Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1972, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.12.1972, Qupperneq 36
9. Læknirinn var ekki heima, hafði farið til herramanns að nafni Trelawny, og þar barði ég að dyrum. — Hæ! Hæ! Jim Hawkins, hvað kemur til, að þú leitar mig uppi núna, sagði hann þegar ég gekk inn. — Ég skýrði frá atburðum kvöldsins og þeir hlust- uðu á mig með vaxandi ákefð. Þegar ég svo að endingu rétti þeim pakkann góða, er ég hafði fundið, opnuðu þeir hann og voru ákafir mjög. Innihald pakkans var bók með einhvers konar reikningsfærslu yfir stórar fjárhæðir, ásamt með korti Flints kapteins yfir Gulleyjuna. Áberandi hlutar kortsins voru „Sjón- aukahæð" og „Beinagrindaeyjan", og einnig nokkrir krossar og punktar. Kortið var nákvæm fyrirsögn um það, hvar ætti að sigla skipi til strandarinnar. Livsey læknir og herra Trelawny voru brátt niðursokknir við að athuga kortið og við að leggja áætl- anir um að ferðbúa skip, sigla því til Gulleyjunnar og leita uppi fjársjóð Flints kapteins. Undirbúningsráðstafanir voru ákveðnar, og að lokum lyfti læknirinn hendinni í aðvörunarskyni: En munið að fleiri vita um þetta kort en við, og það eru fífldjarfir karlar, sem ekki munu láta smámuni aftra sér frá því að klófesta fjársjóðinn. Þessvegna: algjör þagmælska. 10. Herra Trelawny fór strax til Bristol, þar sem hann á nokkrum vikum keypti og útbjó skonnortuna „Hispaniola" og réði sjó- menn á skipið. Hann hafði kynnzt sjóara, er kallaður var „Langi Silfur-Jói“, en Silfur-Jói þessi hafði útvegað alvana þjarka, sem ágætir mundu verða í slíka ferð. Þegar ég kom til Bristol, leitaði ég uppi herra Trelawny. Hann lét mig hafa bréf til þessa Silfur- Jóa, lýsti útliti hans og sagði mér í hvaða veitingahúsi hann byggi. Mér gekk auðveldlega að finna staðinn. Silfur-Jói var hár, þrekvaxinn og einfættur maður, er með mikilli fimi notaði langa hækju. Hann opnaði bréfið, og varð bilt við, en sagði svo: „Jæja, svo þú ert þá nýi léttadrengurinn okkar! í sama bili stökk einn gestanna á fætur og hljóp út um dyrnar. Ég þekkti strax, að þetta var sami maðurinn, er hafði heimsótt kapteininn á krá föður míns og kallaði: „Stöðvið hann! Þetta er illvirkinn Svarti seppi.“ — Silfur-Jói lézt verða forviða, og skipaði þegar einum sjóaranna að elta hann.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.