Heima er bezt - 02.10.1976, Qupperneq 2
Páll H. Jónsson <m I
wP^íSbóB
a<
ó
wirncnn
Kristmsson
Bók 362
I lausasölu
kr. 3.960,00
HEB-verð
aðeins
kr. 3.300,00
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Hallgríms
Kristinssonar, fyrsta forstjóra Sambandsins. Hann ólst
upp í fátækt í inndölum Eyjafjarðar, en ruddi sér braut
til frægðar og frama með einstæðum dugnaði, vilja-
þreki og atorku.
Um það leyti sem hann var að stofna eigið heimili og
hefja sjálfstæðan búskap, var hann ráðinn fram-
kvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. Þessi
ráðstöfun átti eftir að gjörbreyta högum kaupfélagsins,
sem Hallgrími tókst á ótrúlega skömmum tíma að
breyta úr fátæku pöntunarfélagi í öflugt verzlunar-
félag. En óneitanlega breytti þessi ákvörðun heimilis-
högum Hallgríms hastarlega, því upp frá þessu helg-
aði hann samvinnuhreyfingunni alla krafta sína, en
þær stundir, sem hann átti með fjölskyldunni, urðu sí-
fellt færri en hann hefði sjálfur óskað. Hallgrími auðn-
aðist að lyfta mörgum Grettistökum fyrir samvinnu-
hreyfinguna meðan hans naut við, en hann lézt fyrir
aldur fram, aðeins 46 ára.
Páli H. Jónssyni hefur tekizt að gera Hallgrím Kristins-
son Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum lesandans. Bókin
er í senn fjörlega skrifuð og stórfróðleg, prýdd mörg-
um myndum auk nafnaskrár.
V