki þörf. Og það varð með tímanum að vana hjá mér, þægilegum vana, að brosa og segja: — þetta er allt í lagi, eða — þetta gerir ekkert til, eða eitthvað slíkt, og ég komst fljótlega að því, að það var léttara, kost- aði minna erfiði, að gera hlutina möglunarlaust og með gleði, það endaði hvort eð er alltaf með því, að ég gerði það sem gera þurfti, hvort sem mér líkaði það betur eða verr eða hafði tíma til þess eða ekki. Og krakkarnir tóku þessari breytingu móður sinnar sem sjálfsögðum hlut. Að vísu, eins og áður segir, mátti fyrstu dagana sjá votta fyrir undrun í svip þeirra, en síðan hugsuðu þau ekkert meir um þetta. Mamma var á sínum stað, kát og tilbúin að sinna öllum þeirra þörfum, þannig átti það líka að vera og þá var allt harla gott. Þannig er æskan í dag og þann- ig hefur hún sennilega alltaf verið. Róleg og æðru- laus tekur hún sér sæti í lífsvagninum og fylgist með honum í þeirri öruggu vissu, að það standi ekki í hennar valdi að stöðva hann eða ráða nokkru um, í hvaða átt hann stefnir. Það erum bara við, fullorðna fólkið, „gamlingarnir,“ sem þykjumst allt vita og allt geta, yfirhöfuð vera fær um að taka alla stjórn í okkar hendur. En hvað með húsbóndann á heimilinu? Ekki meg- um við gleyma honum. Það var alls ekki gott að átta sig á honum þessa dagana. Stundum var hann kátur og lék á als oddi, en stundum var hann svo daufur og áhyggjufullur, að ég sárvorkenndi honum. Aumingja Axel, hann átti það til, að horfa rannsakandi á mig, og úr svip hans mátti lesa ótal spurningar, já Axel hafði líka breyzt, það leyndi sér ekki . Bókin góða, hún hafði þó nokkuð á samvizkunni, og ég fór í alvöru að ráð- gera að leysa frá skjóðunni, játa allt fyrir Axel, en áður en til þess kom, skeði dálítið skemmtilegt. Andrea hringdi og sagði að nokkrar bekkjarsystur okkar ætluðu að halda upp á eitthvert afmæli og borða saman á Naustinu um kvöldið, hvort ég væri ekki til í að koma með. Ég hélt nú það og við ákváð- um að mæta klukkan átta. Og af því að ég vildi nú einu sinni líta reglulega vel út, ákvað ég að reyna eina af mörgum andlitsgrímum bókarinnar minnar og náttúrlega valdi ég þá auðveldustu, eggjagrímu. Það vildi svo vel til að ég var ein heima eftir hádegið þennan dag og hugði nú gott til glóðarinnar, að slappa reglulega vel af. Ég byrjaði á því, að bursta hárið rækilega, stóð álút og burstaði og burstaði. Þar næst batt ég klút um höfuðið, til þess að ekkert af eggjarauðunni snerti sjálft hárið, þvoði andlitið úr heitu og köldu vatni til skiptis, þangað til ég var orðin eins og eldhnöttur í framan, þá smurði ég eggjagrímunni á andlitið og hálsinn. Húðin herptist og strengdist og allar hrukkur hurfu eins og dögg fyrir sólu. Þetta var mjög skrítið og það lá við að ég færi að skellihlæja, en það er nú einmitt það sem maður má alls ekki gera, því að þá er allt erfiðið til einskis. Eg lagðist út af og slappaði svo rækilega af að ég steinsofnaði með það sama. Þlve lengi ég lá svona og svaf, veit ég ekki, en allt í einu vaknaði ég við hljóð sem ég átti ekki von á. Ég lá kyrr litla stund til að átta mig, og uppgrötv- aði brátt mér til undrunar og skelfingar að verið var að brjóta upp hurðina frammi í forstofu. £g rauk fram í dauðans ofboði, svona einsog ég var á mig komin, með allt gumsið á andlitinu og hugðist grípa þjófinn glóðvolgan. Næstu augnablik skeði svo 428 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.