Heima er bezt - 01.12.1972, Page 13

Heima er bezt - 01.12.1972, Page 13
Snarrótarpuntur og húsakornpuntur fá hvor sína hyll- ingu í heilum kvæðum. Mun því mörgum koma til hug- ar að varla muni þetta gróðurskáld ganga þegjandi fram hjá birki og eini, enda er hvorugu gleymt og í hvorugu kvæðinu er tómahljóð eða falskar nótur. í upp- vexti mínum hafði ég engin kynni af eininum, því hann óx ekki í mínu umhverfi. En birkikjarrið var þar. Hefði mér ekki lengi og allt frá bernsku þótt vænt um Bjarna frá Vogi, mundi mér eigi að síður hafa hlýnað til hans, er ég sá að hann gróðursetti birki í garði sínum, þegar hann loks varð þess megnugur að koma sér upp húsi til íbúðar. Kvæði Árna Eylands sýna, að svo mundi honum einnig hafa farið. Þegar Árni hyllir Jóhannes Kjarval hálfsjötugan með snilldarkvæði, eru það enn töfrar íslands og huldir fjár- sjóðir, sem leggja til óminn í hörpustrengina og sýna skyldleika þess, er kvað, við hinn, sem kveðið er til. „Landið, þjóðin, sagan.“ Mundi ekki hitt skagfirzka skáldið hafa þótzt finna þetta þrennt samofið í kvæðum Árna Eylands? Alveg efalaust. En þjóðina mynda ein- staklingar, og nærri má geta hvort þeir, sem hæzt hafa gnæft, muni ekki hafa dregið að sér athygli hans. Fleiri eða færri hlutu þeir að verða honum að yrkisefni. Hann yrkir um nokkur stórmenni fornaldar, karla og konur, og sum verða þau kvæði að bálkum, sem skiptast í fleiri eða færri kafla, eins og kvæðin um Þóru hlaðhönd og Hildigunni lækni. Flokkur er líka kvæði það, er hann nefnir Landnema, og þar sitt kvæðið helgað hverjum, en kvæðið um Flóka Vilgerðarson er þó í tveim þáttum, eins og tvær urðu ferðir hans til íslands. Eftir óheilla- ríka fyrri för sína, mun hann þó naumast hafa hugsað sér að koma þangað í annað sinn. Það er fornt spak- mæli, að enginn ráði sínum næturstað, og hefur margur mátt sanna, að rétt væri. Þegar Árni túlkar hug þessa fólks, er hann yrkir um, sýnir hann hve mikið skáld hann er. Kvæði hans út af fornsögunum eru ort mjög í anda Gríms Thomsens og að hans hætti, langtum frem- ur en Stcphans. Jónas Hallgrímsson er nú svo mikið og svo skyn- semdarlaust dýrkaður, að sá mun lýttur, sem ekki fylgir landssiðnum og jarmar eins og sauðahjörðin. Fáum mun koma það á óvart, að ég taki mig út úr hópnum og fari mína eigin leið; fyrir það mun ég alkunnastur og alræmdastur. En enginn getur sagt, að ég hafi ekki hyllt Jónas, því það hefi ég svo þrásækilega gert, og ég held kannske betur en ýmsir þeirra, sem jarma þarna inni í kindahópnum. Hann var sá, er á sínum tíma vakti þjóðina og leysti þjóðtungu okkar úr álögum. „Málið þitt góða í faðminn þinn flýr með flekkina á skrúðanum sínum.“ En tvennt er mér um megn: að sjá allt í sama ljósi og hann og að skilja sumt það, er hann sagði. Gunnarshólmi hans er snilldarfagurt mál- verk, en kenning sú, er kvæðið flytur, hefur allt frá æskudögum verið mér svo þvert um geð, að fyrir hana hefi ég aldrei til fulls getað notið listarinnar. Að ganga á gerðar sættir, vitandi vel, að þar með mundi óumflýjanlega stofnað til mikilla vígaferla. Nei, ég átti aldrei annars úrkosta en að fylgja Kolskegg. Og þannig hefir Árni Eylands vahð sér veginn. Við skulum hlýða á mál hans: Er Gunnar stefndi götur upp til Hlíðar, hann gekk með vild á bug við allar sættir; hér gerast ennþá íslendinga-þættir með áþekk vandamálin fyrr og síðar. En Kolskeggur það kaus að fara víðar, er kuldi dómsins lék um allar gættir, hann kvaddi heimagarða, vini, vættir, og vetur fór í hönd með storm og hríðar. Hvort var þá stærra heima bein að bera við brotin grið og allra vina sátt og eignast sögu sagða lengi, víða, — eða til firðar-daga dæmdur vera, sem drengur eiga gleymdan æviþátt? — Með Kolskeggi ég kaus í sand að ríða. Þau eru bæði mörg og góð kvæðin, sem Árni yrkir út af Njálssögu. Þó er það á einskis meðalmanns færi að sækja sér yrkisefni þangað. Ekki var það heldur fyrir amlóða að taka sér eldmessu sira Jóns Steingrímssonar að yrkisefni og skila því mikla kvæði um hana, sem mörgum er kunnugt síðan það birtist í Lesbók Morg- unblaðsins. Það er að vonum, að Noregur hafi öðlazt mikil ítök í Árna Eylands, og engan traustari vin ætla ég að það ættland forfeðra okkar eigi á íslandi. Er þó Noregur mörgum íslendingum harla kær, eins og ljóslega sýndi sig þegar Þjóðverjar tóku landið herskildi í öndverðri síðari heimsstyrjöldinni og héldu því með miklum níð- ingshætti í heljargreipum til stríðsloka. Ýms af skáldum okkar hylltu þá Norðmenn í ljóði, karlar og konur, og flest ætla ég að þau kvæði væru meira eða minna góð, en vart mun nokkurt þeirra hafa borið af kvæði Árna. Hann lýkur því þannig: Víða Norðmenn vopnin brýna, vita, að dagur hefnda er nær, þegar gæfu-sókn mun sýna svikurum, hver að lokum hlær. Senn, í maí, moldir hlýna, mjúkgræn akurlöndin skína. — Lýðs af fórnum frelsið grær. Rétt er að geta þess, að Árni Eylands hefir skrifað mikið í norsk blöð og nokkuð í norsk tímarit, að lang- mestu leyti um íslenzk éfni, ekki sízt bókmenntaleg, eða þau efni, sem að einhverju leyti vörðuðu ísland. — Stundum hafa þessar greinar hans verið langar ritgerðir, sumar gagnmerkar, ávallt nokkurs virði og ávallt læsi- legar, enda kann hann ekki að skrifa öðruvísi en læsi- lega. Það er tjón, að þessum greinum hans skuh ekki hafa verið safnað í bók, en sennilega mundu tormerki á að fá slíka bók út gefna, því að bókmenntir í þeirri grein Heima er bezt 413

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.